Fréttablaðið - 19.08.2022, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 19.08.2022, Blaðsíða 29
Hvað er að gerast núna um helgina? Föstudagur Laugardagur Sunnudagur20. ág. 19. ág. 21. ág. n Jákvæðar fréttir vikunnar Láglaunafólki gefnar sólarrafhlöður Ríkisstjórn Delaware ætlar að gefa láglaunafólki í ríkinu, sem vill taka upp umhverfisvæna orkuöflun, ókeypis þakplötur með sólarrafhlöðum. ALLT kynningarblað 7FÖSTUDAGUR 19. ágúst 2022 n Hugleiðsla fyrir alla Óðinstorgi kl 10.00 Thelma Björk jógakennari og fatahönnuður heldur úti möntruhugleiðslumorgnum í Systrasamlaginu á föstudögum í sumar. Hægt er að setjast hvar sem er á torginu og börn eru sérstaklega velkomin. n Hádegisganga Grasagarðurinn kl. 12.00 Hálftímalöng hádegisganga um Grasagarðinn í Reykjavík. Umfjöllunarefni göngunnar hverju sinni helgast af þeim tegundum sem eru í blóma þá stundina. Göngurnar hefjast við aðalinngang garðsins og eru endurteknar á ensku kl 12.40. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis. n Tunglið og ég Fríkirkjan í Reykjavík kl. 12.00 Heiða Árnadóttir söngkona, Gunnar Gunnarsson píanó- leikari, Þorgrímur Jónsson bassaleikari og Haukur Grön- dal klarínettuleikari flytja lög eftir tónskáldið Michel Legrand (1932-2019) sem hefði orðið níræður í febrúar. Legrand er helst þekktur fyrir að hafa samið söngleiki og tónlist fyrir kvikmyndir. n Leiðsögn um Árbæjarsafn Árbæjarsafn kl. 13.00 Leiðsögumaður teymir gesti um hús og sögusýningar Árbæjar- safns. Safnið er útisafn, stofnað árið 1957, en auk Árbæjar eru rúmlega tuttugu hús á svæðinu sem mynda torg, þorp og sveit. Á safninu er leitast við að gefa hugmynd um byggingarlist og lifnaðarhætti í Reykjavík á 19. og 20. öld. n Menningarnótt í Reykjavík Afmælishátíð Reykjavíkurborgar fer fram með pompi og prakt víðs vegar um borgina. Hátíðin er alltaf haldin fyrsta laugardag eftir 18. ágúst, en þann dag árið 1784 fékk borgin kaupstaðar- réttindi. Fyrsta Menningarnótt var haldin árið 1996 og slegið er upp veislu um borgina gervalla og endilanga. Sérstakt Menningarnætur- viðburðadagatal má finna á öðrum stað hér í blaðinu, og þar má einnig finna kort af mið- borginni þar sem búið er að merkja inn helstu viðburði. Við hvetjum fólk til að kynna sér samgönguleiðir í tengslum við hátíðarhöldin, en götuloka- nir verða víða miðsvæðis auk þess sem ekki verður heimilt að leggja leigurafhjólum á ákveðnum svæðum í mið- bænum. Ókeypis er í strætó. n Listamannaspjall – Sigurður Ámundason Hafnarborg í Hafnarfirði kl. 14.00 Sunnudaginn 21. ágúst kl. 14 verður boðið upp á listamanna- spjall um sýningu myndlistar- mannsins Sigurðar Ámunda- sonar, What’s Up, Ave Maria?, en þá er jafnframt lokadagur sýningarinnar. n Píanótónleikar Hilary Baird Kaldalón í Hörpu kl. 14.00 Bandaríski píanistinn Hilary Baird leikur verk Chopin, Bach, Beethover, Schubert, Debussy og Mendelssohn auk eigin verka. n Guitar Islancio – Suðurlands- djass #6 Reykjadalsskála í Hveragerði kl. 15.00 Guitar Islancio með Björn Thor- oddsen, Þórð Árnason og Jón Rafnsson innanborðs. Tónleika- röðin er styrkt af SASS. n Lokatónleikar Orgelsumars Hallgrímskirkja kl. 17.00 Björn Steinar Sólbergsson, organisti í Hallgrímskirkju, ásamt Cantores Islandiæ og karlaröddum úr Kór Hallgríms- kirkju, kemur fram á lokatón- leikum Orgelsumars í Hallgríms- kirkju undir stjórn Ágústs Inga Ágústssonar. Hópurinn flytur tónlist undir yfirskriftinni Orgel & Gregorsöngur eftir Duruflé, Pál Ísólfsson, Franck og Tour- mermire.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.