Mosfellingur - 03.02.2022, Síða 8
Ingólfur Hrólfsson formaður
s. 855 2085 ihhj@simnet.is
Úlfhildur Geirsdóttir varaformaður
s. 896 5700 bruarholl@simnet.is
Margrét Ólafsdóttir gjaldkeri
s. 863 3359 margretjako@gmail.com
Snjólaug Sigurðardóttir ritari
s. 897 4734 snjolaugsig@simnet.is
Kristbjörg Steingrímsdóttir meðstjórnandi
s. 898 3947 krist2910@gmail.is
Jóhanna B. Magnúsdóttir 1. varamaður
s. 899 0378 hanna@smart.is
Þorsteinn Birgisson 2. varamaður
s. 898 8578 thorsteinn.birgis@gmail.com
StJÓrn FaMoS
Eldri borgarar • þjónustumiðstöðin eirhömrum • fram undan í starfinu
Skrifstofa félagsstarfsins er opin
alla virka daga kl. 13–16. Sími félags-
starfsins er 586-8014. Forstöðumaður
félagsstarfs eldri borgara í Mosfellsbæ
er Elva Björg Pálsdóttir tómstunda-
og félagsmálafræðingur, s: 698-0090.
Skrifstofa FaMos á Eirhömrum
er opin alla fimmtudaga frá kl. 15–16.
FélaG aldraðra
í Mosfellsbæ og nágrenni
famos@famos.is
www.famos.is
- Fréttir úr bæjarlífinu8
Lífshlaupið hafið -
hreyfum okkur saman
Lífshlaupið er hafið en um er að
ræða heilsu- og hvatningarverkefni
Íþrótta- og Ólympíusambands
Íslands sem
höfðar til allra
aldurshópa.
Fjöldi fólks hefur
nú þegar skráð sig
í Lífshlaupið en
hægt er að skrá
sig á lifshlaupid.is
fram á síðasta dag, þann 22. febrúar
nk. Öll hreyfing telur með svo lengi
sem hún nær samtals 30 mínútum á
dag hjá fullorðnum og 60 mínútum
á dag hjá börnum og unglingum.
aðalfundur FaMos
Samkvæmt lögum FaMos skal halda
aðalfund í febrúar. Vegna reglna
um sóttvarnir er það ekki hægt.
Aðalfundinum er því frestað um
óákveðinn tíma. Stjórn FaMos
Hreyfing vor 2022
Lágafell: Vatnsleikfimi: Mán., þri. og
fim. World class: Leikfimi þri. og fim.
Varmá / íþróttasalir: Hugur og heilsa:
Mán., mið. og fös. Ringó: Þri. kl. 12:10
salur 1, fim. kl. 11:30 salur 1.
Boccia: Mið. kl. 12 salur 1.
Golfskáli: Pútt : Mán. kl. 11–12 í
Golfskálanum neðri hæð.
Fellið: Gönguferðir eru alla
miðvikudaga kl. 13 frá Fellinu.
Fellið er opið frá 8-14. Ath. skólarnir
geta nýtt þennan tíma þegar þeim
hentar. Þrátt fyrir það er hægt að nýta
göngubrautina.
Nýir félagar velkomnir, endilega
verið með og finnið eitthvað við
ykkar hæfi.
Öll hreyfing er svo heilsueflandi.
dansleikfimi
Með Auði Hörpu byrjar í febrúar,
fylgist því með, verður auglýst síðar.
Félagsvist spiluð alla föstudaga á Eir-
hömum kl. 13, allir velkomnir. Gaman
saman byrjar þegar fjöldatakmörk
verða rýmkuð.
Viltu koma og mála post-
ulín með okkur í vetur??
Postulínshópur hefur verið
stofnaður og hittumst við vikulega
kl. 11:30 þriðjudaga aðra vikuna og
fimmtudaga hina vikuna. Hægt er að
brenna á staðum gegn vægu gjaldi.
Ekki er um
formlegt
námskeið
að ræða
heldur
samveru
og
samvinnu
þeirra
sem hafa
áhuga
á að mála á postulín. Ef þú hefur
áhuga á að vera með endilega hafðu
sambandi við okkur í félagsstarfinu
og skráðu þig á blað í handverks-
stofu, í síma 586-8014 milli kl. 11-16
eða á elvab@mos.is. Ef þið lumið á
gömlum postulínslitum sem þið eruð
hætt að nota þá þiggjum við þá með
þökkum. Allir hjartanlega velkomnir.
Hugmyndir?
