Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Qupperneq 34
34 – Sjómannablaðið Víkingur
Samvinna og samráð
Um það leyti sem Suesskurður opnaði komst nokkuð skipulag
á heimssiglingar. Þá þegar var til umtalsverður skipastóll sem
hafði áður siglt suður fyrir Afríku. Þá komu gufuskipin til
sögunnar. Allt þetta olli offramboði og verðstríði.
Áður en við höldum lengra er rétt að skilgreina þær siglingar
sem við tölum um. Evrópusambandið skilgreinir: „Liner shipp-
ing is the provision of regular, scheduled maritime freight
transport, chiefly by containers.“
Línusiglingar halda uppi reglulegum áætlunarsiglingum
skipa, að mestu með gáma. Hér getum við talað um línusigl-
ingar og línuskip sem starfsemi fyrir gámavæðingu og reyndar
samhliða gámavæðingu fyrstu árin. Gámasiglingar eru í eðli
sínu áætlunarsiglingar og verður því notast við hugtökin gáma-
siglingar og gámaskip hér eftir sem hingað til.
Frá upphafi fengu menn leyfi til samráðs um verð, framboð
skipastóls og áætlanir í félagsskap sem heitir á ensku Confer-
ences. Hér verður notað heitið Samráð með upphafsstaf. Slík
Samráð voru lengi lokuð en seinna var samþykkt að taka inn
nýja þátttakendur. Þegar vart var við samkeppni sendi Samráð-
ið skip á sömu hafnir og samkeppnin sigldi á og bauð mun
lægri verð þar til samkeppnin gafst upp. Slík viðbrögð voru
seinna aflögð vegna gagnrýni og þeirrar hugsunar að samkeppni
væri nauðsynleg að einhverju leyti.
Samráðið ákvað áætlanir, sem á nútímamáli flokkast undir
þjónustustig, skipastól, sem þýddi í raun að takmarka framboð
og verð á þjónustu. Hugsunin var að verð yrði að vera sann-
gjarnt fyrir bæði útgerð og farmeiganda. Þá var lengi það fyrir-
komulag að farmeigandi gerði flutningssamning við Samráðið
sem deildi tekjum meðal þátttakenda.
Saga Samráða er löng og ýmiss afbrigði notuð en meginstefið
var að til að tryggja þjónustu þyrfti að búa svo um hnúta að út-
gerðirnar gætu lifað og það sem til þurfti var að stjórna fram-
boði og lengi vel að stjórna verðum.
Nánast frá upphafi gámavæðingar gengu Samráð svo langt að
meðlimir létu saman smíða skip fyrir siglingarnar. Hafa þau
Samráð væntanlega tekið við af samsvarandi línu samvinnu.
Eftir því sem Samráðin veiktust með fleiri „utanbæjarmönn-
um“ voru hin samþykktu verð notuð til viðmiðunar en hver
lína samdi fyrir sig á markaði sem verðið réði miklu um val á
flutningsaðila.
Vaxandi samkeppniseftirlit er víðast hvar hluti af nútíma
samfélagi og sú hugsun að samráð í samkeppni er gegn hags-
munum heildarinnar. Gámasiglingar eru nú um allan heim en
þetta verk er að meginhluta um heimssiglingar og því verða
umræður um samráð aðallega um Samráð á meginleiðum. Hvert
land getur haft sínar eigin samkeppnisreglur og eftirlit eins og
Federal Maritime Commission, FMC, í Bandaríkjunum, þar sem
hafa orðið breytingar með nýrri hugsun, nýjum lögum. Síðast
með Ocean Shipping Reform Act, OSRA sem gekk í gildi 1998
og veitti farmeigendum meira frelsi og leysti af hólmi Shipping
Act of 1984, sem var sett vegna verri stöðu minni fraktkaup-
enda sem töldu að stærri kaupendur fengju lægra verð og meiri
afslætti. Fyrir vikið urðu flutningasamningar opinberir. OSRA
leyfir enn samráð milli skipafélaga. Flutningssamninga verður
þó að senda til FMC en eru leynilegir.
Upp úr aldamótum var uppi sú hugsun í Evrópu að sam-
keppni bæri að styrkja með laga umhverfi. Í gámaflutningum
gerðu menn sér grein fyrir að erfitt var að verja stöðu Samráða
því verðtilkynningar þeirra voru að mestu notaðar til viðmiðun-
ar bæði fyrir utanbæjarmenn sem og Samráðsmenn, nema hvað
varðaði aukagjöld eins og BAF og CAF, sem almennt fór eftir
því sem Samráðið sagði.
Því var ákveðið 2006 að frá október 2008 væru Samráð ekki
lengur leyfð í flutningum til og frá Evrópu, það er að segja
verðsamráð og gagnkvæm upplýsingagjöf. Hins vegar var Sigl-
ingasamvinna í svokölluðum Consortia leyfð sem undanþága
með fjórum skilyrðum. Það þýðir að útgerðir með samtals
minna en 35% markaðshlut mega samsigla, það er hafa sameig-
inlega áætlun og samnýta skip og sömuleiðis semja saman við
gámahafnir og ná fram lægri kostnaði vegna meira magns (sem
getur verið tvíbent sverð eins og kemur fram annars staðar).
Í Bandaríkjunum, þar sem það sem eftir er af útgerðarstarfsemi
Páll Hermannsson
GÁMAR OG SKIP
Gámavæðingin og áhrif hennar
4. hluti
Gámaskip fara um öll heimsins höf. Ljósmyndarinn
er staddur á hinni sjö kílómetra löngu strandlengju
borgarinnar Santos í Brasilíu.
Ljósm: Finn Salomon Nielsen