Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2016, Page 26

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2016, Page 26
V íkingaskipasafnið í Hróarskeldu (Roskilde) er merki- legur staður fyrir margra hluta sakir. Víkingur setur sig aldrei úr færi um að heimsækja safnið. Á dögun- um – eða þar um bil – brá hann sér þangað að kanna hvernig víkingar hefðu það í þessari fornu höfuðborg Danaríkis. Niðurstaða? Ja, víkingarnir eru kannski ekki á hverju strái en safnið blómstrar. Þangað koma um 120.000 gestir á ári hverju og fer jafnt og þétt fjölgandi. Þar af eru útlendingar um 70%. Víkingur gekk í þann hópinn. Tók lestina frá Kaupmannahöfn, steig út í Hróarskeldu þar sem hann, ögn ráðvilltur, setti miðið á turn merktan Kvickly – er það ekki einhver súpermarkaður? – tók vinstri beygju undir turninum og gekk á sjávarlyktina til hafs uns hann rambaði á Vikingeskibsmuseet. Hróarskelda Á safninu í Hróarskeldu eru ekki bara víkingaskip. Frændur okkar Fær- eyingar eru snjallir sjósóknarar og sigldu löngum á áttæringum sem þess- um. Þetta voru sjö til átta metra langir bátar, sterkir, til að standast strauma og vinda, en léttir svo auðvelt væri að draga þá á land. Fljótlegt var að vinda upp segl á þessum bátum. Oftar var þó róið en siglt. Í Hróarskeldu er ekki minnst á íslenska sæfara en þar er að finna þennan norska bát – eða öllu heldur eftirlíkingu af því sem menn halda að hafi verið skipsbátur hins 24 metra langa Gauks- staðaskips sem Norðmenn fundu 1880. Þrátt fyrir siglutréð er ekki víst að bát- urinn hafi verið búinn segli. Mastrið er með öðrum orðum tilgáta skipasmiða á ofanverðri 20. öld. 26 – Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.