Ertu með hugmynd að einhverju sem
þig langar að sjá gert í félagsstarfinu
eða finnst vanta? Viltu tefla, spila
meira, dansa gömlu dansana,
sauma bútasaum, læra tungumál,
möguleikarnir eru endalausir, fyrsta
skrefið er alltaf að ræða málin. Hafðu
þá samband við
forstöðumann
félagsstarfsins
Elvu Björgu í
síma 6980090
eða á elvab@
mos.is og við
finnum út úr því
saman. Hlakka til
að heyra í ÞÉR.
Gler/leirnámskeið
Sívinsælu gler/leirnámskeið Fríðu
eru í fullum gangi. Alltaf laus pláss
af og til. Kennari er Fríða Sigurðar-
dóttir sem hefur í mörg ár kennt
glervinnslu og leirkennslu hjá eldri
borgurum. Endilega skráið ykkur í
síma 6980090 eða á elvab@mos.is.
Lista- og menningar-
félag stofnað 22.2.22
Eftir frábæran hugarflugsfund í
síðustu viku var ákveðið að halda
stofnfund Lista- og menningarfé-
lags Mosfellinga (LOMM) þann 22.
febrúar 2022, skrifast 22.2.22.
Umræður á hugarflugsfundinum
voru góðar og var meðal annars
rætt um aðstöðumál, Hlégarð,
menningarhús, mikilvægi félagsins,
stuðning og aðstöðu fyrir ungt fólk
og að í Mosfellsbæ vantaði fleiri
lista- og menningarviðburði. Vonast
er til þess að fólk hafi tök á því að
hittast 22.2.2022 og stofna félagið
í raunheimum. Hægt er að fylgjast
með félaginu á Facebook, Lista- og
menningarfélag Mosfellinga.
Hjónin Alda Kristinsdóttir og Sigurður Hansson reka gólf-
og múrefnaverslunina Fagefni í Desjamýri 8.
„Ég er búin að vera sjálfstætt starfandi í gólfefnabransan-
um í 30 ár og hef sérhæft mig í því að flota gólf,“ segir Siggi
eins og hann er alltaf kallaður.
„Í kringum árið 2000 byrjaði ég að flytja inn múrefni og
fleira frá Bretlandi ásamt föður mínum Hans Þór Jenssyni
dúklagningameistara, en við unnum saman í 25 ár. Í raun
var þetta bara svona hliðarbúgrein til að byrja með en það
var svo í kringum 2008 að við stofnum fyrirtæki sem hélt
utan um innflutninginn og svo rek ég verktakafyrirtækið
Siggi Dúkari“, segir Siggi.
leggja áherslu á að bjóða aðeins upp á hágæða vörur
„Í kringum 2014 fórum við að leggja drög að versluninni
sem slíkri, ég byrjaði á að koma inn í fyrirtækið til að sjá
um bókhaldið,“ segir Alda en í dag sér hún um almenna
markaðssetningu og reksturinn á búðinni.
Við fórum markvisst í að breikka vöruúrval hjá okkur og
meðal annars byrjuðum að flytja inn vínilparket og fleira.
Við fluttum svo í Desjamýrina 2018 þar sem við rekum flotta
verslun með miklu úrvali af hágæða múrefnum, þéttiefnum
og vínilgólfefnum frá heimsþekktum framleiðendum,“ segir
Alda.
Góð og persónuleg þjónusta
„Síðastliðin fjögur ár hefur fyrirtækið vaxið um u.þ.b.
40% á ári. Við þjónustum bæði stofnanir, verktaka og ein-
staklinga. Okkar markmið er að bjóða upp á gæðavöru á
hagstæðu verði og veita faglega og persónulega þjónustu
og ráðgjöf um allt sem snýr að okkar sviðum í mannvirkja-
lausnum.
Kúnnahópurinn okkar er fjölbreyttur og við erum þekkt
fyrir að þjónusta landsbyggðina sérstaklega vel. Við hvetjum
alla Mosfellinga að kíkja á okkur og styrkja verslun í heima-
byggð í leiðinni,“ segja Siggi og Alda að lokum en verslunin
er opin alla daga frá kl. 8 – 17, nema föstudaga til kl. 16.
Vefverslunin www.fagefni er opin allan sólarhringinn.
Múrefni og Vínylparket sameinast undir nafninu Fagefni • Alda og Siggi við stjórnvölinn
fyrirtækið vaxið um 40%
á ári síðastliðin fjögur ár
alda kristinsdóttir
og sigurður hansson