Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Page 20

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Page 20
Sjómannablaðið Víkingur – 20 í brotajárn til Belgíu og tekinn af skrá 20. febrúar 1952. Þetta er annar togarinn í eigu Ís- lendinga sem ber nafnið Baldur RE, sá fyrri sem fjallað var um 1. tbl. Víkingsins 2019 bar skráningarstafina RE-146. – 52 – Fimmtugasti- og annar togarinn í eigu Íslendinga, Egill Skallagrímsson RE-165, var skráður hér á landi 23. júní 1924, smíðaður hjá Cochrane & Sons Ltd í Sel- by á Englandi árið 1916 fyrir hf. Kveld- úlf, Reykjavík. Lengd 41,4 m., breidd 7,10 m., dýpt 3,23 m., brl. 307,66, knúinn 600 hö. gufuvél. Þegar smíðinni lauk var skipið tekið í þjónustu breska sjóhersins, notað sem tundurduflaslæðari og bar nafnið Iceland. Kom ekki til landsins fyrr en á árinu 1919. Skipstjóri, Guðmundur Jónsson. Á árinu 1920 voru sett loftskeytatæki um borð Egil, fyrstan íslenskra togara. Egill var einn af þeim togurum sem lentu í Halaveðrinu mikla og varð einna harðast úti, litlu mátti muna að enginn yrði til frásagnar þar um borð. Snæbjörn Stefánsson var þá skipstjóri. Seldur 26 maí 1944, Fiskveiðahlutafélaginu Drang- ey í Reykjavík, nefndur Drangey RE-166. Seldur 28 febrúar 1945, Engey hf í Reykjavík. Seldur til Svíþjóðar og tekinn af íslenskri skipaskrá 20 maí árið 1948. – 53 – Fimmtugasti og þriðji togarinn í eigu Ís- lendinga, Þórólfur RE-134, skráður hér á landi 24. júní 1924, smíðaður hjá Cochrane & Sons Ltd í Selby, Englandi 1920 fyrir hlutafélagið Kveldúlf í Reykja- vík. Lengd 44,32 m., breidd 7,41 m., dýpt 3,51 m., brl. 403, knúinn 800 hö. gufuvél. Skipstjóri, Guðmundur Guð- mundsson. Maðurinn í lestinni Hann heitir Ægir og er Oddgeirsson Jóhannssonar skipstjóra sem lengi var með Hákon ÞH eða allt til þess er Oddgeir andaðist í apríl 2005. Myndina sem fylgir tók Ægir í afturlestinni á Hákoni hinum nýrri. – Þetta var þegar ég var að klára hringinn, segir Ægir. Búinn að stafla 384 kössum, en hver þeirra var 24 kíló að þyngd. – Puð, nei ekki svo. Kassarnir koma til okkar á færibandi sem er á rafmagnsmótor til hæðarstillingar. Það er helst þarna í afturlestinni sem verður svolítið erfitt en þá þurfum við að teygja okkur upp með kassana og mig vantar nokkra sentimetra til að geta talist hávaxinn. En það kemur á móti að við lægri mennirnir þurfum minna að beygja okk- ur niður á bandið. – Myndin? Jú, ég tók hana sjálfur á símann. Er með tónlist í eyrunum sem ég sæki í gegnum símann. Þarna er ég búinn að vera klukkutíma í lestinni við að stafla, búinn með einn hring, sem tekur svona klukku- stund eða ríflega það. Ægir er orðinn gamall í hettunni. Hann byrjaði sjómennskuna 1988 á gamla Hákoni, fór síðan yfir á nýja Hákon þar sem hann hefur verið síðan. – Já, það er satt, ég er ekki mikið fyrir að skipta um pláss. En til hvers líka að flækjast á milli skipa þegar manni líkar vel það sem maður hefur, segir Ægir að lokum. Missti báða bátana, og báta- dekkið brotnaði Togarinn Þórólfur, eign Kveld- úlfs h.f. varð fyrir áfalli í grennd við Vestmannaeyjar í ofsaveðrinu á föstudagskvöld- ið. Reið ólag yfir skipið og missti það báða bátana og bátadekkið brotnaði. Skipið lagðast á hliðina við áfallið og urðu skipverjar að moka til í því frá því klukkan 11 um morguninn og þar til kl. 7 morguninn eftir, til þess að rétta það að fullu við. Engan mann sakaði. Skipið kom á Reykjavíkurhöfn síðdegis í gær. Alþýðublaðið, 19. desember 1948. Egill Skallagrímsson RE-165. Þórólfur RE-134.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.