Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Qupperneq 6

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Qupperneq 6
1939 (1. tbl.) – 1940 (3. – 4. tbl.), Bárður Jónas Jakobsson. Bárður gerðist lögmaður, rit- höfundur og afkastamikill þýð- andi. 1940 (5.– 6. tbl.) – 1941 (5. tbl.), Guðmundur Helgi Oddsson. Guðmundur var skipstjóri og stýrimaður á bátum og togurum í 27 ár, auk þess að taka ríkan þátt í félagsstarfi. Hann var meðal annars formaður Skip- stjóra- og stýrimannafélagsins Öldunnar í tólf ár og einn af stofnendum Sjómannadagsins í Reykjavík. 1941 (6. tbl.) – 1944 (11. – 12. tbl.), Halldór Jónsson loft- skeytamaður. Þess má geta að Halldór var loftskeytamaður á b/v Hafsteini þegar áhöfnin á Hafsteini, í janúar 1940, bjargaði 62 Þjóðverjum af Bahia Blanca. 1945 (1. tbl.) – 1945 (6. – 7. tbl.), Gissur Ólafur Erlingsson loftskeytamaður og um skeið elstur Íslendinga en Gissur varð 104 ára. * Ritstjórar Víkings voru jafnframt skrifstofustjórar FFSÍ. Gissur var seinastur ritstjóra blaðsins til að gegna báðum störfum. Í ágúst 1945 (8. tbl.) tilkynnti stjórn FFSÍ að umsvif sambandsins væru orðin það mikil að ekki væri leggjandi á einn mann að annast bæði um daglegan rekstur skrifstofunnar og Sjómanna- blaðið Víking: „Sá háttur hefur því verið upp tekinn nú við mánaðamótin júlí og ágúst, að starfinu hefur verið skipt. Ráðinn hefur verið sérstakur ritstjóri, sem sér um útgáfu blaðsins, efnissöfnun og efnisval með ritnefndinni, svo og annað það, er heyrt getur und- ir ritstjórann. Þá hefur og verið ráðinn framkvæmdastjóri, er sér um öll dagleg störf á skrifstofunni, tengslin við sambandsfélögin, fjárreiður og viðskipti til allra hliða.“ * 1945 (8. tbl.) – 1954 (6. – 7. tbl.), Gils Guðmundsson, alþingis- maður og rithöfundur. * Sumarið 1954 var Gils Guð- mundssyni vikið frá ritstjórn- inni. Ekki var þó einhugur um uppsögnina í stjórn FFSÍ en vilji meirihlutans hlaut að ráða. Þegar Gils kvaddi (í 6. til 7. tbl. 1954) kvaðst hann ekki vilja ræða orsakir uppsagnar- innar en ávallt hefði farið vel á með honum og stjórn sam- bandsins, framkvæmdastjóra og ritnefnd og hann aldrei dregið neinn pólitískan taum. – Ég hef kappkostað að taka ekki „flokkspólitíska afstöðu“ enda er það sannfæring mín, skrifaði Gils, „að enginn geti borið mér á brýn pólitíska hlut- drægni í sambandi við störf mín við blaðið.“ Það var engin tilviljun að Gils undirstrikaði rækilega í kveðjuorðum sínum að hann hefði aldrei notað blaðið í pólitísk- um tilgangi. Hann hafði sumarið á undan verið í framboði til Al- þingis og náð kjöri sem fulltrúi Þjóðvarnarflokks Íslands. Og þótt stjórn FFSÍ þverskallaðist við að útskýra ástæður brott- rekstrarins töldu margir næsta víst að þær væru af pólitískum toga enda hefði undirróður gegn Gils hafist um leið og hann komst á þing fyrir Þjóðvarnarflokkinn. * 1954 (8. tbl.) – 1956 (11. – 12. tbl.), Magnús Arnór Jensson loftskeytamaður. 1957 (1. – 2. tbl.) – 1962 (6. – 7. tbl.), Halldór Jónsson (áður ritstjóri 1941 – 44). 1962 (8. tbl.) – 1978 (6. – 7. tbl.), Guðmundur Jensson loft- skeytamaður. * Guðmundur Jensson hafði verið framkvæmdastjóri FFSÍ og jafnframt séð um afgreiðslu Víkings, innheimtu og reikningshald fyrir blaðið. Í hans tíð var tekin upp sú nýbreytni að hafa tvo rit- stjóra að Víkingnum. Guðmundur og Magnús A. Jensson voru bræður. – Ég er því algjörlega mótfallinn að taka upp samstarf við Sjómannablaðið Víking, tilkynnti Davíð á Fiskiþinginu 1942 og þótt aðrir þingmenn reyndu að milda svolítið þessa afstöðu stóð hún engu að síður óhögguð. Ægir skyldi ekki sameinaður Víkingnum. En af hverju? Sjálfsagt spiluðu persónulegar ástæður inn í, að minnsta kosti til að byrja með á meðan Kristjánarnir tveir stóðu í eldin- um. Það var erjótt á milli félaganna. Fiskifélagið átti í vök að verjast og það var ekki laust við að oddvitum þess þætti sér ógnað af FFSÍ. Að hafa tvö félög, sem bæði glíma við fiskveiðimálin, hafði Kristján Jónsson frá Garðstöðum skrifað, „er ekki óáþekkt og að ætla sér að hafa tvær hreppsnefndir í sama sveitarfélagi eða tvær bæjarstjórnir í sama kaupstað.“1 Hnútukastið í Víkingnum bætti ekki úr skák, enda svo nærri vegið, bæði að Kristjáni forseta og nafna hans Jónssyni, að jaðraði við ærumeiðingar svo ekki sé dýpra í árinni tekið. Hin málefnalegu rök hafa þó líkast til vegið þyngst. Kristján frá Garðstöðum gerði góða grein fyrir þeim í októberblaði Víkings árið 1940: „Það virðist fara vel á því, að Víkingur hafi það hlutverk að flytja skemmtilegar 1 Kristján Jónsson: „Fiskifélag Íslands og fyrirkomulag þess“, Tíminn 16. nóvember 1939. og gagnlegar frásagnir af lífi og störfum sjómanna, sem Ægir hefir ekki komizt yfir nema að litlu, haldi þétt og prúð- mannlega á hagsmunamálum þeirra og sé jafnframt nokkurskonar málsvari far- manna og sérfróðra sjómanna. En að Ægir sinni einkum fiskiveiðamálunum í víðri merkingu, málefnum útvegsins, upplýsinga og skýrslugerð, styrkveiting- um allskonar, og öllu því, sem hið opin- bera fæst við, styrkir eða lætur fram- kvæma og gefi gaum hverskonar nýbreytni varðandi fiskveiðarnar. Annað verði í rauninni sjómannablað, hitt fisk- veiðirit.“ Bárður J. Jakobsson, fyrsti ritstjóri Sjómannablaðsins Víkings. Gils Guðmundsson. Jafnhliða því að sinna ritstjórninni safnaði Gils efni í bækurnar Báran blá sem Farmanna- og fiskimannasamband Íslands gaf út en frumkvæðið að útgáfunni átti forseti FFSÍ, Ásgeir Sigurðsson. Alls urðu bindin tvö í ritstjórn Gils en átti eftir að fjölga í fimm. Sjómannablaðið Víkingur 80 ára – ritstjórar frá upphafi – 6 – Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.