Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2016, Blaðsíða 41
Sjómannablaðið Víkingur – 41
Vatnagarðar 16, Reykjavík, s. 568 6625, velarehf.is
Við látum dæluna ganga
• Dælur
• Dæluviðgerðir
• Ásþétti
• Rafmótorar
• Vélavarahlutir
Viðgerðir • Tæringarvarnir
Keramikhúðun
Fyrir Eftir
Það er víst alkunna, að mikill rígur er á milli Skag-
firðinga og Húnvetninga. Sá rígur snertir einkum
fernt: Hvorir eru betri hesta-, kvenna-, drykkju- og
söngmenn. Sýnist sitt hvorum, Skagfirðingum og
Húnvetningum.
Sú var tíð, að aðeins ein fæðingardeild var á
Norðurlandi vestra og var hún á Sauðárkróki. Ein
ljósmóðir var starfandi og var álag mikið á hana.
Nú gerist það dag einn, að þrjú sveinbörn fæð-
ast sama klukkutímann. Gengu fæðingar vel. Ein
móðirin var frá Sauðárkróki, önnur frá Blönduósi,
en hin þriðja var heimasæta úr Strandasýslu, en
þar hafði verið vetrarmaður frá Kongó, dökkur
mjög á kroppinn. Var hann vaskur til margar
vinnu og glöddust heimasætur mjög.
Vegna álags, því læknirinn hafði farið í rjúpur,
var ljósmóðirin ekki alveg viss hver mæðranna átti
hvaða barn. Sagði hún þá við feðurna, að þeir
skyldu sjálfir sækja sitt barn, þeir ættu að þekkja
þau! Skagfirðingurinn sagist munu fara fyrstur,
börnin hefðu fæðst á Sauðárkróki, hann væri á sko
á heimavelli. Svo varð. Hann fór inn og kom með
dökka barnið og þegar ljósan spurði hann hvers
vegna að hafði tekið það, svaraði hann um hæl:
„Heldur þú, að ég ætli að fara með Húnvetning
heim!“
BARNSFÆÐINGAR
Vetrarmaðurinn var frá Kongó. Myndin gæti sýnt aflasæla landa hans. Þó skal ekkert um
það fullyrt enda vísir menn giskað á að báturinn sé portúgalskur. En er það rétt?
Mynd: Björn Poulsen