Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Page 12

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Page 12
12 – Sjómannablaðið Víkingur F orsaga þessara frásagnar var að ég var á þessum tíma hjá Eimskip og ýmist þá sem fyrsti stýrimaður eða skipstjóri í afleysingum. Í ágúst 1986, en ég var þá í sumarfríi í Danmörku, fékk ég boð frá Eimskip um að fara til Antwerpen og taka við skipstjórn á skipi sem Eimskip hafði keypt. Það hafði verið kyrrsett fyrir um tæpu ári en hafði áður verið í eigu Hafskips sem þá var gjaldþrota. Mér var jafnframt til- kynnt að ég væri skrifaður sem eigandi skipsins og er til Ant- werpen kom skrifaði ég undir móttöku skips fyrir hönd Eim- skips og sel ég þetta ekki dýrara en ég keypti. Í svelti Er ég kom til Antwerpen voru þar þegar komnir nokkrir áhafnarmeðlimir og var gist eina nótt á hóteli. Síðan var farið um borð í Ms. Skaftá, sem síðar fékk nafnið Múlafoss. Ekki var aðkoman upp á það allra besta. Ekkert drykkjarvatn og hafði vatnsleiðslan að vatnstankinum sprungið um veturinn og ýmislegt var að í vél og í eldhúsi og fleira. Nokkur tími fór í að gera eldhús og ljósavélar klárar og ým- islegt fleira og vorum við nokkra daga á hóteli yfir nætur en um borð á daginn. Allt komst þetta í lag og við gátum farið að elda og sofa um borð eftir nokkra daga. Utan á okkar skipi lá annað kyrrsett skip sem var frá Portú- gal með um fjögra manna áhöfn. Einhver samskipti höfðu aðrir skipsmenn á Múlafossi við áhöfn þessa skips til að byrja með og var það aðallega til að lána verkfæri og annað sem ég hafði ekki tölu á. Einn daginn ákvað ég að gefa mig á tal við áhöfnina á portú- galska skipinu. Þegar ég var að fara um borð í það portúgalska tók ég eftir hundi sem lá á þilfarinu og var ansi ræfilslegur og leit varla á mig þegar ég kom um borð. Svo ég snéri við og sótti vænan kjötbita um borð í Múlafoss og gaf hundinum. Þvílíkt sem hann tók við sér þegar hann fékk kjötið, hann hreinlega gleypti kjötið á nokkrum sekúndum. Ég sá að hundgreyið var glorsoltið. Ég gaf mig á tal við áhöfnina og spurði hvort hundurinn hefði ekkert fengið að borða í einhverja daga? Þeir sögðu að þeir sjálfir hefðu ekki borðað mat í nokkra daga nema óætt snarl og vatn og allur matarforði væri uppurinn. Þeir hefðu látið útgerðarmanninn vita en hann hefði ekki látið sjá sig enn- þá. Eins sögðu þeir að skipið hefði verið kyrrsett fyrir þó nokkrum mánuðum út af skipstjóranum sem hefði verið fullur er þeir komu til Antwerpen. Hann hefði skemmt og laskað brú þegar þeir sigldu í höfn í Antwerpen og væri hann nú í fangelsi og óvíst hvenær hann losnaði þaðan. Það var út af skipstjór- anum sem skipið hafði verið kyrrsett. Ég bauð áhöfn portúgalska skipsins að snæða með okkur eina máltíð á dag á meðan málin leystust með „kostinn“ og sambandið við útgerðarmanninn. Þetta var um tíu leytið um morguninn og klukkan 12:00 á hádegi voru þeir allir mættir um borð hjá okkur til að snæða með okkur hádegisverð, kaffi og meðlæti og nesti yfir daginn. En það mætti einn gestur að Portúgalski skips- hundurinn „Hvutti“ Guðmundur Kr. Kristjánsson skipstjóri Ms. Múlafoss (áður Skaftá). Í matsal í Ms. Múlafossi. Talið frá vinstri; Ásgeir Sumarliðason, 1. vélstjóri, Halldór Ágústsson yfirvélstjóri, Guðmundur, sögumaður og skipstjóri, og Haf- steinn Böðvarsson matsveinn. Í brúnni á Ms. Múlafossi.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.