Fréttablaðið - 24.08.2022, Blaðsíða 22
Merkisatburðir
Á þessu ári er ég í fyrsta
sinn stoltur af heimaland-
inu mínu. Úkraína er ekki
eins stórt eða sterkt land og
Rússland, en það sagði nei
við Rússa og sagði farðu
burtu, Pútín.
Íhor Stakh
Ég man sérstaklega eftir
tárum afa míns, Petro, sem
var hermaður sem varði
landið átján ára gamall
árið 1944. Hann hafði
beðið svo lengi eftir þess-
um degi… hann fór að biðja
til Guðs og gráta.
Olena Jadallah
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Elskulegi bróðir okkar,
mágur og frændi,
Sigurjón Grétarsson
Hátúni 10, Reykjavík,
lést á heimili sínu þann 18. ágúst.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Sigríður G. Kærnested, Erna Grétarsdóttir og fjölskyldur.
Ástkær faðir okkar,
afi, langafi og langalangafi,
Sveinn Jensson
matreiðslumaður,
áður til heimilis að Þykkvabæ 10,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 12. ágúst.
Útförin fer fram í kyrrþey. Sérstakar þakkir
til starfsfólks 4. hæðar Hrafnistu í Hafnarfirði.
Jón Heiðar Sveinsson Sigrún Harpa Hauksdóttir
Esther Selma Sveinsdóttir
Lilja Sveinsdóttir
Sveinbjörn Sveinsson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnbarn.
Elsku mamma okkar,
tengdamamma og amma,
Dóra Hannesdóttir
Didda,
Gullsmára 9,
lést mánudaginn 22. ágúst.
Útför hennar fer fram frá Kópavogskirkju
föstudaginn 26. ágúst klukkan 15.
Guðrún Jónsdóttir Steingrímur Hauksson
Freysteinn G. Jónsson Björg Kjartansdóttir
Edda Ólína S. Jónsdóttir
Kolbrún Jónsdóttir Ólafur Björnsson
Sigríður Jónsdóttir Heimir Barðason
og ömmubörn.
Elskulegur frændi okkar,
Steinþór Friðriksson
Lönguhlíð 1b, Akureyri,
lést af slysförum 10. ágúst síðastliðinn.
Útför hans hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hins látna. Hjartans þakkir fyrir
samúðarkveðjur og hlýhug.
Bernharð Haraldsson
Hrafnhildur Óladóttir
Linda Óladóttir
og fjölskyldur.
Hjartkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Árni Sigvaldason
Hafnarfirði,
lést á líknardeild Landspítalans
í Kópavogi 5. ágúst 2022.
Útför hans hefur farið fram í kyrrþey.
Innilegar þakkir til starfsfólks líknardeildarinnar Kópavogi
og líknarþjónustu HERU fyrir einstaka umönnun og hlýtt
viðmót. Þökkum auðsýnda samúð.
Sigríður Tómasdóttir
Ívar Árnason Hlíf Ingibjörg Árnadóttir Jörgensen
Xaverine Árnason Bates, Claus Jörgensen,
Júlíana Björt Ívarsdóttir, Freyja Celeste Ívarsdóttir Bates
Elskuleg móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Margrét Kristín
Sigurðardóttir
lést á Landspítalanum þann 21. ágúst.
Kristín Vala Ragnarsdóttir
Halldór Páll Ragnarsson Jóhanna Hulda Jónsdóttir
Sigurður R. Ragnarsson Þórdís Kjartansdóttir
Margrét Dóra Ragnarsdóttir Hjálmar Gíslason
og barnabörn.
1944 Sveinn Björnsson, forseti Íslands, og Franklin D.
Roosevelt, forseti Bandaríkjanna, ræðast við í Hvíta
húsinu í Washington – í opinberri heimsókn Sveins í
Bandaríkjunum.
1957 Breski leikarinn Stephen Fry fæddur.
1968 Norræna húsið í Reykjavík er vígt.
1990 Armenía lýsir yfir sjálf-
stæði frá Sovétríkj-
unum.
1991 Úkraína lýsir yfir sjálf-
stæði frá Sovétríkj-
unum.
2006 Plútó telst ekki lengur
til reikistjarna sól-
kerfisins, samkvæmt
samþykkt á þingi
Alþjóðasambands
stjarnfræðinga.
2008 Ísland vinnur silfur-
verðlaun í handbolta
á Ólympíuleikunum í
Peking 2008.
Liðið er hálft ár frá upphafi inn
rásar Rússa í Úkraínu, sem rekið
hefur fjölda fólks á vergang og
kostað ótal mannslíf. Í dag fagna
Úkraínumenn þjóðhátíðardegi
sínum og 31 árs sjálfstæðisafmæli
landsins.
thorgrimur@frettabladid.is
Í dag, 24. ágúst, er liðið 31 ár síðan Úkra
ína lýsti yfir sjálfstæði frá Sovétríkj
unum. Þennan áfanga ber upp á sama
tíma og sex mánuðir eru liðnir frá upp
hafi innrásar Rússa í Úkraínu, þar sem
Rússar reyna að endurheimta hluta
þess landsvæðis sem slapp undan stjórn
Moskvu árið 1991.
Olena Jadallah, hagfræðidoktor og
fyrrum aðstoðarborgarstjóri í Írpín,
var sjö ára gömul þegar Úkraína lýsti
yfir sjálfstæði árið 1991 og var þá nýflutt
með fjölskyldu sinni í nýtt hús í Bútsja.
