Morgunblaðið - 27.07.2022, Síða 15

Morgunblaðið - 27.07.2022, Síða 15
um sem á eftir fóru voru heim- sóknir Birnu og Harðar tíðar, enda kærkomnir gestir. Við minnumst samverustund- anna sem einkenndust af hlýju og kærleika með þakklæti. Við sendum Bjarna, Kristjáni, tengda- og barnabörnum og stórfjölskyldunni hugheilar sam- úðarkveðjur. Sigríður Ella, Bjarni Pétur og Sigrún Kristín Pollu- og Magnúsarbörn. Elsku Birna mín, nú hafa himnarnir opnast og geislar sól- arinnar leitt þig í faðm allra þeirra sem þú saknaðir svo sárt. Síðastliðna mánuði glímdir þú við erfið veikindi, sem að lokum tóku þig frá okkur. Ég á samt erfitt með að trúa því að þú sért virkilega farin frá okkur og allt í einu þurfi ég að tala um þig í þá- tíð. Þú varst nefnilega ein af þessum manneskjum sem ein- hvern veginn áttir bara alltaf að vera til, eilíf. Ég ferðast um í huganum og hugsa til allra góðu tímanna með þér og Herði. Sumar sögurnar sem þú sagðir mér eru minnis- stæðari en aðrar. Eins og til dæmis sagan af fyrstu ísskápa- kaupum ykkar Harðar. Tímarnir hafa svo sannarlega breyst og frásagnirnar um hörkuna og sparnaðinn sem þurfti á þeim tíma opnuðu augu mín fyrir hversu dugleg og samheldin þið hjónin voruð alla tíð. Sagan af heimasaumuðu gallabuxunum á drengina þína tvo fær mig líka alltaf til að brosa, enda vöktu þær buxur ekki mikla lukku hjá táningsstrákum sem vildu vera í nýjustu tískunni. En þetta voru aðrir tímar og þið húsmæður voruð af öðrum skala en gerist í dag, þið voruð ofurkonur. Ég minnist einnig allra frásagnanna um æskuárin þín á Drangsnesi, sögurnar um Ellu ömmu og Lár- us afa og svo mætti áfram telja. Það var svo gaman og fróðlegt að spjalla við ykkur hjónin um gamla tíma og það sem átti að vera stutt heimsókn endaði iðu- lega í 5 kaffibollum, 2000 kalorí- um af hnallþórum og þriggja tíma hlátrasköllum. Á síðastliðn- um árum hafa þetta verið fjöl- mörg símtöl okkar á milli vegna aðstæðnanna en hlátrasköllin voru ekkert minni. Þakklæti er mér efst í huga þegar ég kveð þig nú, elsku Bidda mín. Þakklæti, fyrir að hafa kynnst þér svona vel síðustu árin eftir að ég flutti aftur heim. Þakklæti, fyrir þína ómældu gæsku í minn garð og dætra minna. Þær elskuðu að fara til Biddu ömmu og Harðar að fá pönnukökur og annað heimabak- að og iðulega voru þær kvaddar með nestispoka af góðgæti. Þú varst ósérhlífin og þér fannst allt sem við gerðum svo merkilegt og aðdáunarvert en þér fannst þú nú ekkert hafa af- rekað af viti. Ég gat ekki annað en hlegið þegar þú talaðir svona, því það var svo fjarri lagi. Þú varst hörkudugleg, slóst aldrei slöku við og gekkst í öll verk, sí- bakandi og –þrífandi. Þú varst af gamla skólanum og betri hús- móður er erfitt að finna. Í minni síðustu heimsókn til þín á spítalann spurði hjúkrunar- fræðingurinn mig hvernig við værum tengdar. Eftir að ég út- skýrði að þú værir móðursystir mín og aukaamma, þá bættir þú við: „hún er líka bara vinkona mín“. Já, vinkonur vorum við og þessari setningu mun ég aldrei gleyma. Lífið er svo miklu tóm- legra í dag en það var í gær. Tár- in sem streyma niður vangann og þyngslin í brjósti mínu bera vott um þann mikla kærleik sem ég ber til þín. Bjarna, Nínu, Stjána, Gillu og fjölskyldum votta ég samúð. Erf- itt verður að fylla skarð Birnu í fjölskyldunni allri. Þín vinkona Málfríður Eva Jörgensen (Lillý Eva). MINNINGAR 15 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 2022 ✝ Bryndís Frið- riksdóttir fæddist á Selá á Ár- skógsströnd 28. desember 1943 og var hún fimmta í röðinni af níu systkina hópi. Hún lést í faðmi