Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2016, Page 40

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2016, Page 40
40 – Sjómannablaðið Víkingur Nei. Einu sinni sem oftar fór hann úr axlarlið þegar við vorum að veiða í stóru ánni heima í Montana. Handleggurinn hékk bara slyttislegur niður með síðunni en vinurinn aumkaði sér ekkert. Menn finna ekki svo mikið fyrir þessu fyrst en svo versnar það og er verst þegar hand- leggnum er troðið aftur í liðinn. Þá öskra þeir. Þá gráta jafnvel hraustustu karl- menni. Þegar hjúkkan var að koma honum aftur í liðinn þá argaði hann alveg ógur- lega og hún bað hann að hafa sig hægan, þetta væri ekki svona agalegt, hann væri eins og kona við barnsburð. Og þá svar- aði minn maður: Heyrðu mig, heillin, ég orgaði eins og kona við barnsburð þegar ég fór úr lið. Nú er eins og þú sért að reyna að troða barninu aftur inn í mig og hvernig heldurðu að konan tæki því? Ég horfði undrandi á George en fatt- aði síðan „brandarann“. Hann hló aftur á móti ógurlega að minningunni, svo inni- lega að það komu tár í augnkrókana en síðan fór hann að óa og æa og greip um fótlegginn á sér. Er allt í lagi með þig? spurði ég aftur. Jájá, ekkert að, sagði George hálf- grenjandi af hlátri eða sársauka. 4. Þannig vill til að ég á mér einn uppá- haldsstað í Neðriá og um morguninn hafði ég orðið var við nokkra laxa þar. Nú ók ég rakleiðis þangað enda var farið að húma að svo við máttum engan tíma missa. Ég yrði að koma karlinum í lax. Ég hálf hljóp niður að ánni og George skakklappaðist á eftir mér, augljóslega kvalinn í hverju skrefi. Ég setti á réttu fluguna, sýndi honum hvar hann ætti að standa, hvert hann ætti að kasta, hvernig hann ætti að lempa línuna og hvernig hann skyldi draga. George var fljótur að ná laginu á þessu og í fjórða kasti gerði hann allt rétt. Ég vissi að þetta væri óskastundin og draumakastið. Hann lyfti stönginni og það strekktist á línunni. Urgið í fluguhjólinu söng blítt eins og vorboðinn ljúfur í hausthúminu. Komdu með hann að landi svo ég geti háfað hann, sagði ég þegar vinurinn frá Montana hafði þreytt fiskinn í 20 mín- útur. Ég hafði mestar áhyggjur af því að hann myndi sprengja laxinn. Við verðum að fara að koma honum á land svo hann lifi þetta af! Hægan, hægan, hvíslaði George og þreytti fiskinn áfram. Eftir um hálftíma náði ég loks undir kviðinn á 70 sm hæng og lyfti honum upp á bakkann. Fiskurinn var augljós- lega örmagna en nú þurfti að taka mynd- ir, margar myndir. George stillti sér upp og ég rétti honum laxinn. Þegar nóg var komið af myndum, setti ég fiskinn aftur ofan í vatnið og reyndi að koma honum til lífs. George hélt áfram að kasta en ég stóð yfir laxinum í á að giska 20 mín- útur, beitti alls kyns lífgunartilraunum en allt kom fyrir ekki. Nú kom karlinn til mín og sagði: Þetta þýðir ekkert. Dreptu hann. Sem ég og gerði. Það var komið myrkur og George orðinn ánægður. Við héldum af stað heim til Akureyrar, ég úttaugaður en George alsæll og þreyttur. Ég bað hann að hafa engin orð um það að við hefðum neyðst til að drepa laxinn því bannað væri að drepa laxa í Neðriá, þar væri ein- göngu stundað veitt og sleppt. Ég er þögull sem gröfin, svaraði George. En góðu fréttirnar eru þá þær að við náðum laxi og slæmu fréttirnar eru þær að við náðum laxi. Hann hló. 5. Karlinn var sofnaður í framsætinu þegar við ókum yfir ræsið á Efriá. Í bjarma bíl- ljósanna sá ég Stinna frænda standa við veginn með lúkurnar kræktar í tvo risa- vaxna urriða sem drógust blóðugir eftir malbikinu. Ég þóttist ekki sjá hann og vonaði að hann þekkti ekki bílinn. George umlaði eitthvað um Vísakort upp úr svefni og ég hækkaði ofurlítið í út- varpinu þar sem Halldór Laxness las fyrir mig um skrýtna laxveiðimanninn í sögunni um Kristnihaldi undir Jökli. Kátur karl með bleikjutitt á enda línunnar.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.