Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2016, Blaðsíða 48

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2016, Blaðsíða 48
48 – Sjómannablaðið Víkingur ekki áður tekið beinan þátt í landhelgisgæslunni og nú varð ekki aftur snúið. Sneypuför Þórs norður í land Það má raunar heita merkilegt hversu illa gekk að slá skjaldborg um landhelgina. Þrátt fyrir orðaskakið út af leigunni á Þór hafði þingheimur strax árið 1919 samþykkt heimild til ríkisstjórnarinn- ar um að „kaupa eða láta byggja“ skip í þessu skyni. Við þetta var hnýtt, svo enginn dráttur yrði á málinu: „Fáist ekki hentugt skip til kaups, heimilast stjórninni að taka skip á leigu á meðan hún lætur byggja skip.“11 Forsætisráðherrann, Sigurður Eggerz, klóraði í bakkann á þinginu 1923. Það er rétt, viðurkenndi hann, að við höfum ekkert gert með lögin frá 1919, „nema ef leiga Þórs gæti heimfærst undir þær framkvæmdir“. Stóri þröskuldurinn eru fjárhagsvandræði ríkissjóðs, útskýrði forsætisráðherra – jú, jú, þetta heyrðum við á Alþingi í fyrra líka, sögðu einhverjir þingmenn, sem höfðu þá gagnrýnt ríkisstjórnina harkalega fyrir athafnaleysið í landhelgismálinu – en nú ætlum við að gera bragarbót á, hélt ráðherrann áfram. Við eigum von á kostnaðaráætlun um byggingu nýs skips og það skal ég segja ykkur „frá mínu brjósti“ að við verðum að eignast þetta skip, ekki aðeins til landhelgisgæslu heldur líka lögreglueftirlits.12 Það kveikti líka í mönnum að þetta sumar hafði ríkissjóður leigt Þór, og einn vélbát að auki, til að annast gæslu á síldarver- tíðinni fyrir norðan – sem hafði orðið sneypuför. Ekki síst varð blöðunum tíðrætt um tilraun Þórs til að taka enskan togara. Englendingarnir höfðu raðað sér við borðstokkinn og látið höggin dynja á Íslendingunum sem urðu frá að hverfa. Þannig höfðu 11 Alþingistíðindi 1919, A, II, bls. 1609. 12 Alþingistíðindi 1923, D, 722-723. Bretarnir ekki aðeins komist upp með lagabrot, og að snuða ríkissjóð um háar upp- hæðir í sektarfé, heldur einnig heiðursrán – eins og sneyptir hundar urðum við að hörfa, ræddu menn, sumir sögðu flýja. Sumarið eftir var sett fall- byssa um borð í Þór sem skömmu síðar sigldi norður til að sinna strandvörnum yfir síldveiðitímann. Eiríki rænt Sumarið 1924 ætluðu stjórn- völd sannarlega að reka af sér slyðruorðið; Þór verið vopnaður og að auki leigður 20 tonna vél- bátur frá Vestmannaeyjum, Enok, sem fór vestur að vakta firðina fram á haustið. Enn og aftur kom í ljós að vélbátar höfðu lítið í þessa gæslu að gera, Enok varð þetta sumar ítrekað fyrir ofbeldis- verkum landhelgisbrjóta en þó tók steininn úr þegar enskir lög- brjótar stálu stýrimanninum, Eiríki Kristóferssyni, af bátnum. Ei- ríkur hafði farið um borð í togara, Lord Carsson, við þriðja mann og tilkynnt skipstjóranum að hann væri í landhelgi. Sá glotti bara og bauð mútur en þegar þeim var neitað greip hann til hótana og dólgsláta. Ég hendi ykkur þá fyrir borð og má mig einu gilda hvort þið lendið í bátnum, sem þið komuð á, eða sjónum, hótaði sá enski en Eiríkur neitaði staðfastlega að fara frá borði þrátt fyrir orð skipstjórans og eindregin tilmæli félaga sinna. „Þeir eru vísir til þess að drepa þig“, höfðu þeir sagt að lokum þegar þeir kvöddu Eirík daprir í bragði. „Við sjáumst áreiðanlega aldrei framar“. Svo sneri Lord Carsson stefni til hafs og tók að lokum land í hafnar- borginni Hull. Þar snerist allt í höndunum á skipstjóranum. Útgerðarmaðurinn rak hann hið snarasta en var hinn blíðasti við Eirík og bauð honum far heim aftur til Íslands. Á morgun sendi ég togara í Hvítahafið, ég læt hann leggja lykkju á leið sína og skutla þér til Íslands, sagði Englendingurinn ljúfum rómi, og stóð við orð sín. Árið eftir að Eiríki Kristóferssyni var rænt hófst smíði fyrsta varðskips Íslendinga. Smíðinni miðaði vel áfram og sumarið 1926 kom loks hið langþráða varðskip til landsins undir nafninu Óðinn. Viku síðar, eða 1. júlí 1926, tók ríkið formlega við rekstri Þórs sem það hafði þá keypt af Vestmannaeyingum. Hefur sá dagur verið færður í sögubækur sem stofndagur Landhelgisgæslu Íslands. Lord Carsson hafnaði sig að lokum í Hull, með Eirík Krist- ófersson innanborðs, og tók útgerðarmaður skipsins vel á móti Eiríki en rak skipstjórann. Þannig stóð á að Englendingurinn átti annað skip er var á leið í Hvítahafið daginn eftir og bauð hann Eiríki að fljóta með en skipið yrði þá í staðinn sent á Íslandsmið. Þetta þáði Eiríkur og sigldi Bretinn með hann rakleiðis til Reykjavíkur, beið þar eftir honum í þrjá daga, og skutlaði honum því næst vestur þar sem Enok var. Ekkert vildi Eiríkur þiggja af reiðaran- um sem gat þó að lokum troðið upp á hann einum kassa af Gamla Carlsberg. „Skipið er hið vistlegasta undir þiljum, klefar vel útbúnir og rúmgóðir. Borðsalur háseta og kyndara er að fram- anverðu, á þilfari, en yfirmanna skipsins að aftanverðu, undir þiljum, og er hann lítill, en mjög vel útbúinn, sama er að segja um klefa yfirmanna. Þeir eru mjög prýðilega búnir. Tveir baðklefar eru í skipinu, annar fyrir skipherra, innar af klefa hans, en hinn fyrir skipshöfn alla. Tveir farþegaklefar eru á „Óðni“, hvor fyrir tvo farþega, og eru þeir klefar ágætlega búnir að öllu leyti. Fallbyssur hefir skipið tvær, með 57 m.m. hlaupvídd, og eru þær 10 m.m. víðari en byssan á „Þór.“ Morgunblaðið 25. júní 1926 Skipherra á Óðni var Jóhann P. Jónsson, sem áður var með Þór. Mynd: Landhelgisgæsla Íslands

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.