Fréttablaðið - 24.08.2022, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 24.08.2022, Blaðsíða 20
En Hafró þegir þunnu hljóði og svarar ekki gagnrýni. Ekki veit ég hvað veldur þessari þögn en það hvarflar að manni að samband sé milli hennar og þöggunar- innar sem ríkir í kringum stóru sjávarút- vegsfyrir- tækin. Þann 21. júlí sl. voru strandveiðar stöðvaðar, 40 dögum fyrr en lög um strand veiðar gera almennt ráð fyrir. Með því var fjölda starfa, einkum á landsbyggðinni og afkomu margra smábátasjómanna stefnt í voða, auk þess sem neytendamarkaður fyrir ferskan fisk frá Íslandi var tíma- bundið stórlaskaður. Þó sjávarút- vegsráðherra og að einhverju leyti Alþingi beri mesta ábyrgð á þessum gjörningi er grunnur að þessari ákvörðun lagður annars staðar. Annars vegar með veiðiráðgjöf Hafrannsókna stofnunar og hins vegar í afstöðu og fram göngu Sam- taka fyrirtækja í sjávarútvegi, SFS, sem leynt og ljóst hafa frá upphafi viljað strandveiðar feigar. Óskiljanleg tölfræði Í byrjun júlí sendi sjávarútvegsráð- herra fyrirspurn til Hafró þar sem stofnunin var spurð hvaða áhrif 1.000 tonna viðbótarveiði hjá færa- bátum á strandveiðum hefði á þorsk- stofninn við Ísland. Svar barst fljótt og án rökstuðnings: Neikvæð áhrif! Hafa verður í huga að 1.000 tonn eru um 0,1% af áætluðum þorskstofni í ár. Það þarf því ekki mikið til að ógna viðkomu í þessum stofni! Um miðjan júni kynnti stofn- unin ráðgjöf sína fyrir næsta fisk- veiðiár þar sem m.a. kom fram að veiðistofn þorsks við Ísland væri 976.590 tonn. Hefur veiðistofninn samkvæmt tölum Hafró fallið úr 1.364.745 tonnum 2019 eða um 390.000 tonn þrátt fyrir að síðan hafi í einu og öllu verið veitt eftir ráðgjöf hvers árs. Það er auðvitað umhugs unarefni um ráðgjöfina en ég ætla að gera aðra hlið á þessum tölum að umræðuefni. Hér er að mínu mati verið að fara á furðulegan og raunar óskiljan- legan hátt með tölur enda látið í veðri vaka að nákvæmnin í stofn- mælingunni liggi á 6. eða 7. staf töl- unnar (1 tonn af milljón er 0.0001%). Fróðlegt er að bera þessa nákvæmni í stofnstærð þorsksins saman við nákvæmni á mælingu á öðrum teg- undum í dýraríki lands og sjávar. Samkvæmt upplýsingum hjá Nátt- úrufræðistofnun og Hafró eru spen- dýr á landi og í sjó talin í þúsundum eða tugþús undum og má þar nefna, að hrefnur umhverfis landið eru taldar vera á bilinu 15.000-40.000 og heildarfjöldi hvala við Ísland er talinn vera 300-400 þúsund. Á landi eru refir taldir vera um 7.000 og hreindýr um 6.000 svo dæmi séu tekin um dýr sem ætti að vera til- tölulega auðvelt að telja. Af fuglum má svo bæta við, að straumendur eru sagðar 3.000-5.000 og álku- stofninn var talinn vera um 300.000 pör fyrir um 15 árum. Eins og fram kemur í þessum tölum eru frávik í þeim af stærðar- gráðunni 100-1.000, jafnvel 10.000 sem er a.m.k. 100-falt frávik sem Hafró fær á tonnafjölda í veiði- stofni þorsks í meira en 750.000 fer- kílómetra fiskveiðilögsögu Íslands. Flestum ætti þó að vera ljóst að auðveldara er að telja og/eða áætla stærð stofna spendýra í sjó og á landi og fugla á eða við landið en fiska í sjónum. Öll þessi talnaleik- fimi Hafró er því fyrst og fremst blekkjandi, ekki síst fyrir almenn- ing og fréttamenn því ekki trúi ég því að reiknimeistarar stofnunar- innar trúi sjálfir þessari ofur ná- kvæmni. Æpandi þögn Fyrir nokkrum áratugum var líf- leg umræða meðal fiskifræðinga, sjávarlíffræðinga og margra ann- arra náttúruvísindamanna um rannsóknir á fiskistofnum og líf- ríki hafsins. Smám saman lögðust slík skoðanaskipti af og nú heyrir til algerra undantekninga að opin- ber umræða fari fram um málefnið og alls ekki með þátttöku fræðinga á Hafró. Á slík þögn sér trúlega ekki hliðstæðu í vísindasam félaginu hvorki í háskólum eða opinberum rannsóknastofnunum innan lang- f lestra vísindagreina. Nægir þar að nefna greinar eins og læknis- fræði, hagfræði, veðurfræði, eld- gosafræði og margar greinar lofts- lagsfræðanna að ekki sé talað um fjölmargar greinar félagsvísinda og stjórnmála. En