Fréttablaðið - 24.08.2022, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 24.08.2022, Blaðsíða 21
Aukið öryggi og eftir- lit á Norður-Atlants- hafi skiptir máli fyrir NATO. Þar hefur Ísland hlutverki að gegna og það blasir við að efla Landhelgisgæsluna til muna. Mannleg tilvera útheimtir orku, hvort sem hún fer fram í hellum eða háhýsum. Orkan er notuð til þess að búa til heimili, vegi, skóla, lyf og lækninga- tæki. Stríðið í Úkraínu er háð án banda- rískra her- manna, en að miklu leyti með banda- rískum vopnum. Bandaríkin eru meðal vinaþjóða Íslendinga. Bandaríkin voru fyrsta landið til að viðurkenna sjálfstæði Íslands 17. júní 1944. Íslandi var boðið á Bretton Woods ráðstefn­ una sem haldin var í New Hamp­ shire, Bandaríkjunum 1. til 22. júlí 1944. Bandaríkin voru í forystu og á þessari ráðstefnu var lagður grunnur að stofnun Alþjóðabank­ ans og Alþjóðavarasjóðsins. Ísland sendi fimm manna sendinefnd á ráðstefnuna enda var hún mikil­ væg og hafði mikið táknrænt gildi fyrir Ísland. Fulltrúar Íslands komu þarna fram fyrir hönd sjálfstæðs ríkis, nýstofnaðs lýðveldis. Danir gátu aðeins sent áheyrnarfull­ trúa á Bretton Woods rástefnuna enda var heimsstyrjöldinni síðari ólokið. Ísland varð einnig stofn­ aðili að NATO með því að undirrita svokallaðan North Atlantic Treaty í Washington 4. apríl 1949. Þann 5. maí 1951 var svo undirritaður tví­ hliða varnarsamningur við Banda­ ríkin sem enn er í gildi. Með þessu var Ísland búið að skipa sér í hóp vestrænna ríkja. Segja má að NATO aðild og tvíhliða varnarsamningur við Bandaríkin hafi hjálpað við lausn landhelgisdeilunnar, en útfærsla landhelginnar var grund­ vallaratriði til að tryggja efnahags­ legt sjálfstæði Íslands. Þetta var á tímum kalda stríðsins. Bandaríkin þurftu aðstöðu á Íslandi og voru til­ búin að aðstoða Ísland ef eftir því var leitað. Varnarsamningurinn og aðild að NATO olli hörðum deilum á Íslandi. Samt má segja að náin stjórnmálasamskipti við Banda­ ríkin á tímum kalda stríðsins hafi gefið Íslandi aukið vægi á alþjóða­ vettvangi. Önnur lönd vissu að Ísland átti nokkuð greiðan aðgang að stjórnvöldum í Washington. Kalda stríðinu lýkur – herinn fer Eftir að Sovétríkin hrundu og kalda stríðinu lauk minnkaði áhugi Bandaríkjanna á Íslandi. Árið 2006 tilkynntu Bandaríkin að þau myndu halda áfram að sinna vörn­ um Íslands en án varanlegs herliðs í landinu. Þessi ákvörðun var tekin í óþökk íslenskra stjórnvalda sem vildu bandaríska viðveru á Kefla­ víkurf lugvelli og lögðu sérstaka áherslu á varanlegar loftvarnir. Varnarsamningurinn var enn í gildi en stórveldi túlka samninga eftir eigin höfði og á eigin forsendum. Á tímum kalda stríðsins fóru hags­ munir landanna saman. Það breytt­ ist þegar Sovétríkin féllu. Í aðdraganda efnahags­ og fjár­ málakreppunnar sem skall á haust­ ið 2008 höfðu bandarísk stjórnvöld takmarkaðan áhuga á að aðstoða Ísland. Seðlabanki Bandaríkjanna gerði gjaldeyrisskiptasamninga við Seðlabanka Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar en sleppti Íslandi. Þetta