Morgunblaðið - 27.07.2022, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 27.07.2022, Blaðsíða 20
20 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 2022 Faxafeni 14 108 Reykjavík www.z.is Páll Guðfinnur Guðmundsson 70 ÁRA Páll er Grundfirðingur og hefur búið alla tíð í Grundarfirði. Páll byrjaði ungur að vinna, fór 16 ára á sjó með föður sínum og var 18 ár til sjós hjá Guðmundi Runólfssyni hf. Þegar hann kom í land starfaði hann sem netagerðamaður þar til hann hætti störfum. Áhugamál Páls eru golf og veiðar. Hann stofnaði golfklúbbinn Vestarr og kom einnig skíðalyftunni í Grundar- firði á laggirnar. FJÖLSKYLDA Eiginkona Páls er Guðbjörg Hringsdóttir, f. 1955, fv. móttökuritari á heilsugæslunni. Synir þeirra eru Hringur, f. 1974, og Guð- mundur, f. 1978. Barnabörnin eru þrjú. Foreldrar Páls voru hjónin Guðmundur Runólfsson, f. 1920, d. 2011, út- gerðarmaður í Grundarfirði, og Ingibjörg Kristjánsdóttir, f. 1922, d. 2009, húsmóðir. Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Þeim mun meira sem þú seilist eft- ir heiminum öllum, þeim mun hamingju- samari verður þú. Gefðu þér góðan tíma til þess að undirbúa þig. 20. apríl - 20. maí + Naut Láttu fara lítið fyrir þér í dag, því öll óþarfa athygli fer illa í þig. En aðalmálið er að gamanið sé græskulaust og að menn hafi í huga, að öllu gamni fylgir alvara. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Það er einhver í umhverfi þínu sem kvartar og þú tekur á því með ástúð. Reyndu að setja þér takmörk sem þú getur ráðið við. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Það krefst hugrekkis að steyta hnefann og segja að nú sé nóg komið og þú eigir betra skilið. Gott samtal við foreldri eða eldri og reyndari manneskju yrði áhrifaríkt. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Þú munt eiga rólegan dag og gætir fengið óvænta heimsókn sem gleður þig. Vertu þér meðvitandi um hvernig þú lítur út, hvað þú gerir og segir. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Það er eitt varðandi hið fullkomna samband, það er ekki til. Nú er rétti tíminn til að ganga að samningaborði. 23. sept. - 22. okt. k Vog Það er óhugsandi að lifa í þessum heimi án þess að þurfa að taka tillit til gild- ismats annarra. Efniviðurinn er aukaatriði, málið er að þú fáir skýrari sýn á hlutina. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Grundvallarspurningar hvíla á þér. Best er er að hafa allan fyrirvara á hlutunum og leyfa þeim að sanna sig. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Þú slærð rækilega í gegn ef þú hefur spjallið í lágmarki og kemur þér að því sem skiptir máli. Gefðu þér því nægan tíma. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Hafðu nógu hljótt til að heyra hljóðið í jörðinni snúast. Heimsæktu lista- gallerí, listaverslun eða listasafn til þess að svala áhuga þínum á menningu. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Það er farsælla að segja hug sinn en að byrgja hlutina inni. Reyndu að hjálpa eftir bestu getu en varastu að ganga of nærri sjálfum þér. