Morgunblaðið - 27.07.2022, Síða 24
24 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 2022
Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is
Fékk bíllinn
ekki skoðun?
Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl
Sameinuð gæði
BJB-Mótorstilling þjónustar
flesta þætti endurskoðunar
anngjörnu verði og að
ki förum við með bílinn
n í endurskoðun, þér
kostnaðarlausu.
á s
au
þin
að
Jóna Gréta Hilmarsdóttir
jonagreta@mbl.is
„Formið er miklu meira lifandi
heldur en í venjulegri hljóðbók,“
segir Áslaug Torfadóttir, höfundur
Skersins, sem er ný íslensk hljóð-
sería í sex hlutum á Storytel.
Hljóðseríuna skrifaði hún ásamt
maka sínum, Ragnari Egilssyni, en
þau reka saman þýðingarfyrirtækið
Fjaðurpennann. Ragnar og Áslaug
unnu með Skerinu hugmynda-
samkeppni Storytel, Eyrað, árið
2021. „Skerið var fyrsta skapandi
verkefnið okkar saman og það
gekk framar vonum. Við vorum
ekki sammála um allt en unnum vel
úr því. Þetta var ótrúlega skemmti-
legt ferli,“ segir Áslaug.
Segir hún Skerið vera dulúðlegt
verk með gamansömum tón:
„Hljóðserían fjallar um Ása, sem er
íslenskur karlmaður að nálgast
miðjan aldur og er dæmi um svo-
kallaðan „sjomla“. Hann er búinn
að klúðra öllu í lífinu en er alltaf
hress, kannski af því hann er á
flótta undan raunveruleikanum. Ási
fer í frí til Tenerife með vini sínum
Pésa, þar sem þeir fara á djammið
saman. Morguninn eftir vaknar Ási
á nýjum stað, sem hann þekkir
ekki. Hann neyðist til að finna út
úr því hvar hann er og hittir fólk
sem er ekki allt sem það er séð.
Eyjan, sem hann virðist ekki kom-
ast af, á sér dularfulla fortíð og það
verður fljótt ljóst að Ási er í mikill
hættu.
Þetta eru sex þættir og hver
þáttur er tæpur klukkutími, þannig
þetta er alveg feikinóg af efni fyrir
fólk sem er í sumarfríi. Þú getur
hlustað á Skerið út í garði, í bíl-
ferðinni, heita pottinum eða hvar
sem er,“ segir Áslaug.
Leiddist í fríi og skrifaði seríu
Spurð, hvaðan hugmyndin að
sögunni sé fengin, segir Áslaug:
„Við Ragnar vorum í fríi á Tenerife
og bókuðum aðeins of langt frí. Við
erum ekki með börn og spilum ekki
golf, þannig að okkur var hálfpart-
inn farið að leiðast. Við sáum þá
auglýsinguna um hugmynda-
samkeppni Storytel og fórum að
hugsa í kringum það, þar sem við
vorum á Tenerife í þessum
aðstæðum. Við veltum fyrir okkur
þessari sönnu íslensku týpu sem
Ási er og hvernig hún myndi
bregðast við þessum aðstæðum og
handritið fæddist út frá því.“
Áslaug segir Skerið líkjast frek-
ar útvarpsleikhúsi en bók: „Skerið
er hljóðsería en ekki bók. Hand-
ritið er leikið og hljóðheimurinn,
þ.e. umhverfis- og náttúruhljóðin,
leika mun veigameira hlutverk en í
venjulegum hljóðbókum sem eru
lesnar.“
Að sögn Áslaugar sá Storytel um
framleiðsluna, sem er ekki lítil og
tekið var upp í hljóðveri Storytel í
Skeifunni. Hallveig Kristín Eiríks-
dóttir leikstýrði. Haraldur Ari Stef-
ánsson leikur aðalpersónuna, Ása,
en með önnur hlutverk fara
Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir
sem Hildur, Guðmundur Ingi
Þorvaldsson sem Leifur, Stefán
Hallur Stefánsson sem Eyvindur
og Svandís Dóra Einarsdóttir sem
Rebekka.