Hafró þegir þunnu hljóði og svarar ekki gagnrýni. Ekki veit ég hvað veldur þessari þögn en það hvarflar að manni að samband sé milli hennar og þöggunarinnar sem ríkir í kringum stóru sjávar- útvegsfyrirtækin, bæði meðal starfsmanna þeirra og jafnvel sam- félaganna sem þau starfa í. Þar eru hagsmunirnir trúlega of miklir til að leyft sé að rugga nokkru sem tengist fiskveiðikerfinu, enda getur atvinnuöryggið og afkoman verið í hættu. Það segir líka sína sögu um þögnina, að á kynningarfundi Haf- rannsóknastofnunar 15. júní sl. um ráðgjöf næsta árs, þar sem mættu meira en 50 manns, þ.e. fréttamenn, hagsmunaaðilar í sjávarútvegi og sérfræðingar Hafró o. f l. komu nánast engar spurningar fram að lokinni kynningu um efnið. Aðeins formaður Landssambands smá- bátaeiganda tók til máls auk eins fyrrverandi yfirmanns á Hafró sem auðvitað vissi allt um efnið en sat fundinn með hatt SFS á höfði sem hann setti upp sl. vor. En annars var þögnin æpandi á þessum fundi. Að rannsaka og meta sjálfan sig Allt frá því að togararallið hófst 1985 hefur það verið grunnstærð í stofnmatinu á þorski ásamt reikni- líkönum og svo og svo mörgum óþekktum eða áætluðum for- sendum. Þótt svona röll hafi tíðkast víða erlendis var það Hafró sem lagði grunn að því hér, t.d. með vali á veiði stöðum, árstíma, notkun veiðarfæra o.f l. Þrátt fyrir miklar breytingar í umhverfi hafsins síðan og verulega gagnrýni fiskimanna, hefur þessu ekki verið að ráði breytt. Þannig mótaði Hafró rann- sókaaðferðirnar og hefur síðan ein séð um gagnaöflun. Allir útreikn- ingar og líkanaþróun er á ábyrgð stofnunarinnar sem og endanlegt stofnstærðarmat. Loks kveður stofnunin upp dóma (kallað ráð- gjöf) um leyfilegt veiðimagn hvers árs á grundvelli aflareglu sem lík- lega varð til á himnum og hefur því hlotið guðlega blessun og smurn- ingu með „sveiflujöfnunar áburði“. Væri ekki ástæða til að kanna hvort heppilegt sé og eðlilegt að einn og sami aðilinn af li gagnanna, búi til forsendur, þrói rannsókna- aðferðirnar og annist útreikninga og loki síðan hringnum með því að legga dóm á eigið verk með ákvörð- un á aflamagni næsta árs? Hliðstætt fyrirkomulag var ekki talið ásættan- legt í íslenska dómskerfinu fyrir um 30 árum og var því þá breytt. Lokaorð Eftir að hafa kynnst viðhorfi sjó- manna og skipsstjórnarmanna í allmörg ár gagnvart ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar tel ég að breytinga sé þörf. Æ oftar er stofnuninni í þessum hópi líkt við fatalausa keisarann í einu frægasta ævintýri H.C. Andersens. Þá er ljóst að samkrull vísinda og stjórnmála- legra ákvarðana er afar óheppilegt fyrir rannsóknastofnun. Engum dettur í hug að fela Veðurstofunni stefnumótun og ákvarðanir um aðgerðir í loftslagsmálum né segja mönnum fyrir um varnir gegn eld- gosum eða öðrum náttúruham- förum, þótt hún komi að því að leggja á þær áhættumat og miðla spám og öðrum gögnum. Með sama hætti og taka þurfti tillit til margra þjóðfélagslegra þátta ann- arra en sóttvarna í kóróna-faraldr- inum þurfa f leiri atriði en áætluð (ágiskuð?) stærð f iskistofna að komast að þegar þessi mikilvæga og sameiginlega auðlind þjóðar- innar er nytjuð. ■ Furðuleg fiskveiðiráðgjöf Magnús Jónsson veðurfræðingur og áhugamaður um fiskveiðar Það vill svo til að undirritaður býr í grenndinni við Listaháskóla Íslands, en þar var regnbogafáninn dreginn að húni á Hinsegin daginn, 6. ágúst, og blaktir þar enn. Það er auðvitað í lagi, að gleðjast með hinseginfólki og transfólki á þeirra sérstaka degi, sýna baráttu þeirra fyrir jafnrétti virðingarvott og stuðning, eins og t.a.m. sjómönn- um á Sjómannadaginn, en, núna, eftir hálfs mánaðar blakt, fer þessi f löggun regnabogafánans á Lista- háskólanum að verða hálf ólystileg; virka dálítið yfirkeyrð. Listaháskólinn er auðvitað ríkis- stofnun, þar sem ábyrg og yfirveguð afstaða gagnvart öllum hópum þjóð- félagsins verður að gilda, og ekki á að koma til, að einn hópur sé sérstak- lega tekinn út úr, fram fyrir aðra, og honum hampað lengur