olli sárindum hjá Íslenskum stjórn­ völdum. Svo má deila um hvort slík­ ur samningur hefði komið Íslandi vel til lengri tíma litið, en fálæti Bandaríkjanna í garð Íslands á þessum tíma sagði sína sögu. Ísland hafði ekki sömu vigt í Washington og á tímum kalda stríðsins. Staða Bandaríkjanna innan lands og utan Staða Bandaríkjanna í alþjóða­ samskiptum í dag er flókin. Stríðið í Úkraínu er háð án bandarískra hermanna, en að miklu leyti með bandarísk um vopnum. Hætti Bandaríkin stuðningi við Úkraínu verður staða landsins gagnvart Rússlandi f ljótt vonlaus. Ósigur Úkraínu yrði túlkaður sem ósigur Bandaríkjanna. Bandaríkin eiga líka í harðnandi deilum við Kína vegna Taívan. Síðasta útspilið í því máli var heimsókn forseta fulltrúa­ deildar Bandaríkjaþings, Nancy Pelosi, til Taívan, án þess að eiga nokkurt formlegt erindi. Hörð við­ brögð Kínverja voru fyrirsjáanleg. Bætti þessi heimsókn samskipti milli Bandaríkjanna og Kína? Var Taívan betur sett í öryggismálum eftir þessa heimsókn? Svarið við báðum spurningunum er NEI. Heimsóknin var bensín á þann ófriðareld sem nú ríkir í alþjóða­ samskiptum. St aðan í innanr ík ismálu m Bandaríkjanna er ekki síður flókin. Kosning Donald Trump 2016 sýnir að þjóðin er klofin. Mörgum Banda­ ríkjamönnum finnst að þeir séu vanræktir, hafi verið skildir eftir, hafi tapað einhverju. Slagorð eins og „Make America Great Again“ höfða til þessa fólks. Einangrunarstefna selst líka vel við svona aðstæður. Trump hafnaði viðskiptasamn­ ingum við Asíu og Evrópu. Þetta átti að vera „America first policy.“ Trump sagði líka að NATO væri úrelt stofnun. Verði Trump eða annar forseti með svipaðar skoð­ anir kjörinn í Bandaríkjunum árið 2024 vakna auðvitað spurningar um hvort Evrópa og þar með Ísland geti treyst á Bandaríkin í öryggismálum. Óvissan í innanríkismálum Banda­ ríkjanna getur haft afgerandi áhrif á utanríkismál. Hvað á Ísland að gera? Almennt hafa samskipti Bandaríkj­ anna og Íslands verið góð en það er óvissa fram undan. Við vitum ekki hvernig átök Bandaríkjanna við Rússland og Kína munu enda. Það felst áhætta í því fyrir smáþjóð að taka afstöðu með einu stórveldi gegn öðru. Staðan í Evrópu er erfið í efnahags­ og öryggismálum. Ísland þarf að huga betur að sínum örygg­ ismálum og krafa NATO um aukin framlög Íslands verður háværari. Ísland á að forðast að taka þátt í eyðumerkurhernaði í löndum eins og Afganistan og Írak eða fjármagna vopnaflutninga eins og gert hefur verið. Í staðinn getum við boðið það sem við kunnum og getum gert vel. Aukið öryggi og eftirlit á Norður­ Atlantshafi skiptir máli fyrir NATO. Þar hefur Ísland hlutverki að gegna og það blasir við að efla Landhelgis­ gæsluna til muna og sú vinna hefur þegar hafist með tveimur varðskip­ um sem eru öflugri en áður hefur þekkst. Auk þess þarf að vera öflug sérsveit á Íslandi til að bregðast við hugsanlegum hryðjuverkum. Á Ísland að stofna eigin her? Í fyrstu grein Varnarsamningsins segir meðal annars: „Bandaríkin munu fyrir hönd Norður­Atlants­ hafsbandalagsins….gera ráðstaf­ anir til varnar Íslandi...