Fréttablaðið - 24.08.2022, Blaðsíða 32
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025
Önnu Sigrúnar
Baldursdóttur
n Bakþankar
Samfélagið á Blönduósi er í djúpri
sorg eftir mikinn hörmungarat-
burð. Hugur minn sem og samúð,
eins landsmanna allra, er hjá
Blönduósingum.
Eðlilega er mikill fréttaflutn-
ingur er af þessum vofveiflegu
atburðum. Nú, eins og fyrr þegar
alvarlegir atburðir verða er sam-
hliða umræða um fréttaflutning-
inn sjálfan. Er hann of mikill, of
ágengur, ósanngjarn eða eru fjöl-
miðlar að rækja sitt hlutverk eins
og við, sem ekki erum í kjölsogi
atburðanna, ætlumst til?
Þetta er ekki ný umræða.
Sjálf minnist ég þess þegar náin
vinkona fjölskyldunnar lést af
slysförum og eiginmaður hennar
heyrði af málinu í kvöldfréttum
útvarps. Slysið var sannarlega
fréttnæmt en engu hefði breytt
þó fréttaflutningur hefði beðið
þess að náðst hefði í allra nánustu
aðstandendur. Stundum er einnig
rætt um að fólk í áfalli sé ekki fært
um að tjá sig og því eigi að gefa
því grið. Það er gott viðmið, en
fáum rennur sjálfsagt úr minni
áhrifamikið viðtal, eða öllu heldur
eintal, Eiríks Inga Jóhannssonar í
Kastljósi 2012, örstuttu eftir sjóslys
undan Noregsströndum.
Hér takast á sjónarmið. Sam-
félag í sárum og nánustu aðilar
þarfnast tiltekinnar nálgunar en
samfélagið allt utan þess hrings
annarrar. Verkefni fjölmiðla er
að vega þessar þarfir og koma frá
sér eins góðum og nákvæmum
upplýsingum um málið og hægt
er, á sama tíma og atburðunum og
aðstandendum er sýnd tilhlýðileg
aðgát og virðing.
Staða fólks í áfalli er afar misjöfn
og það þarf sjálft að meta stöðu
sína og við hin að taka tillit í sam-
ræmi við það mat.
Hið fornkveðna sannast enn:
Aðgát skal höfð í nærveru sálar. n
Aðgát
Áskrift að upplifun
Vetur kemur
66north.is
Vatnagörðum 14 104 Reykjavík
litrof@litrof.is 563 6000 litrof.is
UMHVERFISVÆN
PRENTUN