Fréttablaðið - 19.08.2022, Blaðsíða 1
1 8 8 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s F Ö S T U D A G U R 1 9 . Á G Ú S T 2 0 2 2
Um hvað
reiddust goðin?
Madonna
hyllt í Paradís
Lífið ➤ 16 Lífið ➤ 18
Laugavegi 174, 105 Rvk.
Er bíllinn klár í ferðalagið?
Kíktu inn á vefverslun Heklu
sem er alltaf opin www.hekla.is
VILTU VINNA
MILLJÓN?
Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs og starfandi borgarstjóri, tók á móti gestum í Ráðhúsinu í gær er foreldrar
barna á biðlista í leikskóla fjölmenntu í mótmælaskyni. Til að minna á alvöru málsins tóku foreldrarnir börn sín með.
Einar segir nú rætt um tillögu um biðlistabætur til foreldra. Gæti kostnaður hlaupið á milljörðum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Drífa Snædal nýtur 49,4
prósenta stuðnings í nýrri
Gallup- könnun þar sem spurt
er hverjum fólk treystir best
til að vera forseti ASÍ. Ragnar
Þór Ingólfsson er með 20,9
prósenta stuðning og Vil-
hjálmur Birgisson þriðji með
17,9 prósent. Ein þeirra sem
stóð að könnuninni segir
embættið afar mikilvægt.
ninarichter@frettabladid.is
STÉTTARFÉLÖG Drífa Snædal, fyrr-
verandi forseti Alþýðusambands
Íslands, fékk yfirgnæfandi stuðn-
ings almennings til forystu í sam-
bandinu samkvæmt nýrri könnun
sem Gallup framkvæmdi dagana 4.
til 15. ágúst.
Tæpur helmingur þeirra sem tóku
afstöðu treysti Drífu best til að leiða
sambandið og var stuðningurinn
óháður breytum eins og menntun,
búsetu, tekjum og stjórnmálaskoð-
unum, nema meðal kjósenda Sósí-
alistaflokksins sem sögðust treysta
Ragnari Þór Ingólfssyni, formanni
VR, best.
Drífa sagði af sér sem forseti ASÍ
10. ágúst, eða fimm dögum áður en
könnuninni lauk. Kann það að hafa
haft áhrif á niðurstöður.
Að könnuninni stóð hópur sem
kallar sig Áhugafólk um málefni
verkalýðshreyfingarinnar.
Í öðru sæti var Ragnar Þór, en
ríflega fimmtungur sagðist treysta
honum best til að leiða ASÍ. Í þriðja
sæti var Vilhjálmur Birgisson, for-
maður Starfsgreinasambandsins.
Sitjandi forseti ASÍ, Kristján Þórð-
ur Snæbjarnarson, fékk stuðning 5,7
prósenta þeirra sem tóku afstöðu og
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður
Eflingar, var nefnd af 6,1 prósenti.
Nánast engir kjósendur Fram-
sóknarf lokksins og Sjálfstæðis-
flokksins sögðust treysta Sólveigu
Önnu, sem naut meiri stuðnings
meðal Pírata, Sósíalistaf lokksins
og Flokks fólksins.
„Þetta embætti er rosalega
mikilvægt og mikilvægt að það sé
trúverðug manneskja sem nýtur
trausts í þessari stöðu,“ segir Ólöf
Helga Adolfsdóttir, ritari stjórnar
Ef lingar og fyrrverandi varafor-
maður, sem er fulltrúi hópsins sem
stóð að könnuninni.
Helmingur vildi
sjá Drífu leiða ASÍ
Hverjum treystir þú best til
að leiða Alþýðusamband
Íslands næstu tvö árin?
49,4%
20,9%
17,9%
6,1%
5,7%
n Drífu Snædal
n Ragnari Þór Ingólfssyni
n Vilhjálmi Birgissyni
n Sólveigu Önnu Jónsdóttur
n Kristjáni Þórði Snæbjarnarsyni
Úrtakið var 1.673 manns af öllu landinu,
18 ára og eldri og var handahófsvalið úr
Viðhorfahópi Gallup. Könnunin var net-
könnun og fjöldi svarenda var 842.
„Við vildum sjá hver staðan væri
og mér persónulega finnst Drífa
njóta mikils trausts og það er
kannski eitthvað sem manni fannst
ekki heyrast mikið í umfjöllun-
inni,“ segir Ólöf Helga. „Stuðningur
við Drífu kom mér ekki á óvart en
það var gaman að fá staðfestingu.“
Hvorki náðist í Drífu né Ragnar
Þór en Vilhjálmur Birgisson segist
djúpt snortinn yfir þriðja sætinu.
„Það veitir manni áframhaldandi
trú á að maður sé á réttri leið í því
að berjast fyrir bættum hag. Sér-
staklega þeirra sem höllustum fæti
standa í íslensku samfélagi,“ segir
Vilhjálmur.
Aðspurður hvort niðurstöð-
urnar komi honum á óvart segist
Vilhjálmur halda að þeir sem
tóku þátt í könnuninni hafi ekki
vitað hvað hafi gengið á og í hverju
ágreiningurinn sé fólginn.
Vilhjálmur kveðst hæstánægður
með að sjá Ragnar í öðru sæti. „Mér
líst frábærlega á það. Samstarf
okkar Ragga hefur verið frábært
og hann er vel að því kominn,“ segir
hann. n