fjöl- skyldunnar á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri 17. júlí 2022. Foreldrar Bryndísar voru Friðrik Þorsteinsson, f. 15 ágúst 1905, d. 5. ágúst 1982, og Anna Soffía Sigurðardóttir, fædd 17. ágúst 1911, d. 3 mars 1983. Eftirlifandi eiginmaður Bryn- dísar er Rafn Gunnarsson, fæddur 25. mars 1944. Þau Bryndís og Rafn gengu í hjóna- band 14. maí 1967 og áttu þrjú börn saman, þau Hafdísi Björk, f. 1967, Gunnar, f. 1969 og Þorstein Frímann, f. 1971, fyrir átti Bryndís dótturina Valdísi Erlu Eiríks- dóttur, f. 1964. Barnabörn Bryndísar eru orðin 11 og barnabarnabörnin 9. Útförin fer fram í Akureyrar- kirkju í dag, 27. júlí 2022, klukkan 13. Yndisleg eiginkona mín og besti vinur til 55 ára, Binna, hefur lokið sínu jarðvistarlífi. Hún beið lægri hlut fyrir illvígum sjúkdómi eftir hetjulega baráttu. Það er sárt en svo fjölhæf var hún að hennar bíður örugglega hlutverk hinum megin. Mig langar að þakka henni fyrir hversu mikið hún gaf mér og mínu fólki og því fólki sem hún hafði samskipti við. Öll börnin, barnabörnin og barna- barnabörnin soguðust að henni frá því þau fyrst sáu hana og það hélst til hinsta dags. Hún var ein- staklega jákvæð og bjartsýn. Svartsýni var ekki leyfð í hennar huga. Margs er að minnast og fyrir utan heimilið má nefna útilegurn- ar með vinafólki og stórfjölskyld- unni þar sem Binna var hrókur alls fagnaðar og ævinlega var Bjössi, gítarinn hennar, nærri og þau héldu uppi gleðskapnum. Sama má segja um mörg afmæli og utanlandsferðir. Þegar við fórum að hægja á okkur varð golf aðaltómstundaiðj- an og eftir að ég hætti að geta slegið hélt hún áfram í golfinu og þar eignaðist hún margar nýjar vinkonur. Þá söng hún í áratugi með Kirkjukór Stærri-Árskógskirkju og var einnig mjög virk í starfi Ungmennafélagsins Reynis og ýmislegt fleira mætti telja upp. Með þessum fátæklegu orðum vil ég að leiðarlokum þakka henni fyrir að vera alltaf kletturinn minn, kletturinn í lífi fjölskyld- unnar, kletturinn sem alltaf stóð upp úr alveg sama á hverju gekk, hún gerði gott úr öllu og horfði bara á björtu hliðarnar. Það lýsir miklum mannkostum og gerði líf- ið okkar betra. Það var alltaf gott að koma heim og vita af henni þar. Þegar hinzta kvöldið kemur kveð ég lífsins strönd glaður, og í gullnu skini glitra sólarlönd. Þar sem rætast draumar dýrir dags, sem eitt sinn var. Þeir sem unnast hér í heimi hittast aftur þar. (ÓBG) Sofðu rótt, ástin mín. Rafn Gunnarsson. Elsku besta mamma okkar. Það er svo sárt og erfitt að hugsa til þess að þú sért ekki lengur með okkur og svo óraun- verulegt ennþá fyrir okkur að við skulum sitja saman og skrifa um þig nokkur minningarorð því í hugum okkar allra vorum við á leið í golf með þér síðar í haust þegar þú værir búin að ná þér. Þú varst engum lík með risastórt hjarta úr gulli og hugsaðir alltaf svo vel um allt og alla í kringum þig og máttir aldrei neitt aumt sjá, þá varst þú fyrst mætt á stað- inn og tilbúin í að gera allt sem í þínu valdi stóð til að létta undir al- veg sama hver átti í hlut. Heimili ykkar pabba var alltaf opið fyrir alla vini okkar systkinanna og all- ir alltaf velkomnir að gista og ósjaldan var búin til flatsæng á stofugólfinu í Svalbarði og mikið líf og fjör fram eftir kvöldi. Þú varst alltaf með opinn faðminn þegar barnabörnin og barna- barnabörnin komu í heimsókn, þá var byrjað á að fylla borðið af kræsingum, gefa ís, fara út í bíl- skúr og spila á orgelið eða þá að þú settist flötum beinum á gólfið með þeim að byggja úr lego og leika. Þú varst alltaf til staðar fyr- ir alla. Við erum svo