Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2016, Side 31
Sjómannablaðið Víkingur – 31
börnin í réttritun, spurðu þau hana
stundum, hvort um væri að ræða „e með
punkti eða e með gati?“
Til er digur pylsa, sem víða um land
kallast bjúga, og hefur lengst af verið
hvorugkyns og bjúgu í fleirtölu. Nú eru
sífellt fleiri farnir að hafa pylsuna kven-
kyns og tala þá um margar bjúgur, þar
sem það á við (eða á − strangt tekið −
hreint ekki við!). En það var raunar ekki
kyn bjúgna, sem er hér á dagskrá, heldur
það, að þessi fæðutegund gengur undir
þremur ólíkum nöfnum hérlendis, og á
hverjum stað er aðeins eitt þeirra notað í
daglegu máli. Þegar ég var barn í sveit að
sumarlagi hjá móðurforeldrum mínum
að Fremstafelli í Kinn heyrði ég aldrei
nefnt bjúga eða bjúgu, pylsan hét þar
sperðill og sperðlar í fleirtölu. (Ég þori
ekki lengur að skrifa fullum stöfum
„Fremstafell í Kaldakinn.“ Yfirleitt þarf
einhver málvís prófarkalesari þá að
breyta aukafallsmyndum þessarar fram-
lengingar á Bárðardal, í Köldukinn, en
ég hef fyrir satt að sveitin sé kennd við
kaldann í hafgolunni, sem leitar suður
(eða fram) Kinn og Bárðardal að áliðnum
góðviðrisdegi, fremur en að þar sé svo
kalt.)
Seinna komst ég að því að fyrirbærið
bjúga eða sperðill heitir í Skaftafells-
sýslum grjúpán og er víst hvorugkyns og
eins í eintölu og fleirtölu, sjálfsagt kelt-
neskt að uppruna. En nú er mál að snúa
sér frá málfræði og veðurfræði að því
alvöruleysi og þeirri hófsemd í umgengni
við sannleikann, sem átti að einkenna
þennan pistil.
Endurskoðað kort af höfuðborg
lýðveldisins og lögum komið
yfir Kópavog
Eftir stúdentspróf 1951 vann ég tvö sum-
ur hjá Skipulagsstjóra ríkisins (skrifstof-
an heitir eða hét löngu nafni sem ég er
búinn að gleyma en gaf til kynna að þar
væri hvers kyns þéttbýli á Íslandi
skipulagt).
Um þetta leyti var ljóst orðið, að ill-
þolanlegar skekkjur voru á korti af
höfuðborginni, sem notað var við að
skipuleggja ný hverfi, finna stað húsum,
lögnum fyrir heitt og kalt vatn og síma
og rafmagn. Ráðist var í gerð nýs korts;
að vísu þurfti ekki að mæla uppá nýtt
legu hverrar gangstéttarbrúnar. Mældir
voru þríhyrningar með horn á allmörg-
um stöðum, sem hátt stóðu eða sáust
víða að, innan bæjarlandsins og svæðis
utan þess, frá Engey og Viðey upp á
Vífilfell og Helgafell sunnan Hafnarfjarð-
ar og vestur að Gróttu og Seltjarnarnesi.
Út frá nýrri mælingu á innbyrðis afstöðu
þessara staða, og grunnlínu, sem starfs-
menn danska herforingjaráðsins mældu
Vissir þú að svefnskortur eykur hættu á að menn geri
mistök sem geta leitt til slysa. Láttu ekki þreytu og
svefnleysi sigla með þig í strand. Vökum yfir öryggi okkar.
EKKI SOFNA
Á VERÐINUM!
Örnólfur tók þátt í að koma skikki á skipulag Reykjavíkur.