Fréttablaðið - 19.08.2022, Page 6
kristinnhaukur@frettabladid.is
MENNING Lilja Dögg Alfreðsdóttir,
menningar- og viðskiptaráðherra,
kynnti á miðvikudag drög að fyrstu
heildarlögunum um tónlist og nýja
tónlistarstefnu stjórnvalda til ársins
2030.
Samkvæmt stefnunni verður
meðal annars komið á fót tónlistar-
miðstöð og tónlistarráði. Þá verður
styrktarkerfið einfaldað.
„Tónlistin er orðin stór hluti af
ímynd Íslands, menningarlífi og
atvinnulífi. Þess vegna er mikilvægt
að hafa skýra stefnu og umgjörð
utan um greinina,“ segir Jakob Frí-
mann Magnússon, formaður starfs-
hóps ráðherra sem skilaði skýrslu
um málaflokkinn árið 2021.
„Tónlistarmiðstöð skiptir máli til
að framfylgja stefnunni og tryggja
að það fjármagn sem við leggjum
í greinina nýtist sem best,“ segir
Jakob.
Meðal þeir ra aðgerða sem
kynntar eru í stefnunni er að tón-
leikastaðir og -haldarar geti sótt um
styrki til umbóta á aðstöðu eða tón-
leikaraða, efla rekstrarstuðning við
tónleikahátíðir, endurskoða reglur
um hljóðritunarkostnað, ráðast
í kynningarátak á þeim störfum
sem tónlistargeirinn býður upp á,
efla rannsóknir og mælingar í tón-
list og móta staðla um hvernig megi
minnka kolefnisspor í greininni.
Hvað menntun varðar verður
lögð áhersla á að styðja verkefni
sem miða að því að auka áhuga og
aðgengi barna að tónlist, endur-
skoða fyrirkomulag listnáms og
auka kynningu á kennaramenntun
í tónlistarkennslu. En í stefnunni
segir að börn og unglingar á öllum
skólastigum eigi að geta haft aðgang
að tónlistarnámi óháð bakgrunni
og búsetu. Það er ekki staðan í dag.
„Það er brýnt að samtvinna
tónlistarnám inn í menntastefnu
okkar,“ segir Jakob Frímann. „Því
miður eru mun fleiri sem vilja kom-
ast að í tónlistarnám en hægt er að
taka á móti.“ n
Stjórn Landspítalans
mótar langtímastefnu,
gerir starfs- og fjár-
hagsáætlanir og tekur
ákvarðanir um stór
atriði í rekstrinum.
Enn fara um 80 pró-
sent orkunnar til
íslenskra gagnavera í
rafmyntagröft.
Því miður eru mun
fleiri sem vilja komast
að í tónlistarnám en
hægt er að taka á móti.
Jakob Frímann
Magnússon, al-
þingismaður og
formaður starfs-
hóps menn-
ingarráðherra
Orkukreppan hefur leikið
rafmyntafyrirtæki grátt.
Sífellt fleiri ríkisstjórnir verða
afhuga iðnaðinum og virði
myntanna hefur lækkað
mikið.
kristinnhaukur@frettabladid.is
VIÐSKIPTI Þeir sem versla með og
grafa eftir rafmyntum sjá fram á
erfiðan vetur. Sífellt er þrengt að
námagreftri og nýir staðir sem opn-
ast hafa reynst óstöðugir. Hlutfall
bitcoin sem grafið er eftir á Íslandi
hefur lækkað úr 8 prósentum niður
í innan við 0,2 prósent.
Orkukreppan hefur leikið raf-
myntaiðnaðinn afar grátt. Mörg
orkufyrirtæki hafa tekið þá ákvörð-
un, eða verið fyrirskipað, að stöðva
orkusölu til rafmyntagraftar eða
bæta ekki meira við.
Landsvirkjun er eitt þessara fyrir-
tækja, en í desember síðastliðnum
var tekin ákvörðun um að auka ekki
við orkusölu til rafmyntagraftar
þrátt fyrir gríðarlega mikla eftir-
spurn að utan.
Um það leyti var virði rafmynta
í hæstu hæðum. Þann 8. nóvember
mældist virði bitcoin, langstærstu
rafmyntarinnar, tæplega 8,8 millj-
ónir. Virðið var byrjað að falla hratt
fyrir stríðið í Úkraínu en það hjálp-
aði ekki til.
Um miðjan júní var virðið komið
undir 2,5 milljónir króna en hefur
verið nokkuð stöðugt síðan þá.
Margir kvíða þó vetrinum þegar
þrengt gæti enn frekar að orkunni
og rafmyntagröftur er orkufrekur
iðnaður svo vægt sé tekið til orða.
Enn þá eru nærri 80 prósent
af þeirri orku sem fer til íslensku
gagnaveranna notuð til að grafa
eftir rafmyntum, það er Etix,
Atnorth, Reykjavík Data Center og
Verne.
Stjórnendur eru þó farnir að
horfa til þess að skipta þeim út
fyrir annars konar gagnageymslu.
Til dæmis greindi Dominic Ward,
forstjóri Verne, frá því í viðtali við
Kjarnann að þegar væri búið að
ákveða að framlengja enga samn-
inga við bitcoin-grafara.
Um árabil var langmest af raf-
mynt heimsins grafin í Kína. Kín-
versk stjórnvöld hafa hins vegar
snúist gegn rafmyntum og bannað
eða þrengt verulega að greftrinum.
Hefur hlutfall þess bitcoin sem
unnið er í Kína lækkað úr 80 pró-
sentum í 20 og mun á endanum fara
niður í 0.
Texasfylki bauð rafmyntum
opinn faðminn og eru Bandaríkin
því í dag sá staður þar sem mest er
grafið. Til að mynda 38 prósent alls
bitcoin.