þakklát fyrir allar góðu minningarnar sem við eigum með þér, ástina og um- hyggjuna sem þú sýndir öllum, já- kvæðnina og dugnaðinn og þú varst sko fyrirmyndin okkar allra. Við minnumst ferðalaganna, sum- arbústaðferðanna og samveru- stundanna á Selá sem við fórum í saman og alltaf varst þú hrókur alls fagnaðar, spilaðir á gítarinn Bjössa og við sungum saman og skemmtum okkur fram á nótt. Elsku mamma, það er svo ótal- margt sem við getum sagt en geymum það með okkur og yljum okkur við allar yndislegu minn- ingarnar sem við eigum um þig. Takk fyrir að vera besta mamma, amma, tengdamamma og langamma í heimi. Við elskum þig út í hið óendanlega og treyst- um því að nú líði þér betur og sért búin að finna góðan golfvöll sem við spilum saman síðar. Þín Valdís Erla, Hafdís Björk, Gunnar, Frímann og fjölskyldur. Elsku Binna amma, við erum öll svo þakklát og stolt af því að hafa átt þig að, hjartahlýrri og betri manneskju er vart hægt að finna. Heimilið hennar ömmu var alltaf opið fyrir okkur systkinin, vini okkar og alla þá sem vildu koma. Við ólumst að miklu leyti upp í Svalbarði sem var heimili ömmu og afa á Árskógssandi. Þar var alltaf mikið líf og fjör því það voru sjaldnast rólegheit í kring- um hana Binnu ömmu. Amma hafði alltaf tíma fyrir okkur barnabörnin á öllum tímum og var hægt að tala við hana um allt, hún hlustaði og fann svo það já- kvæða í öllu. Hún sá svo sannar- lega til þess að enginn væri svangur því alltaf byrjaði hún á því að bjóða okkur eitthvað gott að borða, og ekki var verra að það voru oftast til súkkulaðibitar í einni skúffunni og ís í frystinum. Eftir að amma og afi fluttu til Akureyrar í Huldugilið var engin breyting á gestrisni hennar, heimilið var alltaf opið og þá voru barnabörnin komin. Þau sóttu mikið í að fara til langömmu og langafa enda vafalaust fundið fyr- ir mikilli ást og þolinmæði. Eftir skóla var hjólað til ömmu til að spila við hana, fá ristaða brauðsneið, mjólkurglas eða kókómjólk og oftar en ekki ís eða hraunbita á eftir. Gjarnan var far- ið inn í bílskúr og spilað á hljóð- færi ýmist píanó eða gítar og sungið með, því amma var ein- staklega tónelsk. Fyrir yngstu börnin dró hún fram leikfangakassann og settist á gólfið með börnunum, talaði við þau og lék eins lengi og þau vildu. Einnig bauð hún börnunum með sér út á völl til að spila golf. Stundum var svo beðið um að fá að gista hjá ömmu Binnu og var það að sjálfsögðu aldrei neitt vandamál, allt var græjað á skot stundu og merktir tannburstar tilbúnir fyrir hvern og einn í skúffunni. Amma setti alltaf fólk- ið sitt í fyrsta sætið og hún kom þar á eftir, enda einstaklega um- hugað um að öllum öðrum liði vel- .Þrátt fyrir mikil veikindi síðustu vikur var jákvæðnin alltaf í for- grunni, það lýsir henni svo vel. Við minnumst ömmu með gleði, hlýju, jákvæðni og styrk! Við getum yljað okkur við allar góðu minningarnar um ókomna tíð. Við elskum þig af öllu hjarta að eilífu. Elvar Már, Margrét Ágústa og Aníta Rut. Í dag kveðjum við elsku Binnu okkar, miðjusystkinið í níu systk- ina hópi frá Selá á Árskógsströnd. Að skrifa minningarorð um hana er svo óraunverulegt, hún sem var svo full af lífsgleði og orku. Binna hafði einstaklega góða nærveru, hlýtt bros og mikið jafn- aðargeð. Hún var afar félagslynd og alltaf til í að aðstoða þá sem með þurftu og þess nutu margir. Vandamál voru ekki til í hennar orðabók, bara lausnir. það var alltaf mikið fjör og mikið sungið þegar við systkinin hittumst, þá var gítarinn tekinn fram og sá Binna um undirleik, hún kunni alla gömlu slagarana. Áhugamál- in