“ Stofnun formlegs hers skipaðs Íslendingum er hæpin. Taki Ísland að sér aukið hlutverk varðandi öryggi og eftir­ lit á Norður­Atlantshafi hlýtur að vera hægt að semja við Bandaríkin og NATO um varnarviðbúnað á Íslandi sem auðvitað er síbreyti­ legur og missýnilegur. Ísland þarf að leggja áherslu á góð samskipti við Bandaríkin í framtíðinni en um leið forðast deilur við önnur stór­ veldi eins Kína sem er mikilvægt í viðskiptalegu tilliti fyrir Ísland og alla Evrópu. Vegna Úkraínustríðsins getur orðið langur tími þar til sam­ skipti Rússlands við Evrópu verða eðlileg á ný. ■ Bandaríkin og öryggi Íslands Hilmar Þór Hilmarsson prófessor við Háskólann á Akureyri Khao Sok þjóðgarðurinn í Taílandi er mögulega sá staður sem kemst næst því að vera paradís á jörðu. Hann einkennist af þverhníptum, háum kalksteinsfjöllum sem standa upp úr kristaltæru, smaragðsgrænu stöðuvatni. Í fjöllunum vex iða­ grænn frumskógur, fullur af lífi. Þrátt fyrir að vera ekki nema um þrefalt stærri en Reykjavík er þjóð­ garðurinn heimkynni gríðarlegs fjölda dýrategunda, meira en 5% þeirra sem þekktar eru á heims­ vísu. Stöðuvatnið, lífríkið og lands­ lagið hefur gríðarlegt aðdráttarafl og fyrir vikið er Khao Sok vinsæll ferðamannastaður. En það er nýlega til komið. Það er ótrúlegt til þess að hugsa að stöðuvatnið, sem má segja að sé þungamiðja þjóðgarðsins, er manngert. Það heitir Cheow Larn og þekur um fjórðung garðsins. Vatnið er uppistöðulón Ratchaprapha stífl­ unnar sem var tekin í gagnið 1987. Framleiðslugetan er 240 megavött af hreinni, endurnýjanlegri orku sem slagar í uppsett af l Búrfells­ virkjunar, 270 megavött. Þrátt fyrir óspillta náttúru hafði Khao Sok ekki það aðdráttarafl sem það nú hefur eftir að stíflan var reist. Lífið er orka og orka er lífið Óreiða er náttúrulegt ástand alheimsins. Manneskjan reynir að aðlaga umhverfið að þörfum sínum og þar með koma reiðu á það. Til­ vera okkar er barátta gegn óreið­ unni.Skjárinn sem þú ert að horfa á núna er birtingarmynd þessa og beinn afrakstur þess að manns­ höndin hefur beislað náttúruöflin til orkuframleiðslu og búið til úr þeim eitthvað sem hjálpar okkur í lífsbaráttunni. Skjárinn er í þeim skilningi ónáttúrulegur og það sama má segja um raf lagnirnar í húsinu þínu, ljósaperurnar og kaffivélina. Meira að segja potta­ plönturnar þínar eru þar ekki af náttúrulegum orsökum. Sennilega vilt þú ekki án þessa vera. Mannleg tilvera útheimtir orku, hvort sem hún fer fram í hellum eða háhýsum. Orkan er notuð til þess að búa til heimili, vegi, skóla, lyf og lækningatæki. Lífskjör og velferð okkar allra eru, enn sem komið er, í órjúfanlegu samhengi við orkuna sem við beislum. Lífið er orka og orka er lífið. Lífið er ekki sársaukalaust Baráttan við óreiðuna fer fram með inngripum í náttúruna. Það fylgir því samt alltaf fórnarkostnaður að raska óspilltri náttúru. Það veit sennilega enginn nákvæmlega hver sá fórnarkostnaður var í Khao Sok og þrátt fyrir mótvægis­ og björg­ unaraðgerðir er ljóst að fjöldi dýra