Morgunblaðið - 27.07.2022, Síða 22
22 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 2022
Ellefu leikmenn úr Bestu deild
karla verða í leikbanni í næsta leik
síns liðs í deildinni eftir verslunar-
mannahelgina vegna gulra eða
rauðra spjalda.
Það eru Guðmundur Magnússon
og Alex Freyr Elísson úr Fram,
Bryan Van Den Bogaert og Ívar
Örn Árnason úr KA, Hallur Hans-
son og Ægir Jarl Jónasson úr KR,
Arnór Smárason og Birkir Heim-
isson úr Val, Davíð Ingvarsson úr
Breiðabliki, Steven Lennon úr FH
og Sindri Kristinn Ólafsson, mark-
vörður Keflvíkinga.
Ellefu í banni í
næstu umferð
Ljósmynd/Kristinn Steinn
Bann Guðmundur Magnússon miss-
ir af næsta leik Framara.
Knattspyrnukonan Anna Björk
Kristjánsdóttir hefur framlengt
samning sinn við ítalska félagið Int-
er Mílanó og leikur áfram með því á
komandi tímabili. Anna kom til liðs
við Inter fyrir síðasta tímabil en
missti af fyrri hluta þess vegna
meiðsla. Hún spilaði átta af síðustu
tíu leikjum liðsins í A-deildinni, alla
nema einn í byrjunarliðinu. Inter
hafnaði í fimmta sæti deildarinnar.
Anna er 32 ára og lék áður með Le
Havre, Selfossi, PSV Eindhoven,
Limhamn, Örebro, Stjörnunni og
KR. Hún hefur spilað 44 landsleiki.
Ljósmynd/Inter
Mílanó Anna Björk Kristjánsdóttir
lék með Inter á síðasta tímabili.
Anna áfram í
Inter Mílanó
TNS – VÍKINGUR 0:0
Gult spjald: Júlíus Magnússon og Niko-
laj Hansen.
Dómari: Ivaylo Stoyanov, Búlgaríu.
Áhorfendur: Um 1.000.
_ Víkingur áfram, 2:0 samanlagt.
Víkingur: (4-4-2) Mark: Ingvar Jóns-
son. Vörn: Karl Friðleifur Gunnarsson,
Oliver Ekroth, Kyle McLagan, Logi
Tómasson. Miðja: Erlingur Agnarsson
(Davíð Örn Atlason 89), Viktor Örlygur
Andrason, Júlíus Magnússon, Ari Sigur-
pálsson (Helgi Guðjónsson 66). Sókn:
Kristall Máni Ingason (Danijel Dejan
Djuric 77), Birnir Snær Ingason (Niko-
laj Hansen 66).
_ Danijel Dejan Djuric kom inn á og
spilaði sinn fyrsta Evrópuleik.
EVRÓPUKEPPNI
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Víkingar tryggðu sér sæti í þriðju
umferð Sambandsdeildar karla í fót-
bolta í gærkvöld á allsannfærandi
hátt. Þeir sóttu velsku meistarana
The New Saints heim til Oswestry á
Englandi og liðin gerðu þar marka-
laust jafntefli.
Það var meira en nóg fyrir Vík-
inga sem unnu fyrri leikinn í Foss-
voginum 2:0 með tveimur mörkum
Kristals Mána Ingasonar og þeir
unnu því einvígið 2:0 samanlagt.
Víkinga bíður nú væntanlega ein-
vígi við pólsku meistarana Lech
Poznan í þriðju umferðinni. Lech á
reyndar eftir að spila seinni leik sinn
gegn Dinamo Batumi á útivelli í
Georgíu á morgun en eftir 5:0 sigur
á heimavelli í fyrri leiknum er nán-
ast öruggt að Víkingar leika gegn
Lech dagana 4. og 11. ágúst. Fyrri
leikurinn verður á heimavelli Vík-
inga en sá seinni fer fram í Poznan í
Póllandi, eða þá í Georgíu ef einhver
ótrúleg úrslit líta dagsins ljós í leik
liðanna á morgun.
Víkingar náðu í eitt stig til við-
bótar fyrir Ísland á styrkleikalista
UEFA. Þar með er árangur íslensku
liðanna í ár orðinn sjö sigrar, tvö
jafntefli og tvö töp í ellefu leikjum í
Evrópukeppni.
_ Pablo Punyed lék ekki með Vík-
ingum í gær en hann var kominn
með þrjú gul spjöld í keppninni og
þurfti því að taka út leikbann.