voru mörg í gegnum árin, leik- list, kórsöngur og félagsstörf ým- iskonar. En það sem átti hug hennar seinni árin var golf og nutu þau Rabbi þess mjög að spila í góðra vina hópi bæði hér heima og erlendis, það eru vafalaust til margar góðar sögur úr þeim ferð- um. Eftir góðan dag á golfvellin- um var gott að setjast niður með krossgátublað og svo var gripið í prjóna yfir sjónvarpinu. Að redda hlutum með hraði vafðist ekki fyr- ir henni, t.d. að græja fjölskyld- una um miðja nótt fyrir óvænta ferð vestur á Ísafjörð. Þegar Binna greindist með krabbamein í september sl. var óhugsandi að þessi sterka kona fengi ekki lengri tíma, þetta hlyti að redd- ast. En tíminn var kominn og fal- lega ljósið hennar slokknaði. Við kveðjum elskaða systur og vott- um Rabba, börnum, tengdabörn- um og afkomendum öllum okkar dýpstu samúð. Systkinin frá Selá, Anna, Svanhildur Valdís, Soffía Sigrún, Þorsteinn Frey- gerður og makar þeirra. Við bræðradæturnar fædd- umst og ólumst upp á Árskógs- strönd og höfum því þekkst frá barnsaldri og átt ótal margar skemmtilegar samverustundir. Allir saumaklúbbarnir, böllin, ferðalögin o.m.fl. Minnisstætt er ferðalagið til Portúgal sem við fórum í ásamt Rabba og Gylfa. Þegar ég kom til ykkar Rabba í haust rifjuðum við upp þá ferð og hlógum mikið! Þegar við bjuggum báðar á Árskógssandi var sam- gangur mikill, mennirnir okkar oft á sjó og börnin gengu saman í Árskógsskóla. Einu sinni sem oft- ar komst þú til mín og við rædd- um atvinnumálin. Upp úr því stofnuðum við, ásamt Önnu Lilju frænku okkar, saumastofuna HAB og saumuðum ósköpin öll af flísfatnaði! Svo fluttum við til Ak- ureyrar og stofnuðum sauma- klúbb ásamt Rósbjörgu og Kollu Hilmis og þegar við hittumst þar vorum við í „dagvistun“, því við nenntum ekki að vaka eins lengi á kvöldin og áður, en alltaf jafn gaman. Vegna Covid höfum við ekki hist mikið síðustu tvö árin en síminn komið að góðum notum. Elsku Binna, takk fyrir að vera þú, jákvæð, góð og skemmtileg og takk fyrir allar samverustundirn- ar. Þín frænka og vinkona Hildur Marinósdóttir. Binna var vinkona okkar. Hún var mjög góð vinkona og hafði það til að bera sem fólk kýs helst af vinum sínum, jafnlyndi, jákvæðni og bjartsýni. Það var gott að vera í hennar návist. Nöldur og nei- kvæðni var ekki til í hennar orða- bók. Þegar við lítum yfir farinn veg minnumst við margra skemmti- legra og notalegra daga í útileg- um eða gleðskap þar sem Bjössi, gítarinn hennar, var einnig mætt- ur og gaf tóninn. Þau kunnu flest lög og texta og ef mikið stóð til og þurfti að yrkja brag í tilefni af- mælis eða annarra stórviðburða var vinkona okkar mjög liðtæk og þar með var einnig kominn undir- leikurinn. Eitt sinn sem oftar lá leið okkar saman í afmæli vina- fólks fyrir sunnan. Dagurinn var tekinn snemma og fyrsti áningar- staður vel fyrir hádegið var stytt- an af Stefáni G. á Vatnsskarði. Þar voru teknar upp samlokur og bjór. Það er í eina skiptið sem við minnumst þess að Binna sýndi neikvæðni því henni fannst bjór- tími varla kominn. Áður en nest- istíminn var liðinn hafði hún þó sæst á að kannski væri þetta bara í lagi! Hún var óhemju dugleg hann- yrðakona og prjónaði ógrynni af lopapeysum auk margs annars. Hún gaf mikið af sér og sinnti sínu fólki og vinum svo enginn var skilinn út undan. Hennar verður sárt saknað af mörgum en sárast- ur er auðvitað söknuður fjölskyld- unnar. Elsku Rabbi, við sendum þér og fjölskyldunni þinni okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Rósbjörg, Birgir, Kolbrún og Viðar. Bryndís Friðriksdóttir er farin frá okkur, of