„Ég var svo spennt yfir því að fara í skól
ann í fyrsta skipti, en foreldrar mínir
voru spenntir yfir sjónvarpsfréttunum
um sjálfstæðisyfirlýsinguna. Ég man sér
staklega eftir tárum afa míns, Petro, sem
var hermaður sem varði landið átján ára
gamall árið 1944. Hann hafði beðið svo
lengi eftir þessum degi… hann fór að
biðja til Guðs og gráta.“
Olena segir þó að stundum finnist
sér sem Úkraína hafi enn verið gamla
úkraínska sovétlýðveldið allt fram að 24.
febrúar 2022. „Við kunnum ekki að meta
frelsið, sjálfstæðið og sterka efnahag
inn sem við eignuðumst árið 1991. Við
vorum ekki reiðubúin fyrir ný tækifæri
og skyldur sem framtíðin bar í skauti sér,
sérstaklega ekki stjórnmálaelítan. Við
höfðum ekki sameiginlega framtíðar
sýn fyrir Úkraínu og enga áætlun. Við
skildum ekki hverjir voru vinir okkar
og hverjir óvinir.“
Olena segir að innrásin hafi breytt
öllu. „Við urðum samheldnari. Í dag
erum við öll að berjast saman fyrir frelsi
okkar, fyrir framtíðinni og fyrir nýju
úkraínsku sjálfstæði. Og við munum án
efa vinna stríðið gegn Rússlandi.“
Olena ætlar að hefja þjóðhátíðar
daginn með því að hlusta á ávarp Volo
dimirs Selenskí forseta og hringja í
foreldra og fjölskyldu sína í Úkraínu.
Hún gerir ráð fyrir að fagna deginum
með löndum sínum og íslenskum og
erlendum vinum, með fánanum, þjóð
söngnum og hefðbundnum búningum
eins og vysjyvanka. Olena er í sambandi
við úkraínsk samfélög í öðrum löndum
og þiggur bæði boð þeirra á þeirra við
burði og hvetur þá til að kynnast gest
risninni og náttúrufegurðinni á Íslandi.
Sögðum fyrst nei við Moskvu
Íhor Stakh, úkraínskur rannsóknar
blaðamaður sem kom til Íslands árið
2020, telur þó ekki að Úkraína hafi í
reynd orðið sjálfstætt ríki fyrr en um
tuttugu árum eftir sjálfstæðisyfirlýsing
una. Fyrstu forsetar landsins hafi allir
verið auðsveipir stjórnvöldum í Kreml
og hafi farið eftir fyrirmælum þeirra í
f lestum málum.
„Það var fyrst með appelsínugulu
byltingunni sem Úkraína sagði nei
við Moskvu,“ segir Íhor og vísar þar
til fjöldamótmælanna árið 2004 þar
sem tugþúsundir Úkraínumanna mót
mæltu meintu kosningasvindli í forseta
kosningum þar sem Viktor Janúkovits,
handvalinn eftirmaður Leonids Kútsjma
forseta, hafði verið lýstur sigurvegari.
Mótmælin leiddu til þess að kosningarn
ar voru ógiltar og frambjóðandi stjórn
arandstöðunnar, Viktor Júst sjenko, var
kjörinn forseti.
„Við hættum að vera eins og hluti af
Moskvu og þorðum að gera eins og við
vildum,“ segir Íhor. „Janúkovits var eins
og maður frá Moskvu. Kútsjma vildi gera
Janúkovits að forseta og fólk sagði nei.
Þetta var í fyrsta sinn sem Úkraína sagði
nei við Pútín.“
Íhor segir að á æskuárum hans hafi
menntun víða í Úkraínu verið einungis
á rússnesku og að rússneska hafi verið
aðaltungumálið í háskólum landsins.
Þetta hafi farið að breytast eftir appel
sínugulu byltinguna. Júsjtsjenko hafi
hins vegar ekki verið sterkur forseti og
hafi guggnað í mikilvægum málefnum
þegar Rússar hótuðu að loka á gasflutn
inga til Úkraínu. „Ef Júsjtsjenko hefði
verið sterkur eins og Selenskí núna, hefði
Úkraína kannski getað byrjað að vera í
alvöru sjálfstæð fyrr.“
Íhor segist mögulega munu fagna
þjóðhátíðardeginum með því að elda
úkraínska þjóðarréttinn borsjstj fyrir
vini sína sem ekki hafa smakkað hann
áður. „Á þessu ári er ég í fyrsta sinn
stoltur af heimalandinu mínu. Úkraína
er ekki eins stórt eða sterkt land og Rúss
land, en það sagði nei við Rússa og sagði
farðu burtu, Pútín.“
Haldið verður upp á þjóðhátíðardag
Úkraínu í Norræna húsinu frá klukkan
þrjú í dag. Verður þar opin fánavinnslu
stofa, boðið verður upp á úkraínska rétti
og úkraínskir tónlistamenn munu stíga
á svið. n
Þjóðhátíðardagur og hálft ár
frá innrás í Úkraínu
Olena kom til Íslands í febrúar, stuttu eftir að innrásin hófst. Hún segist leggja áherslu
á að segja börnum sínum söguna af sjálfstæðisbaráttu Úkraínu. MYND/AÐSEND
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 24. ágúst 2022 MIÐVIKUDAGUR