Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Qupperneq 43

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Qupperneq 43
sókn málsins kom í ljós að þá hefðu „sjóræningjarnir“ verið á bak og burt að líkindum með sama bát og ferjaði þá um borð. Korter yfir fjögur um nóttina gaf skipstjórinn fyrirskipun um að skipið skyldi yfirgefið. Var klukkutíma síðar mikill eldur sjáanlegur en skipverjum var bjargað um borð í herskipið. Síðar um morguninn kom björgunar- og dráttar- skip á staðinn og hóf slökkvistörf. Það var þó ekki fyrr en tveimur dögum síðar sem endanlega tókst að slökkva eldinn. Skipið var dæmt ónýtt og rifið í kjölfarið. Útgerðarmaðurinn krafðist bóta í sam- ræmi við tryggingaskilmála en trygginga- félagið fór með málið í dóm en þá neitaði útgerðarmaðurinn að leggja fram gögn auk þess að ljúga að dómaranum. Þótti öll sagan afar ótrúverðug og ekki minnk- uðu grunsemdirnar þegar í ljós kom að sjóræningjarnir höfðu ekki tekið neitt herfang um borð í skipinu og að þeir hefðu verið starfsmenn Yemensku strand- gæslunnar. Engar bætur hafa verið greiddar fyrir skipstapann. Barist um toppinn Samkeppnin hefur verið hörð á gáma- skipamarkaðinum þar sem risarnir hafa barist um hver eigi stærstu skipin og mestu flutningsgetuna. Mærsk skipafélag- ið hefur verið um langt skeið á toppnum en nú er ítalska útgerðin Mediterrainean Shipping Company (MSC) á góðri leið að stinga Mærsk af á næstu tveimur árum. Nýlega samdi útgerðin um smíði á fimm 23.000 tuttugu feta gámaeininga (TEU) skipum frá Daewoo í Suður-Kóreu en auk þeirra á útgerðin 11 önnur gámaskip í smíðum en samtals eru þessi 16 skip með flutningsgetu upp á 305.352 TEU einingar. Risaskipin fimm munu kosta hvert 152 milljónir dollara (19 milljarða IKR) og eiga þau að afhendast fyrir lok ágústmánaðar 2021. Með þessum skipum mun floti útgerðarinnar geta flutt rétt um 4 milljónir TEU en reyndar er Mærsk með í dag 4,2 milljónir TEU en forstjóri útgerðarinnar segir að kjörstærðin sem hann vill sjá útgerðina í eru rétt undir 4 milljónum TEU. Mærsk hefur aðeins í smíðum gáma- skip sem samtals geta flutt 45.000 TEU. Það er langt um liðið síðan sú útgerð hef- ur státað af stærsta gámaskipi heims líkt og það gerði til margra ára en MSC er eigandi heimsins stærsta gámaskips, MSC Gulsun, sem getur flutt 23.765 gáma í einni ferð. Er skipið 11 sinnum stærra en nýju skip Eimskips, Brúarfoss og Detti- foss, sem hafa verið í smíðum í Kína. Þau skip verða þau stærstu sem hafa verið í eigu íslenskrar útgerðar nokkru sinni. Þessi mikla aukning MSC í flutningsgetu hefur valdið mönnum hjá Mærsk áhyggj- um og að sögn eins af framkvæmdastjór- um útgerðarinnar þá er það hans mat að MSC passi ekki lengur í stígvélin sín og það þurfi að berjast með afli til að stöðva þenslu þeirra. Skip vöruð við Hvíta húsið hefur sent út aðvörun til kín- verska skipafélagsins COSCO um að slökkva ekki á AIS merkjum skipa sinna þar sem þeir eru að vakta siglingar olíu- skipa frá írönskum höfnum sem brjóta gegn refsiaðgerðum Bandaríkjamanna. Tveir háttsettir stjórnendur staðfestu við Reuters að þeir hafi verið í nánum samskiptum við COSCO skip og bent stjórnendum þeirra á hversu ótrúlega hættuleg og ábyrgðarlaus hegðun það væri að slökkva á AIS merkjunum. Jafn- framt stofnuðu þau öryggi siglinga um svæði í hættu og ógnuðu öðrum skipum með þessu háttalagi. Þann 25. september lögðu Bandaríkin refsiaðgerðir á COSCO Shipping Tanker (Dalian) ásamt nokkrum öðrum kín- verskum útgerðum sem höfðu vitandi tekið þátt í umtalsverðum viðskiptum vegna flutnings á olíu frá Íran og ekki farið eftir þeim viðurlögum sem sett voru í nóvember 2018. Þann 7. október slökktu olíuskip í COSTCO flotanum á sendingum á AIS merkjum sínum. Landrafmagn