Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2016, Blaðsíða 36
36 – Sjómannablaðið Víkingur
stjórinn var því neyddur til að breyta stefnu enn á ný og halda í
suður átt í átt að landhelgi Portúgals. Ekki tók betra við því portú-
gölsk stjórnvöld sendu þá flota sinn á móti hinu laskaða skipi og
hindra frekari för þess.
Þessar þrjár þjóðir neituðu staðfastlega skipinu að leita neyðar-
hafnar en veðrið fór brátt að leika skipið grátt. Að morgni 19. nóv-
ember brotnaði skipið í tvennt og sökk síðar um daginn með þeim
afleiðingum að olía barst á land á Spáni en skipið var þá um 250
km undan strönd Spánar. Formaður ITF, Dave Heindel, sagði að
þessi niðurstaða væri loka andvarpið í þessari fjórtán ára tilraun til
að koma sök á herðar hinum aldna skipstjóra sem nú er 82 ára að
aldri. Búið hefði verið að hreinsa hann af sök í þessu máli í undir-
rétti sem og öllum þeim sem til þessa máls þekktu. Segir hann
jafnframt það von sína að litlar líkur séu á því að dómnum verði
fullnægt enda með öllu tilefnislaust að láta saklausan mann aftur í
fangelsi að ósekju.
Mál Mangouras er eitt versta dæmi um glæpsamlega knésetn-
ingu sjómanns. Margar stofnanir og einstaklingar lögðu honum lið-
sinni meðan á málinu hefur staðið en þessi niðurstaða minnir okk-
ur á að það þarf ávallt að vera á varðbergi gegn því óréttlæti sem
sjómenn eru beittir.
Heimaskítsmát
Hollenskur skipstjóri var nýlega dæmdur til réttindamissis fyrir að
sigla skipi frá Evrópu til Suð-Austur Indland með skip til niðurrifs.
Með þessari siglingu sinni braut hann bæði hollensk lög sem og
lög Evrópusambandsins sem heimila ekki þess konar niðurrif
skipa. Stéttarfélag sjómanna, Nautilius International, hefur bent á
þá hættu sem er samfara því að birta efni á samfélagsmiðlum en
skipstjórinn hafði hlaðið upp myndbandi á YouTube þar sem sjá
mátti hann við stjórnvölinn á skipi sem verið var að sigla á land til
niðurrifs. Reyndist þetta myndband vera einu sönnunargögnin
gegn honum í þessu máli. Má því með sanni segja að skipstjórinn
hafi orðið heimaskítsmát.
Landfestarnar burt
Verkfræði- og þróunardeildir fyrirtækjanna Wärtsilä og Cavotec
hafa komist að samkomulagi um að hanna fyrstu sjálfvirku land-
festar skipa auk rafhleðslu fyrir skip. Wärtsilä hefur þegar hannað
þráðlausa hleðslustöðvar meðan hið síðarnefnda hefur hannað
landfestakerfi fyrir ýmsar tegundir skipa. Með því að leggjast á eitt
ætla þessir aðilar að hanna búnað sem sér alfarið um að binda skip
við bryggjur og landtengja þau rafmagni. Verða því skip framtíðar-
innar frá Wärtsilä skipasmíðastöðinni þannig hönnuð að ekki þurfi
lengur að hafa landfestar um borð. Allar tengingar skipsins verða
því með einföldum hætti sem mannskeppnan kemur hvergi nærri.
Landtengingarnar á rafmagni munu geta flutt mun meira rafmagn
en hingað til hefur verið hægt eða allt að 1 MW. Brátt heyra land-
festatrossur sögunni til.
Nýjustu kröfum fylgt
Með nýjum reglum og svokölluðum Pólar kóða sem aðildarþjóðir
Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar (IMO) hafa samþykkt og hafið
innleiðingu á mun eldri skemmtiferðaskipum ekki lengur heimilt
að sigla inn á heimskautasvæði yfir sumarmánuðina. Verða útgerð-
ir sem hafa og ætla að sigla á þessi svæði að huga að nýjum skip-
um til þeirra verkefna.
Áströlsk útgerð, Australia’s Scenic Group, hefur þegar brugðist
við þessum auknu kröfum og hefur fyrirtækið lagt inn pönt-
un á 165 metra farþegaskipi frá Uljanik skipasmíðastöðinni í
Króatíu sem á að afhendast sumarið 2018. Skipið mun geta flutt
228 farþega og með rými fyrir 172 skipverja. Skipið, sem verður
smíðað að kröfum Bureau Veritas mun uppfylla allar kröfur til
skips til siglinga á heimskautasvæðum í samræmi við nýjustu og
ýtrustu kröfur. Skipið mun uppfylla kröfur um „Öruggt til hafnar á
ný“ en nútímakröfur gera ráð fyrir að skemmtiferðaskip eigi undir
flestum kringumstæðum að geta komist til hafnar þrátt fyrir að
hafa orðið fyrir áföllum. Allir klefar verða með sér svölum og svo
verður andveltibúnaður um borð sem er það öflugur að hann
virkar þrátt fyrir að skipið sé með öllu ferðlaust. Þá verður skipið
búið tveimur þyrlum auk kafbáts svo farþegarnir geti notið náttúr-
unnar bæði ofan og neðansjávar. Allur mengunarvarnarbúnaður
skipsins verður af nýjustu og afar öflugri gerð en einnig verður
skipið með svokallað Grænt vegabréf sem tryggir að þegar kemur
að niðurrifi skipsins í fyllingu tímans að engin skaðleg efni séu í
skipinu sem geti torveldað niðurrif þess.
Landfestar að hverfa.