Samkvæmt Bloomberg hefur árið
2022 hins vegar leikið námufyrir-
tækin í Texas grátt því hitastigið
hefur verið hátt og erfitt að halda
búnaðinum köldum. Þá hafa reglu-
lega komið upp rafmagnstruflanir
og þar sem virði bitcoin hefur verið
í frjálsu falli eiga fyrirtækin erfitt
með að borga sína reikninga.
Næstflestir f lúðu til Kasakstan,
13,2 prósent, og þar er ástandið
lítið skárra. Afar miklar truflanir
hafa verið á bæði raforkudreifingu
og netsambandi þar í landi frá ára-
mótum. Þarlend stjórnvöld hafa líka
snúist gegn rafmyntaiðnaðinum
og eru nú sögð íhuga 500 prósenta
skatt á allan rafmyntagröft sam-
kvæmt Investment Monitor.
Ýmsir veltu því fyrir sér hvort
Rússar myndu taka við því hlut-
verki að grafa eftir rafmyntum fyrir
heiminn. Þeir sætu á nægum birgð-
um af orku sem færri vilja kaupa af
þeim eftir að stríðið í Úkraínu hófst.
En svo er ekki því í síðasta mánuði
undirritaði Vladímír Pútín lög þar
sem öll viðskipti með rafmyntir eru
bönnuð. n
Rafmyntafyrirtæki óttast
orkuskort á komandi vetri
Það útheimtir gríðarmikla raforku að grafa eftir rafmyntum og sú orka verður sífellt dýrari. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
kristinnhaukur@frettabladid.is
STJÓRNSÝSLA Árlegur kostnaður
við stjórn Landspítala er 27.567.540
krónur samkvæmt áætlun spítalans.
Er þetta um þriðjungi hærra en heil-
brigðisráðuneytið gerði ráð fyrir.
Í greinargerð með frumvarpi Will-
ums Þórs Þórssonar heilbrigðisráð-
herra frá því í janúar kom fram að
gert var ráð fyrir kostnaði upp á
rúmlega 20 milljónir króna árlega
vegna stjórnar Landspítalans.
Í svari Landspítalans við fyrir-
spurn Fréttablaðsins kemur fram
að Björn Zoëga stjórnarformaður sé
með 450 þúsund krónur á mánuði í
laun og heildarkostnaður við hann
sé tæpar 6,5 milljónir króna með
launatengdum gjöldum. Fjórir aðrir
aðalmenn eru með 225 þúsund og
heildarkostnað upp á tæpar 13
milljónir. Þá eru fimm varamenn
og áheyrnarfulltrúar með 112.500
krónur í laun sem gerir kostnað upp
á rúmlega 8 milljónir.
Gert er ráð fyrir einum stjórnar-
fundi í mánuði. Ekki hafa f leiri
útgjöld verið ákvörðuð, utan minni
háttar fundakostnaðar.
Willum Þór skipaði fyrstu stjórn
Landspítala í júlí en stjórnarmenn
eru skipaðir til tveggja ára í senn.
Stjórnin á meðal annars að marka
spítalanum langtímastefnu, gera
bæði starfsáætlun og fjárhagsáætlun
og taka ákvarðanir um veigamikil
atriði í rekstrinum. n
Stjórn spítalans dýrari en áætlað var
Willum Þór
Þórsson, heil-
brigðisráðherra
Ráðherra hyggst koma á fót bæði
tónlistarmiðstöð og tónlistarráði
thorgrimur@frettabladid.is
BANDARÍKIN Allen Weisselberg,
fyrrverandi fjármálastjóri hjá fyrir-
tækjasamsteypu Donalds Trump,
fyrrverandi Bandaríkjaforseta,
játaði á sig sök vegna brota á skatta-
lögum við þingfestingu dómsmáls
gegn honum í gær.
Weisselberg játaði sig sekan í alls
fimmtán ákæruliðum og hefði átt
yfir sér allt að fimmtán ára fang-
elsisdóm.
Líklegt er að dómurinn verði
mildaður vegna játningarinnar og
vegna samkomulags Weisselbergs
um að bera vitni gegn fyrirtækinu.
Hann neitar aftur á móti að bera
vitni gegn Donald Trump sjálfum.
Saksóknarinn á Manhattan,
Alvin Bragg, sem lagði fram kærurn-
ar í málinu, sagðist hlakka til að fara
með mál gegn Trump-stofnuninni
fyrir rétt og sagði samkomulagið
við Weisselberg sýna ótvírætt fram
á brot fyrirtækisins. n
Fjármálastjóri Trumps játar sök
arnartomas@frettabladid.is
JAPAN Ríkisstjórnin í Japan hefur
sett af stað keppni þar sem óskað er
eftir hugmyndum til að fá fólk til að
drekka meira áfengi.
Hvatinn að baki keppninni er við-
horfsbreyting hjá ungu fólki þegar
kemur að áfengi sem hefur leitt til
lægri skatttekna. Ungir Japanir eru
því hvattir til að koma með tillögur
til að endurvekja vinsældir áfengra
drykkja.
Samkvæmt skattstofu Japans
hefur árleg áfengisneysla þar í landi
dregist saman úr að meðaltali 100
lítrum á íbúa árlega árið 1995 niður
í 75 lítra árið 2020. Þessi samdráttur
hefur komið niður á skatttekjum
ríkissjóðs sem er þegar rekinn með
talsverðum halla. n
Japönsk stjórnvöld hvetja til drykkju
Dregið hefur úr drykkju Japana.
Weisselberg játaði sig sekan í gær og ætlar að bera vitni gegn fyrirtæki Trumps.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
6 Fréttir 19. ágúst 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