Spurð hvort þau hefðu verið með
einhverja leikara í huga þegar þau
skrifuðu handritið, segir Áslaug:
„Nei, en eftir því sem við skrif-
uðum meira og fórum að kynnast
persónunum betur, þá fór maður að
heyra ákveðnar raddir. Við fengum
að hafa skoðun á leikaravalinu og
erum mjög ánægð með þá sem við
fengum. Það er þarna valinn maður
í hverju rúmi, sem allir leggja sig
alla fram. Það hefur verið rosalega
skemmtilegt að sjá og heyra sög-
una lifna við.“
Kvikmyndahandrit á frumstigi
Að sögn Áslaugar stefna þau
Ragnar ekki á að gera framhald af
hljóðseríunni: „Sögu Skersins er
lokið en okkur fannst mjög
skemmtilegt að vinna í þessu formi
og erum opin fyrir því að vinna
fleiri hljóðseríur. Okkur langar hins
vegar að færa okkur yfir í kvik-
mynda- og sjónvarpshandrit og
erum að gera það. Við erum með
hugmynd að kvikmyndahandriti
sem við erum að fara að vinna að
og erum því hvergi af baki dottin.
Þetta handrit er á frumstigi en
okkur langar svolítið að halda
áfram að skoða íslenskar erkitýpur
og þar sem Ási í Skerinu er
kannski svolítill aumingi, þá langar
okkur núna að skoða þá sem eru
það ekki, að minnsta kosti ekki
utan frá séð. Við ætlum að færa
okkur yfir í viðskiptaheiminn og
skoða týpurnar þar. Okkur finnst
líka áhugavert að sjá og skoða
Íslendinga í erlendum aðstæðum
og sýna þá með augum útlendinga.
Við bjuggum bæði lengi erlendis og
það er svo skemmtilegt, þegar
maður kemur aftur heim, því þá
fær maður aðra sýn á hlutina
hérna heima,“ segir Áslaug.
Svokallaður „sjomli“ söguefni Skersins
- Sex þátta hljóðsería, Skerið, eftir Áslaugu Torfadóttur og Ragnar Egilsson, komin á Storytel
- Skerið var sigurvegari Eyrans, hugmyndasamkeppni Storytel, 2021 - Meira lifandi en hljóðbók
Hljóðheimur „Skerið var fyrsta skapandi verkefnið okkar saman og það gekk framar vonum,“ segir Áslaug Torfa-
dóttir sem ásamt Ragnari Egilssyni vann Eyrað árið 2021. Saman reka þau þýðingarfyrirtækið Fjaðurpennann.
Sýning með verkum Arnar Karls-
sonar hefur verið opnuð í Listamönn-
um galleríi við Skúlagötu. Sýningin
stendur til 30. júlí og er opin virka
daga kl. 9-18 og
laugardaga kl. 12-
16.
Níels Hafstein
á Safnasafninu
skrifar um Örn í
sýningarskránni.
Þar kemur fram
að Örn hafi unnið
að myndlist frá
unglingsaldri og
haldið fyrstu
einkasýningu sína í Jónshúsi í Kaup-
mannahöfn árið 1977. Næstu árin
sýndi hann víða, ásamt
því að semja og spila
tónlist með gjörn-
ingasveitinni Kamar-
orghestar Jónasar Vest.
„Þótt framlag Arnar
til íslenskrar myndlistar
hafi náð athygli ein-
stakra hópa, sem skynja
hreyfingar listarinnar,
þá er því ekki að leyna
að flestir fjölmiðlar og
gagnrýnendur snið-
gengu sýningar hans.
Það er skaði því verk
hans hafa einlæga skírskotun í umrót
ríkjandi samtíma og byltingar-
kenndar væntingar fólks um réttlát-
ari heim, þar sem borin er virðing
fyrir manninum sem persónu með
lýsandi einkenni og sjálfstæði til þess
lífs sem hann velur sér. Í höfund-
arverki Arnar eru teikningar í heftum
og gormabókum fyrirferðarmiklar,
klippimyndir úr fundnu efni auk staf-
rænna verka svo þúsundum skiptir.
Öll bera þau vott um ótrúlega vinnu-
semi og frábæra leikni í samsetningu
ólíkra efnisþátta. Síðustu 30 árin hef-
ur Örn gert raðir af bókverkum með
rímuðum setningum sem hann kallar
Nonsens kveðskap eða Firrur. Í öðr-
um bókverkum er prentað efni klippt
niður svo úr verða ljóð, klipphendur
og dödur. Verk Arnar kallast á við
strauma jaðarmenningar á 7. og 8.
