Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2016, Blaðsíða 10
10 – Sjómannablaðið Víkingur
en til þess þurfti réttindi. Hann fór því og aflaði sér skipstjórn-
arréttinda, fyrst á námskeiði í Neskaupstað en svo einn vetur í
Stýrimannaskólanum í Reykjavík. Fram að því hafði samanlögð
skólaganga verið einn vetur í barnaskóla sem þó fór þannig
fram að taskan var oftast falin undir steini á morgnana og frekar
róið úr höfn á skektunni.
Á síldarárunum var pabbi að mestu á skipum Barðans h.f.
sem var útgerð Stefáns og Þórs Péturssona, sem voru umsvifa-
miklir útgerðarmenn og síldarsaltendur. Þar af lengst á Dagfara
ÞH 70. Í janúar 1973 bjargaði áhöfnin á Dagfara tveim skips-
höfnum á sama sólarhringnum fyrir austan land sem er alveg
einstakt í Íslandssögunni og vakti mikla athygli. Ég veit að
pabba þótti mjög vænt um að hafa getað komið öllum þessum
sjómönnum til bjargar og var stoltur af afrekinu, en vildi aldrei
ræða það mikið.
Árið 1974 tók hann við skipstjórn á Gísla Árna RE 375 á
móti útgerðarmanninum Eggerti Gíslasyni, en seinna
Magnúsi Þorvaldssyni. Gísli Árni var eitt af frægustu aflaskip-
um flotans. Þar var hann í mörg ár, en endaði síðan ferilinn á
nótaskipinu Erni KE 13 með löngu og einstaklega farsælu sam-
starfi við útgerðarmanninn Örn Erlingsson. Þegar pabbi hætti á
Erninum var hann kominn á áttræðisaldur en ennþá í fullu
fjöri.
Sem gestur á heimilinu
Þegar ég var strákur var pabbi lítið heima og merkisatburðir í
lífi fjölskyldunnar, svo sem fæðing barna og fleira, fóru gjarnan
fram hjá honum og úthöldin stóðu mánuðum saman. Fjöl-
skyldulífið lenti því alfarið á herðum móður minnar, Hlínar
Einarsdóttur, sem sinnti því með sóma í alla þessa áratugi, en
pabbi var sem gestur á heimilinu.
Þegar hann byrjaði á Gísla Árna RE 375 breyttist samt margt
því þá voru í fyrsta skipti á hans ferli tveir skipstjórar sem deildu
stöðunni. Við því varð að bregðast og hann keypti trillu, Vin ÞH
73, sem reyndist mikið gæfuspor og á honum reri hann til fiskjar
í fríum og eftir að hann hætti skipstjórn á stærri skipunum.
Vinur ÞH 73 í Naustavík. Sigurður eignaðist seinna annan bát með sama nafni og skráningarnúmeri. Mynd: Hafþór Hreiðarsson
Sigurður endaði ferilinn á nótaskipinu Erni KE 13.