_ Viktor Örlygur Andrason er
eini leikmaður Víkings sem er á
hættusvæði vegna spjalda. Hann var
með tvö gul fyrir leikinn í gær en
bætti ekki við.
_ Kristall Máni Ingason lék sinn
síðasta leik með Víkingi í þessari
Evrópukeppni en hann fer til Rosen-
borg í Noregi um mánaðamótin.
Kristall skoraði fimm mörk í Evr-
ópuleikjunum, hann er markahæst-
ur Víkinga frá upphafi í Evrópu-
keppni og þetta var fyrsti
Evrópuleikur hans þar sem hann
náði ekki að skora mark.
_ Þetta er í fyrsta sinn í tíu Evr-
ópuleikjum liða frá Wales og Íslandi
þar sem íslenska liðið nær ekki að
sigra. En í öll fimm skiptin hefur
fulltrúi Íslands slegið út fulltrúa Wa-
les. Það höfðu Stjarnan, Fram, FH
og ÍA öll gert á undan Víkingum.
_ Næst er röðin komin að Blikum
sem fóru til Svartfjallalands í gær og
mæta þar Buducnost á morgun.
Tvær Evrópu-
vikur enn
framundan
Morgunblaðið/Óttar Geirsson
Fyrirliðinn Júlíus Magnússon og félagar í Víkingi eiga enn eftir minnst tvo
Evrópuleiki í viðbót við þá sex sem þeir hafa nú spilað á rúmum mánuði.
- Víkingar komnir í 3. umferð eftir
markalaust jafntefli í Wales
Lengjudeild karla
Fjölnir – Fylkir......................................... 0:2
Selfoss – Afturelding................................ 1:4
KV – Kórdrengir ...................................... 2:2
Staðan:
Fylkir 14 9 3 2 39:15 30
HK 13 9 1 3 28:17 28
Fjölnir 14 7 2 5 32:23 23
Grótta 13 7 1 5 28:18 22
Afturelding 14 6 4 4 28:22 22
Selfoss 14 6 3 5 25:23 21
Vestri 13 5 4 4 22:30 19
Grindavík 13 4 5 4 22:20 17
Kórdrengir 14 4 5 5 20:24 17
Þór 13 4 2 7 21:29 14
KV 14 2 2 10 18:36 8
Þróttur V. 13 1 2 10 5:31 5
Lengjudeild kvenna
Grindavík – Víkingur R ........................... 0:1
HK – Tindastóll ........................................ 1:1
Staðan:
FH 10 8 2 0 33:5 26
HK 12 8 2 2 22:10 26
Tindastóll 12 7 4 1 18:7 25
Víkingur R. 11 7 1 3 21:13 22
Fjarð/Hött/Leik. 11 6 3 2 24:13 21
Grindavík 12 3 2 7 8:21 11
Fylkir 10 2 3 5 7:14 9
Augnablik 10 3 0 7 11:21 9
Fjölnir 11 1 1 9 6:25 4
Haukar 11 1 0 10 7:28 3
Meistaradeild karla
2. umferð, seinni leikir:
AEK Larnaca – Midtjylland ................... 1:1
- Elías Rafn Ólafsson varði mark Midt-
jylland í leiknum.
_ Midtjylland áfram eftir vítaspyrnu-
keppni, 2:2 (4:3) samanlagt.
Plzen – HJK Helsinki .............................. 5:0
_ Plzen áfram, 7:1 samanlagt.
Sheriff Tiraspol – Maribor ...................... 1:0
_ Sheriff áfram, 1:0 samanlagt.
Dudelange – Pyunik Jerevan .................. 1:4
_ Pyunik áfram, 4:2 samanlagt.
Shamrock Rovers – Ludogorets ............. 2:1
_ Ludogorets áfram, 4:2 samanlagt.
Shkupi – Dinamo Zagreb......................... 0:1
_ Dinamo áfram, 3:2 samanlagt.
Sambandsdeild karla
2. umferð, seinni leikir:
Lincoln Red Imps – Tobol ....................... 0:1
_ Tobol áfram, 3:0 samanlagt.
Ballkani – La Fiorita................................ 6:0
_ Ballkani áfram, 10:0 samanlagt.
The New Saints – Víkingur ..................... 0:0
_ Víkingur áfram, 2:0 samanlagt.
Svíþjóð
B-deild:
Öster – Eskilstuna ................................... 3:2
- Alex Þór Hauksson hjá Öster var í leik-
banni vegna gulra spjalda.
Örgryte – Västerås.................................. 1:1
- Brynjar Björn Gunnarsson þjálfar Ör-
gryte.