áratugum liðinnar aldar og endur-
spegla eins konar neðanjarðar-
hugmyndafræði sem á ef til vill rætur
að rekja til framúrstefnulistar fyrstu
ára 20. aldar og þá sérstaklega dada-
isma og súrrealisma.“
Í grein Níels kemur
fram að vorið 2021 hafi
Örn ánafnað Safnasafn-
inu við Svalbarðseyri
meginhluta verka sinna.
„Við talningu kom í ljós
að tölvuklipp eru 6.035,
en önnur verk áætluð um
4.000. Þar má nefna
teikningar og klippi-
myndir úr fundnu efni,
bókverk og ýmsar mynd-
og hljóðútgáfur. Sett var
upp lítil sýning á
pappírsandlitum og grímum í safninu
árið 2020 til að gefa fólki kost á að
kynnast hugmyndum og útfærslum
höfundar. Árið 2024 verður list Arnar
kynnt nánar í safninu og almenningi
einnig gefinn kostur á því síðar að
kynnast verkum hans á breiðari vett-
vangi,“ skrifar Níels.
Vænting um
réttlátari heim
- Örn Karlsson sýnir í Listamönnum
Bretar munu hýsa Eurovision á
næsta ári fyrir hönd Úkraínu-
manna. Þetta kemur fram í til-
kynningu, sem birt hefur verið á
vef keppninnar. Í tilkynningu sem
Samtök evrópskra sjónvarpsstöðva
(EBU) sendu frá sér fyrr í vikunni
kemur fram að reynt hafi verið að
finna flöt á því að halda keppnina
í Úkraínu, en því miður sé það
mat manna að það sé ekki öruggt
vegna innrásar Rússa þar í landi.
Úkraína kemst beint í úrslita-
keppnina á næsta ári, líkt og
ávallt gildir um sigurvegara fyrra
árs. Að auki verður þess gætt að
Úkraína verði vel sýnileg í öllu
myndefni keppninnar. Tekið er
fram að merki keppninnar 2023,
sem verður kynnt síðar, eigi að
endurspegla hinar óvenjulegu
kringumstæður.
„Við erum BBC afar þakklát
fyrir að taka að sér hlutverk gest-
gjafa í Bretlandi 2023,“ er haft
eftir Martin Österdahl, fram-
kvæmdastjóra keppninnar.
Eurovision haldið í Bretlandi 2023
AFP/Marco Bertorello
Sigur Úkraínska hljómsveitin Kalush
Orchestra söng til sigurs með „Stefania“.
Enski leikarinn
David Warner er
látinn áttræður
að aldri. Þessu
greinir BBC frá.
Á löngum og far-
sælum ferli fór
Warner iðulega
með hlutverk
vonda karlsins
og má í því sam-
bandi nefna hlutverk hans í The
Thirty Nine Steps (1978), Time
Bandits (1981) og Titanic (1997).
Warner lék í ýmsum sjónvarps-
þáttaröðum, s.s. Doctor Who, Wall-
ander og Twin Peaks. Áður en
Warner sneri sér að kvikmyndaleik
þótti hann afbragðs Shakespeare-
túlkandi og lék m.a. Hamlet á sín-
um yngri árum.
David Warner lát-
inn 80 ára að aldri
David Warner
Örn Karlsson
Andlit Ein af grímum Arnar.
Bandaríski leik-
arinn Paul Sorv-
ino er látinn 83
ára að aldri.
Sorvino er
þekktastur fyrir
túlkun sína á
glæpamanninum
Paulie Cicero í
kvikmyndinni
Goodfellas
(1990). Sorvino lék ýmist bófa eða
lögreglumenn á hvíta tjaldinu, en
hann lék í yfir 50 kvikmyndum og
fjölda sjónvarpsþátta á borð við
Law and Order. Hann lék m.a. á
móti Al Pacino í The Panic in
Needle Park (1971) og James Caan
í Gambler (1974). Þrátt fyrir hrak-
andi heilsu á síðustu árum, lék hann
fram til ársins 2019.
Paul Sorvino látinn
83 ára að aldri
Paul Sorvino