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Forðastu að deila við vini þína og kunningja. Gættu þess bara að gamanið sé græskulaust og ekki á annarra kostnað. Áhugamál Ögmundar eru mörg. Hann var varaformaður stjórnar Skíðasambands Íslands um 6 ára skeið og hefur starfað innan skíða- hreyfingarinnar í mörg ár. „Ég hef mjög gaman af því að skíða, jafnt á brautarskíðum, gönguskíðum og sér- staklega fjallaskíðum. Alls konar útivist og ferðalög heilla mig og hef ég gaman af alls konar hreyfingu. Ég hef mikinn áhuga á siglingum og hef þrisvar sinnum siglt á skútu sem er í eigu fjölskyldunnar frá Akureyri til Grænlands og siglt um Scoresby- sund. Ég hef mjög gaman af mat og að elda og geri mikið af því. Ég les mat- reiðslubækur mér til skemmtunar og hef gaman af því að fara á góða Lanka, í Malasíu og við Karíbahafið. Eins hef ég unnið sem ráðgjafi í verkefnum fyrir Alþjóðabankann í Víetnam og Albaníu.“ Ögmundur kann vel við sig hjá Fiskistofu, en hlutverk Fiskistofu er að sjá um stjórnsýslu- og eftirlits- þátt fiskveiðistjórnunar en Hafrann- sóknastofnun hefur rannsóknaþátt- inn með höndum. „Það hefur verið mjög áhugavert og gaman að starfa hjá Fiskistofu. Þetta er öflug stofn- un og mikið að gerast þar. Við erum að endurnýja tölvukerfin hjá okkur og auka sjálfvirkni. Við erum einnig að innleiða rafrænt eftirlit og vinna meira við greiningar á gögnum sem við búum yfir. Við tókum upp dróna- flug fyrir rúmu ári og höfum staðið báta óþarflega oft að brottkasti.“ Ö gmundur Haukur Knútsson er fæddur 27. júlí 1962 á Akureyri og ólst þar upp í Suður- Brekkunni. „Við fjöl- skyldan vorum mjög mikið á sumrin í Grenivík, vorum þar með sumar- bústað og ég spilaði fótbolta með Magna á Grenivík. Ég var svo á skíð- um á veturna, æfði ekki en var dug- legur að stunda skíði. Faðir minn rak frystihúsið á Grenivík og segja má að ég hafi alist upp í frystihúsinu, en frá 12 ára aldri vann ég öll sumur þar. Ég vann þar líka sem verkstjóri eftir að ég hóf nám í Fiskvinnslu- skólanum og var til ársins 1987.“ Ögmundur gekk í Barnaskóla Akureyrar og svo Gagnfræðaskól- ann. Hann fór síðan í raungreina- deild í Iðnskólanum á Akureyri og kláraði Fiskvinnsluskólann, bæði fiskvinnslumann og fisktækni árið 1984. Hann var í fyrsta árganginum sem útskrifaðist frá Háskólanum á Akureyri í iðnrekstrarfræði 1989 og lauk síðan B.Sc. í viðskiptafræði árið 1993. Í framhaldi fór hann í meist- ara- og doktorsnám við háskólann í Edinborg, þaðan sem hann útskrif- aðist með doktorspróf í viðskipta- fræðum árið 2001. Eftir nám við Háskólann á Akur- eyri (HA) starfaði Ögmundur þar við kennslu til ársins 1995, þegar fjöl- skyldan flutti til Edinborgar. Eftir doktorsnámið starfaði hann við Há- skólann á Akureyri, fyrst sem fram- kvæmdastjóri stefnumótunar og starfsþróunar frá 2001 til 2006 og síðar forstöðumaður Rannsókna- stofnunar HA (RHA) í tvö ár. Frá 2012 til 2015 starfaði hann sem for- seti Viðskipta- og raunvísindasviðs HA. Frá 2015 til 2019 starfaði hann sem dósent við HA og sem sjálf- stæður ráðgjafi til ársins 2020, þegar hann tók við núverandi starfi sem Fiskistofustjóri. „Í störfum mínum hjá HA starfaði ég mikið í málefnum tengdum sjávarútvegi og sérstaklega í þróunarlöndunum. Ég starfaði mikið fyrir Sjávarútvegsskóla Sameinuðu þjóðanna, sem starfræktur er í Haf- rannsóknastofnun. Þar hef ég tekið þátt í ýmsum verkefnum, m.a. á Srí Ögmundur Knútsson fiskistofustjóri – 60 ára Fjölskyldan Stödd í Búrgúndi rétt vestur af vínræktarsvæðinu Beaune. Skoðar vínmenninguna í Búrgúndí Hjónin Ögmundur og Hildigunnur stödd á Alicante í júní síðastliðnum. Afmælisbarnið Ögmundur í Bakka- gerði á Borgarfirði eystra í sumar. Til hamingju með daginn Mosfellsbær Erik Rúnar Vú Ólivers- son fæddist 23. desember 2021 kl. 16.34. Hann vó 3.530 g og var 50 cm langur. Foreldrar hans eru Óliver Tung Vú og Alexandra Sigrún Kristínar- dóttir. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.