og meir en öllum öðrum. Ýmsir aðrir aðilar, kirkjur, stofn- anir og fyrirtæki, líka sveitarfélög, virðast hafa sömu skoðun á því, að yfir hinseginfólki og trans fólki verði að gleðjast sérstaklega, og, að það beri að styðja og hampa því séstak- lega, með málverki regn bogafána á stéttir, stíga og stræti og ómældri flöggun regnbogafánans. Í sérhverju þjóðfélagi eru fjölmarg- ir hópar, sem Guð hefur skapað með ólíkum hætti og af mismunandi gerð – ekki er vitað til þess að neinn hafi skapað sig sjálfur – og er það mikil- vægt verkefni þeirra sem leiða og stjórna, að reyna að finna jafnvægi og jafnrétti milli allra þessara hópa og forðast að taka þar einn fram yfir annan. Til að nefna nokkra hópa þjóð- félagsins, sem einhverja sérstöðu hafa, samanborið við þorra manna, má byrja á örvhentum, sem munu vera um 10% mannkyns. Flest tæki og áhöld og ýmiss bún- aður og farartæki eru hönnuð fyrir hægrihenta, rétthenta, sem kallað er, og veldur það örvhentum oft óþæg- indum, ef ekki vandræðum, í þeirra daglega lífi. Ekki er samt vitað til að mikið sé verið að berjast fyrir réttindum örv- hentra, hvað þá að menn gleðjist sérstaklega yfir þeim eða flaggi fyrir þeim. Annan hóp má nefna, sem er smá- vaxið fólk, svo að ekki sé talað um dverga, en þeirra staða í daglegu lífi er auðvitað ennþá óþægilegri eða erfiðari en örvhentra. Það er nánast ekkert gert sér- staklega fyrir þá, þeir neyðast til að aðlaga sig og sætta sig við muni og aðstæður sem eru hannaðar og gerðar fyrir „venjulegt fólk“; fólk af meðal stærðargráðu. Þá má líka líta til þeirra sem eru hávaxnir, kannske tveggja-metra- menn, sem verða að sæta margvís- legum óþægindum, órétti, þar sem hvorki dyr, stólar, rúm, bílar eða flugvélar eru sérstaklega hannaðar fyrir þá. Vill einhver gleðjast sérstak- lega yfir tveggja-metra-mönnum? Flagga? Mála stéttir? Skólameistarar, sóknarprestar, oddvitar? Svo mætti lengi tína til hópa, sem eru öðruvísi af Guði gerðir en almenningur, og hafa haft af því óþægindi, jafnvel alvarlega vanlíð- an, þjáningar, eins og hinsegin fólk og trans fólk, án þess að hafa verið taldir miklir gleðigjafar eða sérstak- lega hátt skrifaðir. Tökum fatlaða, þroskahefta, sjúkl- inga, hörundsdökka, hjólastólafólk, Pólverja, alkóhólista o.s.frv. Allt er þetta fólk sem Guð hefur skapað eins og það er, með sérstök gen og eðlisfar, sem hefur leitt það inn á ákveðnar brautir, misgæfulegar og -gleðilegar, en skylda okkar allra er að reyna að finna sanngjarna og réttmæta lausn, jafnrétti, fyrir alla og forðast það að taka einn hóp sérstaklega út úr, hér hinseginfólk og trans fólk, sem mun vera 3-5% upp í 10% af mannfólk- inu, eftir því hvernig þetta er metið og talið, og gleðjast sérstaklega yfir honum; láta eins og þessi eini hópur sé útvalinn gleðigjafahópur, sem einn á skilið árlega skrúðgöngu og pomp og prakt. Talandi um skrúðgöngur hin- seginfólks, þá spyr ég mig oft hvað sumum þátttakendum þar gengur eiginlega til með hömlulitlum kyn- ferðislegum tilburðum, dansi, skaki og rúnki, fáklæddir og strípaðir, eins og að slík hegðun sé æðsta dyggð góðra manna. Fyrir mér, oftast óvið- eigandi og smekklaus fíflagangur. Að mati margra fer bezt á því, hver svo sem hópurinn kann að vera, að menn haldi sínum kynferðismálum fyrir sig og sinn eða sína. Haldi þeim sem sínum einkamálum, sem lítið erindi eiga á torg. Ég þekki góða og gegna menn sem eru hinsegin, á sama hátt og ég þekki f lotta tveggja-metra-menn, lág- vaxna, hörundsdökka og örvhenta, enda allt fólk eins og við hin, og fynd- ist mér gott ef við gætum umgengist alla jafnt, sýnt öllum, ekki þá sízt fötluðum, þroskaheftum, sjúkum og þeim sem fastir eru í hjólastólum, líka öllum þeim öðrum, sem eiga á annan hátt undir högg að sækja í lífinu, velvild, virðingu, sanngirni og leitað jafnréttis og velferðar fyrir alla. ■ Yfirkeyrð gleði – fólk eins og við hin Ole Anton Bieltvedt samfélagsrýnir og dýraverndunar- sinni 16 Skoðun 24. ágúst 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.