Morgunblaðið - 27.07.2022, Síða 13
13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 2022
Sólsetur Sólin sýndi sig gestum Sjóbaðanna á Húsavíkurhöfða þegar ljósmyndara Morgunblaðsins bar að garði í byrjun viku. Rauðleitir tónar sólarlagsins voru mikið fyrir augað.
Hafþór Hreiðarsson
Kannski er það
vatnið eða loftið.
Kannski er það kar-
akter sem stórbrotin
náttúran, blíð, gjöful,
hörkuleg og óvægin,
sem hefur hert fá-
menna þjóð. Ef til vill
erum við að uppskera
það sem við höfum sáð
– fá til baka ávöxtun
góðrar vinnu. Ég veit
ekki svarið en grunar að það sé
blanda af þessu öllu.
Það er með hreinum ólíkindum
að 380 þúsund manna þjóð hafi á að
skipa jafnmörgu afreksfólki í fjöl-
breyttum greinum íþrótta og raun
ber vitni. Íbúafjöldinn jafngildir um
5% af fjölda þeirra sem búa í Lond-
on og er svipaður íbúafjölda Car-
diff höfuðborgar Wales. Og þegar
við bætist ótrúlegur fjöldi lista-
manna á flestum sviðum, er ekki
hægt að komast að annarri niður-
stöðu en að við Íslendingar sem
þjóð séum að gera ýmislegt rétt.
Hæfileikar og baráttugleði
Stelpurnar okkar í landsliðinu í
fótbolta stóðu jafnfætis þeim bestu
á Evrópumótinu í Englandi. Og
þótt við séum flest svekkt yfir því
að þær hafi ekki komist í undan-
úrslitin þá er árangurinn einstakur.
Stelpurnar fóru taplausar í gegnum
mótið og hefðu hæglega getað unn-
ið alla þrjá leikina – þar réði
óheppni og/eða skortur á heppni
niðurstöðunni. Í fótbolta ráða
heilladísirnar oft úrslitum.
En það er bjart yfir landsliðinu
þar sem hæfileikar og baráttugleði
ráða ríkjum. Fjöldi kvenna hefur
lagt grunninn að þessum árangri á
síðustu árum og áratugum. Ein
þeirra, Hallbera Gísladóttir, hefur
ákveðið að leggja skóna á hilluna.
Henni og öllum þeim sem á undan
komu, eru þakkaðar margar frá-
bærar gleðistundir.
Við eigum margar
fleiri góðar stundir
fram undan með
glæsilegu landsliði.
Ungar stjörnur
Drengirnir okkar í
landsliði 20 ára og
yngri í körfubolta
stóðu sig sérlega vel í
B-deild Evrópumóts-
ins sem lauk fyrir
nokkrum dögum. Þeir
komust alla leið í úr-
slitaleik mótsins og hrepptu þar
silfur eftir tap gegn Serbíu. Tveir
Íslendingar voru valdir í fimm
manna stjörnulið keppninnar; Þor-
valdur Orri Árnason og Orri Gunn-
arsson. Á komandi ári leikur U20
landsliðið í A-deild.
Perla Sól Sigurbrandsdóttir
gerði sér lítið fyrir og tryggði sér
Evrópumeistaratitil í golfi 16 ára
og yngri fyrir nokkrum dögum.
Hún verður 16 ára í haust. Perla
Ósk atti kappi við yfir 70 af efnileg-
ustu kylfingum Evrópu og hafði
betur.
Sumarið 2022 er svo sannarlega
gott sumar fyrir ungt afreksfólk
frá fámennri þjóð. Og dæmin eru
fleiri bæði ný og gömul.
Fyrr á þessu ári tryggði karla-
landsliðið í handbolta sér 6. sæti á
Evrópumótinu þrátt fyrir að veiru-
fjandinn hafi gert strandhögg. Þeir
ætluðu sér stærri hluti en heims-
meistaramótið í janúar er næsta
verkefni. Liðið er vel mannað og
þar fer fremstur meðal jafningja
Ómar Ingi Magnússon sem valinn
var besti leikmaður Þýsku úrvals-
deildarinnar í handbolta fyrir
nokkrum vikum.
Í desember á liðnu ári varð
kvennalandsliðið í hópfimleikum
Evrópumeistari. Þann leik hefur
liðið leikið áður – síðast 2012.
Hér verður látið staðar numið þó
hægt sé að nefna fleiri einstaklinga
og landslið sem skarað hafa fram
úr á síðustu árum, allt frá knatt-
spyrnu til körfubolta, sunds til fim-
leika, golfi til frjálsra íþrótta. Svo
virðist sem fáar íþróttagreinar séu
til þar sem Íslendingar hafa ekki
náð góðum árangri.
Hvorki dramb né hroki
Það er ekki drambsemi eða hroki
að vera stoltur Íslendingur. Hreyk-
inn af því ótrúlega afreksfólki sem
hefur lagt mikið á sig til að skara
fram úr á alþjóðlegum vettvangi.
Trúin á framtíðina – á fólkið og
landið – eflist. Ekki vegna þess að
við séum betri en aðrar þjóðir eða
merkilegri. Heldur vegna þess að
við fáum staðfestingu á hversu
miklu við getum áorkað ef við erum
tilbúin til að leggja eitthvað á okk-
ur. Að þessu leyti eru íþróttamenn-
irnir fyrirmyndir okkar hinna með
sama hætti og framúrskarandi
listafólk.
Þeir eru til sem vilja ekki draga
fram það jákvæða – neita að sjá
eða njóta þess sem vel er gert. Í
hugum þeirra er mikilvægara að
grafa undan tiltrú á landi og þjóð –
mynda farveg fyrir vantraust og
tortryggni. Hinir neikvæðu munu
ekki mæta á völlinn og upplifa æv-
intýri eða gleðjast þegar ungt af-
reksfólk nær árangri. Kannski ættu
þeir að drekka meira af íslenska
vatninu og anda dýpra að sér
fersku fjallalofti.
En úrtölufólk, sem sér glasið
alltaf hálftómt, hefur alltaf verið til.
Við hin tökum þátt í gleðinni, leyf-
um okkur að upplifa stemninguna
og vera hreykin af því að vera Ís-
lendingar. Við erum þrátt fyrir allt
að gera ýmislegt rétt.
Eftir Óla Björn
Kárason
» Það er ekki dramb-
semi eða hroki að
vera stoltur Íslend-
ingur. Hreykinn af því
ótrúlega afreksfólki sem
skarar fram úr á alþjóð-
legum vettvangi.
Óli Björn Kárason
Höfundur er alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins.
Eitthvað erum við að gera rétt
Morgunblaðið/Eggert
Það er með ólíkindum að 380 þúsund manna þjóð hafi á að skipa jafnmörgu afreksfólki í íþróttum og listgreinum og
raun ber vitni. … Þetta sýnir við Íslendingar sem þjóð erum að gera ýmislegt rétt, segir höfundur í grein sinni.