Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2016, Side 19

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2016, Side 19
Sjómannablaðið Víkingur – 19 mig, að brandarinn, sem ég hafði sagt honum hefði farið eins og eldur um sinu um diplomatíuna, eins og hann orðaði það. Það gladdi mig auðvitað að vita að þessi frá- sögn mín væri orðin heims- fræg. Þessi frásögn átti að vera sönn og er þessi (eflaust hafa einhverjir heyrt eða lesið hana áður en látum það vera): Þegar Tryggvi Ófeigsson útgerðarmaður ætlaði að láta reisa fiskiðjuver við Kirkju- sand, vildi hann líka að byggð yrði lítil fiskimjölsverksmiðja til að fullnýta aflann. Vegna ólyktar sem stafar óneitanlega af slíkri starfsemi og sérstak- lega þar sem hún væri í miðju íbúðarhverfi, þá var úr vondu að ráða. Verkfræðingur sá sem átti að hanna byggingarn- ar lagði nú höfuðið í bleyti og eftir miklar vangaveltur í langan tíma, kom hann með alls konar útreikninga, teikn- ingar og gögn til Tryggva og sagðist nú vera búinn að leysa vandamálið með ólyktina. Aðferðin átti að vera sú, að með því að leiða reykinn úr fiskimjölsverksmiðjunni neðansjávar út á tiltekið dýpi, sem hann var búinn að reikna út, þá yrði reykurinn orðinn lykt- arlaus, þegar hann kæmi upp á yfir- borðið. Tryggvi hlustaði lengi á allar út- skýringar verkfræðingsins með mikilli þolinmæði, en greip að lokum fram í fyr- irlestur verkfræðingsins og lagði eina spurningu fyrir hann: „Maður minn! Hafið þér nokkurn tíma rekið við í baði?“ Verkfræðingurinn starði lengi á Tryggva, en þar sem hann hafði jú rekið við í baði, þá rúllaði hann upp teikn- ingunum og tók saman gögnin og kvaddi. Þannig endaði hugmyndin um lyktarlausa gúanóverksmiðju á Kirkju- sandi. Þetta var þá sagan sem ég hafði sagt manninum í utanríkisþjónustunni. Það sem mér fannst skemmtilegast við frá- sögn hans var, að þegar búið var að segja söguna, þá hlógu flestir, sumir skildu söguna, aðrir þóttust skilja hana og hlógu líka til að ekki kæmi fram að þeir náðu ekki brandaranum. Einn slíkur viðurkenndi seinna að hann hefði ekki sætt sig við það, að hann gat ómögulega skilið þetta. Sá hefði farið fljótlega heim úr samkvæminu, látið renna í baðkarið og í það kominn rekið við og þá fyrst hefði hann skilið söguna og farið að hlægja, en á móti hefði hann verið nærri drukknaður, þegar baðvatnið fór að renna upp í hann. Ég ætla samt að biðja lesandann, hafi hann ekki skilið söguna, að fara ekki að láta renna í baðkarið heima hjá sér, eins og þessi maður gerði. Ekki það að ég hafi eitthvað á móti því að lesendur blaðsins þrífi sig endrum og eins, en bendi samt á að það getur verið ansi óþægilegt að fá sápuvatn upp í sig. Þá er það aftur hin hliðin á málinu, þ.e.a.s verkfræðingurinn. Setji maður sig í spor hans og um leið annarra, sem kynnu að lenda í svipuðum kringumstæðum. Það getur ekki hafa verið þægileg tilfinning fyrir hann og sjálfsálitið, að leggja fram alla sína sérfræðimenntun, þekkingu, tíma og kannski áratuga reynslu í eitthvert verkefni, sem er síðan afgreitt algjörlega út úr heiminum með spurningu almúga- manns, um hvort maður hafi ropað eða rekið við og málið þá dautt. Svellþykkur mjólkurhristingur Ég ætla að enda þessi skrif með einni dæmisögu. (Frelsarinn hafði líka gaman af að slá um sig með dæmi- sögum.) Ég var á sínum tíma sólginn í mjólkurhristing, shake, með jarðarberjabragði, en hann varð þá á hinn bóg- inn að vera svellþykkur, ekkert lap. Það var sama hvernig ég orðaði þetta í nýju ísbúðinni, mjög þykkur, sérstaklega þykkur, svellþykkur, hnausþykkur, en aldrei gat afgreiðslu- stúlkan náð þessu. Neyddist ég því til þess að lokum að grípa til örvæntingar- fullra ráða og sagði því við hana orðrétt. „Ég ætla að fá einn jarðarberjashake, sem á að vera svo þykkur, að áður en ég næ að soga nokkuð upp í mig verða nær- buxurnar farnar að togast upp í rassgatið á mér.“ Stúlkan horfði í forundran á mig í smástund. Snéri sér síðan við og útbjó umbeðið handa mér og viti menn þetta tókst. Ég fékk nákvæmlega það sem ég var að biðja um. Kostaði mig að vísu nokkrar sprungnar háræðar í höfðinu. Eini gallinn við þetta var í rauninni sá, að það tók svolítinn tíma að tosa nær- buxurnar út úr, þið vitið. Ég segi bara af þessu tilefni eins og hérinn sagði eftir að hann hafði nauðgað broddgeltinum. Engin rós er án þyrna. Frelsarinn sló um sig með dæmisögum og því þá ekki Jónas?

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.