Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Page 28

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Page 28
Þ að er fróðlegt að rifja upp frum- kvöðla sem unnið hafa gegnum árin að öryggismálum sjómanna. Það hefur aldrei verið auðvelt verkefni að fá bætt öryggi sjómanna en sjómenn hafa átt góða og ákveðna málsvara gegn- um tíðina sem vert er að minnast, Einar J. Gíslason var einn af þeim. Einar var fæddur á Arnarhóli í Vest- mannaeyjum 31. janúar 1923. Foreldrar hans voru Guðný Einarsdóttir og Gísli Jónsson skipstjóri og útvegsbóndi. Einar tók skírn í Betelsöfnuðinum 26. nóvem- ber 1939. Hann var forstöðumaður í Betel Vestmannaeyjum í 22 ár og Fíla- delfíu í Reykjavík í 20 ár. Fyrir þessi störf var hann landsþekktur enda mikill ræðuskörungur. Ég ætla ekki að minnast hér frekar á störf hans að trúmálum. Einar fékk vélstjórnarréttindi í janúar 1941 en á þeim tíma sá Fiskifélag Íslands um menntun til vélstjórnar í Eyjum. Frá 30. janúar sama ár var hann ráðinn land- vélstjóri í Ísfélagi Vestmannaeyja og var í því starfi til 1948 eða í átta ár. Einar gegndi mörgum öðrum störfum sem vert er að minnast á. Hann var sjómaður og útgerðarmaður, stundaði sjóinn í 17 ár lengst af með Óskari bróðir sínum á Gæfunni VE 9 sem þeir bræður áttu og gerðu út saman. Í grein sem Guðni Einarsson, sonur Einars skrifaði í Sjómannadagsblað Vest- mannaeyja um sjómannsferil föður síns segir meðal annars: „Um borð í Gæfu VE var iðkuð jafnaðarmennska í verki og aflahlut skipt jafnt á milli áhafnarinnar. Þetta var óvenjulegt að ekki væri mis- munað í launum eftir stöðum um borð. Annað sem frábrugðið var í útgerð Gæfu VE 9 og öðrum bátum, var að Óskar hélt viðtekinni venju í skipstjórn sinni að róa ekki á sunnudögum og voru þeir bræður samhentir í þeirri stefnu. Þeir stunduðu sjóinn alla rúmhelga daga og Óskar tók oft einu hali meira en aðrir til að geta verið í landi um helgar.“ Seinna var komið á helgarfríum á flot- anum, og vildu margir meina að með helgarfríunum hafi slysum fækkað hjá sjómönnum. Ég held að það sé rétt enda hér áður fyr lítið sem ekkert hugsað um hvíldartíma sjómanna. Þarna hafa þeir bræður verið frumkvöðlar hvað varðar helgarfrí þó það hafi verið fyrst og fremst af trúarlegum ástæðum. Það var einnig örugglega sjaldgæft að hafa jöfn skipti á bátum í Eyjum sama hvaða stöðu menn gegndu, hvort sem menn voru skipstjóri, vélstjóri, kokkur eða háseti, allir voru á sama hlut. Einar starfaði í nokkur ár hjá Vest- mannaeyjahöfn, þar vann hann bæði við hafnargerðina, á hafnarbátnum Létti og var verkstjóri á grafskipinu Vestmannaey sem þjónaði höfninni í tugi ára. Því mið- ur var þetta merka grafskip brytjað niður í brotajárn, en það er önnur saga. Einar J. Gíslason vann að öryggismálum sjómanna Sigmar Þór Sveinbjörnsson, fyrrverandi stýrimaður og skipaskoðunarmaður Einar J. Gíslason heiðraður á sjómannadegi. Ljósm: Sigurgeir Jónasson Óskar Gíslason skipstjóri á Gæfu VE 9. Ljósm: Sigurgeir Jónasson 28 – Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.