Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2016, Qupperneq 12

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2016, Qupperneq 12
12 – Sjómannablaðið Víkingur Eins og lesa má gafst lengst af ekki tími fyrir önnur áhuga- mál, en um miðjan aldur byrjaði hann samt að stunda laxveiðar af kappi, einkum í Laxá í Aðaldal, sem voru honum til mikillar ánægju. Einnig stundaði hann rjúpnaveiðar mikið þegar hann var í landi á rjúpnatíma. Við feðgarnir vorum saman í mörgu þessu og ég byrjaði mjög ungur að fara með honum á sjó og í annan veiðiskap. Samstarfið gekk oftast vel en við vorum ekki alltaf sammála. Ég var ungur, metnaðarfullur og vitlaus en taldi mig samt kunna og vita flest betur. Pabbi þoldi það ekki alltaf enda var hann sjálfur þekktur fyrir að vera pallrólegur og yfirvegaður, sama hvað á gekk. Pabbi var laginn og vinsæll skipstjóri sem þurfti ekki að beita kröftum og öskrum úr brúarglugganum við veiðarnar eins og áður tíðkaðist mikið, en hefur sem betur fer minnkað. Það var alltaf létt skipsrúm hjá honum þó mikið fiskaðist oft. Lengst af var pabbi við mjög góða heilsu en eftir heilablæð- ingu fyrir nokkrum árum fór smám saman að halla undan fæti og síðustu mánuðir hafa verið erfiðir, en starfsfólk sjúkrahússins á Húsavík hefur annast hann af einstakri natni og þolinmæði. Ég held að í því ljósi hafi hann verið tilbúinn til að yfirgefa þetta líf núna og hefja í staðinn veiðar á hinum eilífu veiðilendum þar sem sólin aldrei sest. Þar mun veiðigyðjan alveg örugglega ekki bregðast honum frekar en fyrr, en spurning hvort veiðar eru ennþá frjálsar þar, sem mundi henta betur, eða hvort komið er kvótakerfi. Ég valdi mér sama starfsvettvang og pabbi og er við veiðar á fjarlægum miðum núna og komst ekki í land til að fylgja honum síðustu skrefin. Það var erfitt en enginn hefði skilið það betur en pabbi. Landað í Reykjavíkur- höfn Fram á 20. öld voru þetta vinnubrögðin við löndun. Og takið eftir skipunum á höfn- inni. Alvöru skútur og að minnsta kosti einn gufu-damp- ur. Báturinn við bryggju er hins vegar dæmigerður fyrir íslenska útgerð frá landnámi og fram undir vorn dag. Um aldir var róið á miðin. Gamla myndin Sigurður og eiginkona hans, Hlín Einarsdóttir. Mynd: Hafþór Hreiðarsson Vinirnir Sigurður og Hreiðar Olgeirsson rifja upp gamla tíma í skötuveislu sem haldin var í verbúð Arnars, sonar Sigurðar, á Þorláksmessu 2011. Það má heita að þeir hafi orðið samferða yfir á hinar eilífu veiðilendur, Hreiðar andaðist 18. janúar síðastliðinn og Sigurður rétt rúmum hálfum mánuði síðar. Mynd: Hafþór Hreiðarsson

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.