>;(//24)3;(
Ólympíumót æskunnar
U17 karla, leikið í Slóveníu:
Ísland – Danmörk................................. 20:30
_ Ísland er með tvö stig eftir tvo leiki og
mætir Spáni í dag.
E(;R&:=/D
KNATTSPYRNA
1. deild karla, Lengjudeildin:
Grindavík: Grindavík – Þór ...................... 18
Kórinn: HK – Grótta ............................ 19.15
Ísafjörður: Vestri – Þróttur V.................. 20
2. deild karla:
Ólafsfjörður: KF – Haukar....................... 18
Njarðvík: Njarðvík – Víkingur Ó ........ 19.15
Húsavík: Völsungur – KFA................. 19.15
Þorlákshöfn: Ægir – Reynir S............. 19.15
Egilsstaðir: Höttur/Huginn – Magni.. 19.15
ÍR-völlur: ÍR – Þróttur R .................... 19.15
3. deild karla:
Höfn: Sindri – KFS ................................... 16
Skessan: ÍH – Dalvík/Reynir .............. 19.15
Garður: Víðir – Augnablik ................... 19.15
Akranes: Kári – Kormákur/Hvöt........ 19.15
Hlíðarendi: KH – KFG ........................ 19.15
Grafarvogur: Vængir J. – Elliði .......... 19.15
1. deild kvenna, Lengjudeildin:
Kópavogur: Augnablik – Fjölnir......... 19.15
Árbær: Fylkir – Haukar ...................... 19.15
Kaplakriki: FH – Fjarð/Hött/Leikn ... 19.15
Í KVÖLD!
Undanúrslit
England – Svíþjóð .................................... 4:0
Undanúrslit í kvöld:
Þýskaland – Frakkland........................ 19.00
Úrslitaleikur á sunnudag:
Enlgand – Þýskaland/Frakkland........ 16.00
Markahæstar á EM:
Beth Mead, Englandi.................................. 6
Alexandra Popp, Þýskalandi ...................... 4
Alessia Russo, Englandi ............................. 4
Grace Geyoro, Frakklandi.......................... 3
EM KVENNA 2022
Fylkir vann gríðarlega mikilvægan
útisigur á Fjölni í toppslag liðanna í
1. deild karla í fótbolta í Grafarvogi
í gærkvöld, 2:0.
Danski framherjinn Mathias
Laursen skoraði bæði mörk Fylkis
sem þar með fór uppfyrir HK og í
efsta sæti deildarinnar. Fjölnir er
nú sjö stigum á eftir Fylki en hefði
komist á hæla Árbæinga með sigri í
gærkvöld.
HK mætir Gróttu í kvöld og get-
ur þá endurheimt efsta sætið en
Fjölnir og Grótta eru einmitt liðin
sem koma næst á eftir Fylki og HK í
toppbaráttunni og því um afar
mikilvæga umferð að ræða með
innbyrðis leikjum þessara fjögurra
liða.
Afturelding er á gríðarlegri sigl-
ingu og vann þriðja leikinn í röð,
alla á útivöllum, 4:1 á Selfossi, og
hefur skorað þrettán mörk í þess-
um þremur leikjum. Belginn Mar-
ciano Aziz hefur heldur betur
reynst Mosfellingum vel en hann
skoraði tvö mörk í gær og hefur
gert fimm mörk í fyrstu þremur
leikjum sínum með liðinu.
Gísli Martin Sigurðsson og Sævar
Atli Hugason skoruðu hin tvö
mörkin og Afturelding komst upp-
fyrir Selfoss og í fimmta sætið með
sigrinum. Selfoss hefur á sama tíma
gefið eftir og tapað þremur leikjum
í röð eftir að hafa verið á toppi
deildarinnar framan af sumri.
Valdimar Jóhannsson skoraði eina
mark Selfyssinga.
Grímur Ingi Jakobsson tryggði
KV stig þegar hann jafnaði gegn
Kórdrengjum, 2:2, í uppbótartíma í
Vesturbænum. Magnús Dagbjarts-
son skoraði fyrsta markið fyrir KV
en Axel Freyr Harðarson síðan tvö
fyrir Kórdrengi. Staða KV er áfram
erfið í fallsæti, sex stigum frá því að
komast þaðan.
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Grafarvogur Mathias Laursen liggur á vellinum í leik Fjölnis og Fylkis en
hann skoraði bæði mörk Árbæjarliðsins í mikilvægum sigri.
Fylkir í efsta sæti og
flug á Aftureldingu