Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Page 11
Hvað áhrif telur þú að hlýnun jarðar
muni hafa á fiskistofna við Ísland í fram-
tíðinni?
Geri mér ekki grein fyrir því.
Hefur þér tekist að vekja áhuga af-
komendanna á sjómennsku?
Nei, ekki myndi ég segja það, en öll
mín börn hafa farið á sjó en fóru öll í
aðrar greinar.
Mundir þú mæla með sjómennsku eða
skipstjórn sem starfsvettvang við ungt
fólk í dag?
Já, tvímælalaust. Á góðum skipum er
þetta mjög góður starfsvettvangur.
Og að lokum fyrir bókaorma, áttu þér
uppáhaldsbók og hvað ertu að lesa núna?
Allar barnabækurnar hennar Guðrún-
ar Helgadóttur finnast mér frábærar. Ég
get velst um af hlátri og kíki í þær ennþá
annað slagið. Ég er að lesa bók eftir
Ragnar Jónasson.
Besti sjómaðurinn? Áhöfnin á Kleifabergi, svarar Víðir. Hér er Kleifabergið að
veiðum í mars á þessu ári. Ljósm: Bjarni Þór Hjaltason
Á trolldekki, Steinar Erlendsson, Bergur Rúnar Björnsson og Birkir Gunnlaugs-
son. Ljósm: Bjarni Þór Hjaltason
Félag skipstjórnarmanna
óskar félagsmönnum sínum og aðstandendum þeirra gleðilegra jóla
og farsældar á komandi ári. – Þökkum samstarfið á líðandi ári.
Sjómannablaðið Víkingur – 11