Fréttablaðið - 19.08.2022, Qupperneq 24
100% Black
60% Magenta
100% Yello
www.stilvopnid.is | bjorg@stilvopnid.is | s. 899-6917
Námskeið
haustannar 2022
SKAPANDI SKRIF
helgarnámskeið 30. september – 2. október
HETJUFERÐIN – RITLISTARNÁMSKEIÐ
fimmtudagskvöld 6. – 27. október
SKOÐANA- OG ÞEKKINGARSKRIF
helgarnámskeið 21. – 23. október
ENDURMINNINGASKRIF
mánudagskvöld 31. október – 21. nóvember
FÉLAGSÖRVUN – AÐ SKAPA ÖRUGG RÝMI
að morgni 2. og 3. nóvember
SKÖPUNARSMIÐJA
helgarnámskeið 18. – 20. nóvember
Björg Árnadóttir, rithöfundur og
ritlistarkennari, kennir öll námskeiðin
og veitir ráðgjöf um ritun og útgáfu.
Opnar hugann, auðgar líf
Næsti umsóknarfrestur
um samstarfsverkefni
er 4. október kl. 10
www.erasmusplus.is
Einfaldasta leiðin fyrir skóla og sveitarfélög til að taka þátt í Erasmus+ samstarfi
Verkefni með að minnsta kosti einum samstarfsaðila í öðru landi
Styður jöfn tækifæri og virka þátttöku í skólum og nærsamfélaginu
Skólar landsins eru þessa
dagana að taka á móti
nemendum eða eru í start-
holunum til að hefja skóla-
starfið eftir sumarleyfi.
gummih@frettabladid.is
Hrönn Bergþórsdóttir, skólastjóri
Víðistaðaskóla í Hafnarfirði,
stendur til að mynda í ströngu en
hún ásamt kennurum skólans er
að undirbúa skólasetningu sem
verður á þriðjudaginn hjá 2.-10.
bekk og hjá 1. bekk degi síðar.
„Það er allt á fullu hjá okkur hér
í Víðistaðaskóla og gengur bara
vel. Nú eru sem betur fer engar
hömlur vegna Covid og það auð-
veldar starfið mikið. Mér sýnist
bara allir vera mjög glaðir og til-
búnir í haustið og veturinn,“ segir
Hrönn, sem hefur gegnt skóla-
stjórastarfinu í Víðistaðaskóla frá
árinu 2013. Hrönn segir að þrátt
fyrir að Covid-tíminn hafi verið
krefjandi þá hafi hann verið lær-
dómsríkur.
„Það er alltaf sem betur fer
ákveðinn spenningur og eftir-
vænting hjá krökkunum að snúa
aftur í skólann eftir sumarfríið.
Ég held að mesta spennan sé hjá
krökkunum að byrja í 1. bekk.
Þau hafa verið á leikjanámskeiði
í frístundastarfi hjá skólanum og
við finnum að þau eru full eftir-
væntingar. Okkur starfsfólkinu
líst mjög vel á hópinn,“ segir
Hrönn.
Börnin eru svo fljót
að læra á þessa tækni
Er námið ekki sífellt að taka
breytingum með endalausum
tækninýjungum?
„Jú, það er engin spurning. Við
í Hafnarfirði erum svo heppin
að við erum til dæmis með iPada
fyrir nemendur í 5.-10. bekk. Við
erum búin vera með þá í nokkur
ár þannig að við notum Google-
umhverfið óspart og margt fleira.
Covid-tíminn ýtti okkur líka
áfram í að nýta tæknina meira og
reynslan af notkun þessara snjall-
tækja hefur verið mjög góð. Þetta
hefur opnað fullt af möguleikum í
annars konar vinnu í skólanum og
það má með sanni segja að krakk-
arnir séu oftar en ekki komnir
lengra í þessum heimi heldur en
kennararnir. Börnin eru svo fljót
að læra á þessa tækni og eru áhuga-
söm um að takast á við nýjungar,“
segir Hrönn.
Stendur til að bjóða upp á eitt-
hvað nýtt á komandi skólaári í
Víðistaðaskóla?
„Við erum alltaf að gera ein-
hverja nýja hluti. Núna erum við
til að mynda að þróa áhugasviðs-
val á miðstigi og geta nemendur
valið út frá áhugasviði einu sinni
í viku. Það er alltaf spennandi
að þróa nýja hluti og nemendur
taka þátt í ákvörðunum um hvað
verður í boði. Við leggjum áherslu
á nemendalýðræði og er það hluti
af því að nemendur hafi áhrif á
hvað þeir læra. Á unglingastigi
erum við að vinna að samþættingu
námsgreina í stærri verkefnum en
það er á þróunarstigi. Við erum
alltaf vakandi fyrir því að bjóða
upp á eitthvað nýtt.
Ég get líka nefnt að við erum að
þróa ákveðna velferðarkennslu og
veita fjölskyldum ráðgjöf varðandi
velferð barna. Námsráðgjafinn
okkar var að koma úr námsleyfi
þar sem hún tók þetta svið sérstak-
lega fyrir. Þetta er mjög spennandi
og þáttur sem kemur til með að
styðja vel við nemendur og fjöl-
skyldur þeirra. Víðistaðaskóli er
annar skóli af tveimur sem buðust
að tilraunakenna nýtt námsefni
í lífsleikni í 8. bekk sem snýst um
að efla félags- og tilfinningafærni
ungmenna, setja eigin mörk, virða
mörk annarra og eiga í árangurs-
ríkum samskiptum við aðra og
fleira. Þetta er mjög spennandi
efni og tækifæri fyrir skólastarfið
hjá okkur.
Í skólastarfinu er lögð mikil
áhersla á líðan nemenda því ef
börnum líður vel þá gengur námið
betur. Það hefur orðið mikil breyt-
ing í öllu skólastarfi hvað þetta
varðar því við vitum mikið meira
í dag um þessi fræði. Skilgreining
á hegðun nemenda er allt önnur í
dag en áður og núna erum við upp-
lýstari um margs konar leiðir til
að koma til móts við mismunandi
þarfir nemenda,“ segir hún.
Hrönn segir að nemendafjöldi
á komandi skólaári í Víðistaða-
skóla verði 485. „Við erum ekki
lengur svona stór skóli eftir að
Engidalsskólinn varð sjálfstæður.“
Hrönn var einnig skólastjóri
Engidalsskóla samhliða skóla-
stjórastarfinu í Víðistaðaskóla þar
til fyrir tveimur árum en þá varð
Engidalsskóli sjálfstæður. „Það
eru 85 starfsmenn hjá okkur með
öllum skóla- og frístundaliðum.
Við hlökkum til að taka á móti
krökkunum og vonandi verður
þetta gæfuríkt og gott skólaár í alla
staði,“ segir Hrönn en leiðarljós
Víðistaðaskóla, sem stofnaður var í
september árið 1970, eru: Ábyrgð –
Virðing – Vinátta. n
Ef börnunum líður vel gengur námið betur
Skólasetning verður í Víðistaðaskóla í Hafnarfirði á þriðjudaginn.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Við erum alltaf að
gera einhverja nýja
hluti. Núna erum við til
að mynda að þróa áhuga-
sviðsval á miðstigi og
geta nemendur valið út
frá áhugasviði einu sinni
í viku.
10 kynningarblað 19. ágúst 2022 FÖSTUDAGURskólar og námskEið