snemma. Þessi illvígi sjúkdómur hafði yfirhöndina. Ósanngjarnt. En við deilum ekki við dómarann, því það er ekki á okkar valdi að ákveða. Við Binna vorum bræðradætur og Rafn maður hennar er systursonur Sveins mannsins míns. Við vorum öll fædd og uppalin hér á Ár- skógsströnd og eðlilega voru tals- verð samskipti á margan hátt. Fé- lagslíf var mikið á árum áður og tókum við öll þátt í því á margan hátt, ekki síst á vegum ung- mennafélagsins. Það væri of löng saga að rekja hana alla hér, en það er eitt sem mig langar til að þakka Binnu sérstaklega fyrir og það er starf hennar í þágu kórs Stærri-Árskógskirkju. Þakklætið kemur reyndar frá öllum þeim kórfélögum sem Binna hefur starfað með. Lengi hefur kór starfað við kirkjuna hér, en á ein- um tímapunkti var þörf á stofna þennan kór á löglegan hátt. Það var gert 31. mars 1974. Binna var ein af stofnfélögunum og byrjaði þar sem ritari. Formaður var hún í 11 ár, ritari í 8 ár og oft í vara- stjórn og ótal sinnum í nefndum. Fyrr á árum vorum við svo hepp- in að hafa marga kórfélaga og góða söngstjóra. Meira að segja var þá Samkór Árskógsstrandar stofnaður og söng um tíma hér og þar á Norðurlandi. Söngferðir hafa verið farnar þrisvar til ann- arra landa (kórfélagar og makar) stundum hefur Hríseyjarkórinn sungið þar með okkur. Fyrsta ferðin var til Danmerkur árið 1997, svo til Þýskalands 2002 og var þá Binna formaður í bæði skiptin og mæddi mikið á henni þar. Þriðja söngferð til útlanda var svo til Færeyja 2005. Kirkju- kórinn var um nokkurra ára skeið með skemmtun í Árskógi um jóla- leytið, söng og önnur skemmtiat- riði ásamt dansleik og var Binna þar oft ein af driffjöðrunum, en hún var ætíð svo jákvæð og í góðu skapi. Eftir eina slíka skemmtun 1983 varð einum kórfélaganum að orði: Binna litla létt í lund leikur hún og syngur, söngfélögum styttir stund og leikur við hvern sinn fingur. Þessi vísa segir svo mikið. Við komum svo oftar en ekki saman kórfélagar og makar, kannski á aðventukvöld eða annað. Þá voru fundin upp skemmtiatriði og nokkrum sinnum fengum við vís- ur eða bragi frá Binnu. Makarnir voru okkur oft innan handar með fjáröflun eða annað og stofnuðu félagsskap, sem þau nefndu Bak- landið. Já það var oft líf og fjör í kórastarfinu og átti Binna stóran þátt í því. Eitt sinn þegar rætt var um klæðnað kórfélaga, var ákveð- ið sauma kjóla á konurnar. Binna keypti efnið og sneið alla kjólana, en við saumuðum hver og ein. Ekkert mál. Rabbi og Binna áttu lengi heima á Litla-Árskógssandi, en fluttu til Akureyrar í júní 2003. Binna kom samt oft þaðan ásamt fleirum frá Akureyri á söngæfing- ar og athafnir í kirkjunni okkar, en eðlilega var það ekki hægt núna síðustu árin. Hjartans þakk- ir fyrir allt. Innilegar samúðarkveðjur frá okkur Sveini til Rabba og allra barnanna og fjölskyldna, til Dísu og Harðar og afkomenda og einn- ig samúðarkveðjur frá Kór Stærri-Árskógskirkju. Megi Bryndís okkar allra hvíla í friði. Ása Marinósdóttir. Bryndís Friðriksdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, STEINUNN SIGURMUNDSDÓTTIR, Álfaheiði 8B, Kópavogi, lést á heimili sínu fimmtudaginn 21. júlí. Útför fer fram frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 2. ágúst klukkan 13. Sigmundur Hávarðsson Svala Leifsdóttir Erna Hávarðsdóttir Hávarður Örn Hávarðsson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, SIGURLAUG GUÐMUNDSDÓTTIR, lést þann 25. júlí. Útför verður auglýst síðar. Þórey S. Torfadóttir Valgerður Torfadóttir Guðmundur Torfason og fjölskyldur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.