Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Blaðsíða 16

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Blaðsíða 16
16 – Sjómannablaðið Víkingur skip. Ég stoppaði kauða af og sagði honum að fara og ná í „kost“ fyrir áhöfnina, það væri honum fyrir bestu annars væri komin alvarleg staða fyrir hann. Ég sagðist myndi fara lengra með þetta mál og jafnvel mundi ég hafa samband við dagblöðin og yfirvöld í Antwerpen. Maðurinn hlýddi eins og hundur og flýtti sér upp í hvíta Mercedes-Benz-inn og eftir um tvo tíma kom hann með fullt af matvælum fyrir áhöfn sína. Ekki vildi Hvutti flytja sig um borð í sitt skip þótt þar væri loksins matar- bita að fá. Kannski fannst honum öruggari vistin hjá mér. Hvutti gengur af göflunum Einn daginn gerði lögreglan í Antwerpen boð eftir mér niður við landgang og spurði hvort skipshundur tilheyrði þessu skipi og gaf mér góða lýsingu á Hvutta. Ég gerði mér strax grein fyrir að Hvutti væri horfinn og að eitthvað hafði komið fyrir hann. Þeir sögðu að Hvutti væri um borð í einni lektunni (fljótabátur, húsbátur) er lá fyrir aftan okkur og væri þar rammlega tjóðrað- ur með stálkeðju við borðstokk lektunnar. Ég var beðinn að koma og ná í hundinn, því að engin réði við hann. Lögreglan sagði að ef þetta kæmi fyrir aftur að hundurinn færi um borð í önnur skip þá yrði að aflífa hann og það á staðnum. Ég yrði að sjá um allan kostnað og yrði jafnvel kærður með miklum tilkostnaði. Ég fór með lögreglunni um borð í viðkomandi lektu sem lá utarlega í flota tíu eða tólf slíkra báta. Þar fann ég Hvutta tryggilega tjóðraðan. Svo að eitthvað hefur gengið á þarna um borð í lektunum. Ég tók með mér hundaólina og hundanammi sem ég hafði keypt og var við öllu búinn að takast á við Hvutta. Þegar ég kom um borð í við- komandi lektu þar sem Hvutti var bundinn og hann sá mig varð hann fljótt hinn rólegasti og fagnaði mér ákaflega. Ég gaf honum nammi og setti á hann ólina og gaf svo mig á tal við áhöfn lektunnar. Þeir sögðu að mikið hefði gengið á er Hvutti gerði víðreist um lekturnar. Þar voru fyrir skipshundar, ýmist rakkar eða tík- ur, og fljótlega hefði allt farið í bál og brand og því ekki verið um annað að ræða en að fanga Hvutta og kalla til lögreglu. Ég lofaði að gæta Hvutta betur og meina honum alla landgöngu nema í minni fylgd. Við Hvutti yfirgáfum svo lekturnar og lög- regluna og fórum um borð í okkar skip. Svo hófst kennslustund. Ég byrjaði á að binda Hvutta all rammlega við landganginn á Múlafossi og útlistaði fyrir honum á Íslensku að hann mætti ekki yfirgefa skipið nema í minni fylgd. Síðan leysti ég Hvutta og sagði honum að vera kyrr við landganginn og síðan fór ég niður landganginn og niður á bryggju og beið þarna í kannski fimm mínútur og gaf síðan Hvutta bendingu um að hann mætti koma niður til mín. Þetta endurtók ég marg oft en var alltaf með ólina tilbúna. Jæja, einn daginn er við Hvutti vorum í göngutúr ákvað ég að bregða okkur inn á bjórstofu og fá mér einn bjór í hita dagsins. Til að byrja með gekk allt að óskum. Við fengum borð og bjór. Eftir einn til tvo sopa byrjuðu lætin í Hvutta. Allir sem nálguðust borðið eða áttu leið fram hjá urðu skelfilega hræddir er Hvutti beraði vígalegar tennurnar og gerði sig líklegan til að ráðast á viðkomandi. Ég ríghélt í Hvutta er menn nálguðust borðið og átti fullt í fangi með að halda honum. Þetta endaði með að bjórstofueigandinn kom og vísaði okkur Hvutta út af „kránni“ og áréttaði við mig að svona villidýr væri ekki vel- komið á bjórstofu. Sennilega var Hvutti að verja húsbónda sinn þegar „bjórdrukknir menn“ nálguðust borðið okkar, hver veit. Etir um mánaðartíma í Antwerpen komu þau skilaboð frá Eimskip til mín að þeir væru búnir að fá kauptilboð í Múlafoss og hefðu tekið því. Ég átti að taka flug heim eftir tvo daga og taka við skip- stjórn á Ms Fjallfossi (númer IV) er lá í Reykjavík. Ég gat nú ekkert sagt við þessu og undirbjó för mína til Íslands. Þá var komið að því að kveðja skipsfélaga og skipshund. Hið fyrra var auðvelt, enda var ég búinn að vera með þeim til fjölda ára og gerði ráð fyrir að sigla með þeim aftur. Þá var komið að því að kveðja Hvutta. Ég var búinn að tala við Portúgalana og segja þeim frá mínum högum og biðja þá að taka við Hvutta aftur og vera góðir við hann. Þeir lofuðu öllu fögru enda ættu þeir mér mikið að þakka. Ég hefði gefið þeim mat í nokkra daga og séð til þess að skipseigandinn útvegaði þeim myndarlegan matar- forða. Ég tók Hvutta tali í skipstjóraíbúðinni og útlistaði fyrir honum á íslensku að ég væri á förum. Tók ég hundaólina, setti á Hvutta og síðan gengum við um borð í portúgalska skipið og þar var Hvutti kvaddur. Ég er uppalinn við allskonar dýr, ketti, hunda, kindur, kýr, hænsni og geitur og vandist því snemma að fyrr eða síðar kæmi að kveðjustund. Oftast rann sú stund upp þegar dýrunum var lógað. En þetta var annað með Hvutta. Minningin um hann er greipt í huga mér. Lokið við í sumarbústað þann 26. október 2019.Lektuhópurinn sem „Hvutti“ gerði áhlaup á. Ms Fjallfoss (númer IV). Myndin tekin í Noregi þar sem verið er að lesta tómar síldartunnur, trétunnur. Sennilega með síðustu trétunnuförmum til Íslands.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.