af ólíkum tegundum lifði fram­ kvæmdina ekki af enda breytti hún vistkerfi stórs hluta þjóðgarðsins verulega1. Í þessu tilfelli var ávinningurinn talinn meiri en fórnarkostnaðurinn. Þrátt fyrir allt þrífst fjölbreytt líf­ ríki áfram í Khao Sok. Svæðið tók stakkaskiptum og er í dag gríðar­ fallegt og laðar að sér fjölda gesta árlega. Taílendingar búa nú einn­ ig yfir hreinni, endurnýjanlegri orku. Þessi orka er svo undirstaða verðmætasköpunar, sem aftur er órjúfanleg forsenda velferðar. Það skal ósagt látið hvort virkj­ unin í Khao Sok hefði getað orðið að veruleika í íslensku laga­ og stofn­ anaumhverfi. Sennilega ekki. Hvað sem því líður má samt færa sann­ færandi rök fyrir því að ákvörðun um að reisa Ratchaprapha stífluna hafi verið skynsamleg, þótt hún hafi ekki verið sársaukalaus. Náttúran er líka mikilvæg Dæmið um Khao Sok þjóðgarðinn á brýnt erindi við þau okkar sem hafa bæði áhuga á velferð og nátt­ úruvernd. Það eru líklega f lestir Íslendingar sem falla þar undir. Saga okkar, afkoma og lífsgæði eru svo nátengd íslenskri náttúru að það eru harla fáir sem skilja ekki mikilvægi hennar. Að sama skapi er sá vandfundinn sem segist ekki vera umhugað um velferð. En það er ekki síður mikilvægt að skilja hvað velferð er og hvernig hún verður til. Velferð okkar sem þjóðar byggir ekki síst á gæfu okkar til þess að virkja náttúruöf lin til orkufram­ leiðslu. Það er jafnvægislist að gæta að náttúrunni en beisla krafta hennar á sama tíma, eins og dæmið um Khao Sok sýnir okkur. Þetta er vel hægt með skynsemi að leiðar­ ljósi og við eigum aldrei að raska óspilltri náttúru meira en þörf krefur. Við eigum alltaf að velja þá kosti sem veita mestan ávinning með minnstum fórnarkostnaði.Það er líka mikilvægt að nýta orkuna skyn­ samlega og að sama skapi eru ein­ hverjir hlutar náttúrunnar sem við viljum af góðum og gildum ástæð­ um ekki undir neinum kringum­ stæðum hrófla við. Ekki gefast upp En það er aldrei hægt að fallast á að það megi ekki undir nokkrum kringumstæðum hrófla við nein­ um hluta náttúrunnar.Ef náttúran á alltaf að njóta vafans þá er engin mannleg velferð í boði og rangt að halda öðru fram. Svo öfgakennd afstaða getur ekkert annað leitt af sér en versnandi lífskjör okkar allra til langrar framtíðar.Þá neitum við okkur og afkomendum okkar um lífskjörin sem við þekkjum í dag. Þeim mun hratt versna, nema ófyr­ irséðar tækniframfarir séu handan við hornið. Vonandi bíður okkar bylting í orkuframleiðslu, til dæmis með kjarnasamruna. Það gæti breytt dæminu verulega. Við getum hins vegar ekki stefnt inn í framtíðina upp á von og óvon um að það gerist einhvern tímann á næstunni. Eina leiðin til að fullnægja þessari stefnu til hins ítrasta er að leggjast niður, deyja og verða sjálf hluti af óreiðunni. Við gerum það vissu­ lega öll á endanum, en eigum við ekki að reyna að vera til þar til að því kemur? ■ Virkjum fallega Jóhannes Stefánsson lögfræðingur Við­ skiptaráðs MIÐVIKUDAGUR 24. ágúst 2022 Skoðun 17FRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.