til skipa Fyrir nokkrum árum var því hafnað að koma upp möguleikum fyrir skemmti- ferðaskip sem komu til hafnar í Kaup- mannahöfn að tengjast landrafmagni. Nú hafa orðið umskipti á því hjá sveitar- félaginu sem í samstarfi við Kaupmanna- hafnar Málmeyjar höfn ætla í sameiningu að hanna landtengingarkosti fyrir þessi skip í Norðurhöfninni. Vaxandi fjöldi skemmtiferðaskipa fylla höfnina í Kaupmannahöfn með þúsund- um af verslunarþyrstum farþegum en þessi skip menga gífurlega meðan þau liggja við bryggju með vélar í gangi. Ekki ólíkt því sem við þekkjum af heimsókn- um þeirra hingað til lands. Tekist hafa samningar milli sveitarfélagsins Kaup- mannahafnar, Kaupmannahafnar Málm- eyrar hafnar og By&Havn um að koma upp landtengingu fyrir skemmtiferðaskip eigi síðar en 2021 og hefur hver aðili lagt til 1,5 milljónir DKR til verkefnisins. Kaupmannahafnarbúar og þeir sem búa við höfnina eiga heimtingu á að geta dregið að sér ferskt og heilbrigt loft að sögn yfirborgarstjóra borgarinnar Frank Jensen. Þessi umskipti hafa verið borg- inni dýr því að þegar hætt var við að raf- væða við höfnina 2016 en þá fengu þeir tilboð frá Powercon sem ætlaði að koma upp tengingu þeim að kostnaðarlausu. Var það verðmetið á 30 milljónir DKR en í staðinn var búnaðurinn gefinn til Noregs. Bent hefur verið á að skemmti- ferðaskip sem liggur við bryggju í átta tíma mengar álíka og 10.000 fólksbílar sem aka frá París til Berlínar. Vonandi munu þeir næst banna reykingar á götum úti svo fólk geti dregið enn ferskara lofti að sér. Útblástunarhreinsibúnaður Skipafélög um allan heim hafa varið milljörðum í að útbúa skip sín með blekkingarbúnaði að sögn dagblaðsins Independent. Er það skoðun þeirra að út- gerðir séu að búa skip sín með búnaði sem einungis er ætlaður til að sniðganga nýjar loftmengunarkröfur. Um er að ræða svokallað Scrubber kerfi sem á íslensku hefur verið kallaður útblástunarhreinsi- búnaður. Yfir 12 milljörðum dala hefur verið varið í að búa skip þessum búnaði sem ætlað er að draga úr brennisteinsút- blæstri skipa sem keyra vélar sínar á svartolíu. Tvennskonar kerfi eru í boði sem eru opin eða lokuð kerfi. Lokuðu kerfin safna úrgangsefnunum um borð í skipunum og síðan er þeim komið á land til förgunar. Opnu kerfin hinsvegar eru þannig að úr- gangurinn er settur í sjóinn. Um næstu áramót ganga í gildi nýjar kröfur Alþjóðasiglingamálastofnunarinn- ar um losun koltvísýrings í útblæstri skipa. Independent benti á að hér væri aðeins verið að færa mengunina úr lofti og niður í sjó. Samkvæmt upplýsingum frá DNV GL flokkunarfélaginu, sem er stærsta flokkunarfélag heims, hafa verið og/eða verið að breyta alls 3.756 skipum með því að koma fyrir útblástunarhreinsi- búnaði. Einungis 23 þeirra hafa verið búin lokuðum kerfum en gert er ráð fyrir að alls verði 4.000 skip komin með þenn- an búnað um áramót. Eitt skip í íslenskri eigu er búið opnu kerfi en það er Lagarfoss í eigu Eimskips en búnaðinum var komið fyrir fyrr á þessu ári. Skipafélagið er með tvö skip í smíðum í Kína en þau verða bæði búin lokuðum kerfum. Alþjóðaráð um hreinar samgöngur (International Council on Clean Transportation - ICCT) áætlar að um 4 milljónir tonna af svartolíu fari á næsta ári í gegnum þennan búnað og að um 180 milljón tonn af menguðum efn- um verði dælt fyrir borð á sama tíma frá skemmtiferðaskipum og þá eru öll önnur skip ótalin. Hafa skal samt í huga að þau skip eru að sækjast eftir að sigla inn á viðkvæmt náttúrusvæði sem t.d. gáma- skip sækjast síst eftir að heimsækja. Þá mun olíunotkun skipa með útblástunar- búnaði eyða um 2% meira eldsneyti. Í janúar tilkynntu hafnaryfirvöld í Sjómannablaðið Víkingur – 43

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.