Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2016, Qupperneq 32

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2016, Qupperneq 32
32 – Sjómannablaðið Víkingur afar nákvæmlega um aldamótin 1900, var kort alls Stórreykjavíkursvæðisins leiðrétt. Umsjón með þessum fram- kvæmdum hafði færasti mælingamaður skrifstofunnar og síðar skipulagsstjóri, Zóphanías Pálsson, og til verksins keypt- ur svissneskur hornamælir eða teodólít, vandaðri en nokkurt slíkt tól, sem fyrir var hérlendis, enda var fé til kaupanna sótt bæði í ríkissjóð og borgarsjóð. Ég var ráðinn sem aðstoðarmaður Zóphaníasar við mælingarnar sumarið 1951. Man ég að félagar mínir öfunduðu mig af því að ég vann aldrei þegar vel viðraði og sólin skein. Þá var tíbrá í lofti og allt í sjónsviði kíkisins á hornamælin- um var á iði. Ég naut þessarar veður- blíðu að vísu sjaldan, því ég var sem bundinn við símann, viðbúinn útkalli frá Zóphaníasi um leið og ský dró fyrir sól. Næsta sumar var ég talsvert inni við á skipulagsskrifstofunni og reiknaði út hornin í þríhyrningunum frá liðnu sumri út frá átta eða tíu stafa lógariþmatöflum af hornaföllum. Mörgum skemmtilegri bókum minnist ég að hafa flett um dag- ana. Á fyrri hluta 20. aldar spruttu upp í nágrenni Reykjavíkur, en utan skipulags- lögsögu höfuðborgarinnar, meðal annars við Kópavog, kofar og veglegri hús til ýmissa nota: áhaldageymslur og vinnu- skúrar, sumir hjá kartöflugörðum, hænsnakofar, sumarbústaðir, og í vax- andi mæli varanleg heimili. Um það leyti sem ég vann hjá Skipu- laginu var verið að koma skipulagi á Kópavog. Það gekk ekki andskotalaust, því víðast þar sem leggja átti stræti eða stórhýsi voru fyrir vistarverur eða önnur mannvistarmerki. Allt gekk þetta þó upp að lokum. Stundum fluttust íbúar í ný hús áður en lokið var lögnum í götuna. Til marks um þetta var, þegar læknir ræddi í síma við konu í nýju hverfi í Kópavogi, sem komin var „á steypirinn,“ og spurði: „Er vatnið komið?“ Hér átti doktorinn að sjálfsögðu við legvatnið, en konan svar- aði: „Nei, en hann Finnbogi Rútur hefur lofað því fyrir jól.“ Töluverð umbrot voru í pólitíkinni í Kópavogi, Oddviti Kópavogshrepps, Finnbogi Rútur Valdimarsson, var fyrir vinstra liðinu og heimaland hans var kallað Rútsland eða Rússland. Annar valdamaður þar um slóðir var Helgi Lár- usson frá Kirkjubæjarklaustri, sem flutti inn lúxusbíla frá Ameríku, Packard, og rak smurstöð og bensínstöð í Kópavogi. Veldi hans nefndist eðlilega Landið Helga, eða, vegna hollustu hans við heimaland Packardbílanna, Kanans Land. Úrvalsliðið Eftir að Bretar höfðu hernumið Ísland í síðari heimsstyrjöld sömdu bandarísk og íslensk stjórnvöld um það, í samráði við Breta, að Bandaríkjamenn tækju að sér að vernda landið. Bretar höfðu hér samt einhvern her þar til styrjöldinni lauk. Samkvæmt herverndarsamningnum var víst gert ráð fyrir að hingað yrði sent „úrvalslið.“ Svo er að sjá sem aðstand- endur samningsins hafi ekki túlkað þetta atriði eins. Íslendingar hafi búist við sómamönnum, sem treysta mætti til að styðja gamlar konur í hálku, en Banda- ríkjamenn hafi hugsað sér lið úrvals her- manna, vel búið vopnum og þjálfað í meðferð þeirra. Bandaríski rithöfundurinn John Stein- beck kryddar sögur sínar stundum stutt- um innskotum, að því er virtist óvið- komandi söguþræðinum. Í Þrúgum reiðinnar segir ein persónan kímnisögu um ungan sveitapilt, sem kemur á næsta bæ með kú til að leiða undir naut, og heimasætan kemur með nautið. Sem þau fylgjast með gangi náttúrunnar ókyrrist pilturinn og hefur orð á því, að hann vildi vera að gera hið sama og nautið. Stúlkan sér enga meinbugi á því: „Þú átt kúna!“ Skömmu eftir að bandarískur her sett- ist hér að, sást til nokkurra liðsmanna hans, þar sem þeir leituðu á íslenskar kýr og fóru að ráðum stúlkunnar í sögu Steinbecks. Athæfið vakti nokkra athygli, og um það var þetta kveðið: Úr því þetta úrvalslið iðkar kálfasmíði, hverju ætli úrhrakið í Ameríku ....? Úrvalslið bandarískra hermanna var sent til Íslands. Einhverjir veltu þó fyrir sér réttmæti þessarar fullyrðingar.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.