Mosfellingur - 24.02.2022, Blaðsíða 30
Samvinna og SamSkipti
Mér hlotnaðist sá heiður haustið
2020 að verða formaður knatt-
spyrnufélagsins Hvíta riddarans.
Fyrir mér erum við eitt, Afturelding,
Hvíti riddarinn og Álafoss. Þrjú
fótboltalið, hvert með sínar áherslur
en sameiginlega hugmyndafræði:
að allir sem vilja æfa fótbolta geti
fundið tækifæri við sitt hæfi. Í dag
eru Hvíti riddarinn og Álafoss bara
með karlalið, en nú þegar stelpum
í fótbolta fjölgar ört í Mosfellsbæ er
ekkert því til fyrirstöðu að kvennalið
bætist við á næstu árum.
Aðalatriðið er samvinna milli
þeirra sem þjálfa og stýra lið-
unum. Eitt af okkar aðalhlutverkum
er að hjálpa ungum knattspyrnuið-
kendum að halda áfram að æfa þegar
þeir eru gengnir upp úr unglinga-
flokki og komnir í meistaraflokk. Við
viljum halda þeim í íþróttum, það
hefur forvarnargildi, er heilsueflandi
og félagslega mikilvægt. Samvinnan
teygir sig niður í yngri flokkana og í
sumar munu leikmenn úr 2. flokki
Aftureldingar líka spila leiki með
meistaraflokkum Hvíta riddarans og
Álafoss. Hér vinna saman yfirþjálfari
knattspyrnudeildar Aftureldingar
sem og þjálfarar 2. flokks og meist-
araflokks liðsins og þjálfarar Hvíta
riddarans og Álafoss.
Samskiptin eru regluleg og góð
og snúast um að finna tækifæri
fyrir þá leikmenn sem eru að nálgast
meistaraflokkinn og styrkja þann
hóp leikmanna sem mynda kjarnann
í meistaraflokkunum. Liðin þrjú
leggja áherslu á að byggja sem mest
á heimamönnum og skapa þannig
sterka tengingu við Mosfellsbæ og
Mosfellinga. Þetta eru liðin okkar.
Hvíti riddarinn spilaði æfingaleik
við Skallagrím í fyrrakvöld.
Hópurinn: Birkir, Guðjón B,
Gummi K, Daníel I, Egill, Búi, Kolli,
Guðbjörn, Hrafn E, Eiður, Björgvin,
Kári, Patz, Davíð, Logi, Eiki. Allt
heimamenn. Fjórir úr 2. flokki
Aftureldingar.
Ég hef ofurtrú á góðu samstarfi
þar sem allir
skipta máli og
samstaða ríkir um
hvert skal haldið.
Markmiðin skýr.
Mér finnst við
vera á þannig leið
og get varla beðið
eftir fótbolta-
sumrinu sem er
fram undan.
Áfram veginn!
HeilSumolar gaua
- Aðsendar greinar30
Guðjón
Svansson
gudjon@kettlebells.is
Við getum gert svo ótrúlega margt.
Sem barn vildi ég gera svo ótrúlega
margt og lifa lífinu, leika mér og
sjá heiminn, helst allan í einu.
Það voru ekki allir á því að þetta
væri leiðin en ég var alveg með
það á tæru hvað ég vildi gera. Það
var ekki hægt að vera með eitthvað
múður við mig. Það sem ég sá að
aðrir vildu var ekki endilega það sem ég
vildi og alls ekki vildi ég þrýsta á aðra að
gera það sem ég vildi gera. Ég tel alveg full-
víst að börn hafi ekkert breyst hvað þetta
varðar.
Hvað hefur þá breyst? Krafan er hugsan-
lega meiri bæði á börn í skólum og aðstand-
endur þeirra, foreldra. Hvað ef mamma og
pabbi hafa ekki húsnæði? Hvað með vöru-
merkjasamkeppnina? Hvað með eineltið
og þau börn sem hafa ekki sama aðbúnað,
öryggi og umhyggju? Hvað er það sem
veldur því að tölur Embættis landlæknis
sýna að sjálfsvígum ungs fólks á aldrinum
18-29 ára rýkur upp á milli áranna
2019 og 2020? Hvað veldur því að
um 17,9 karlar af hverjum 100.000
íbúa á Íslandi völdu sjálfsvíg að
meðaltali árlega frá 2011 til 2020
en 5,1 kona? Hvað getum við gert
til að búa fólk undir lífið svo það
velji ekki að yfirgefa það?
Skólar eru skjól. Því þurfum við að
tryggja í framtíðinni að starfsfólk þessara
stofnana geti tekist á við vandann, sé
með aukna þekkingu á þessu sviði og að
umbúnaður skólanna verði bættur til að
tryggja að þeir sýni enn betur að þar séu
allir velkomnir eins og við vitum að er. Hér
í Mosfellsbæ þarf að skoða það alvarlega að
búa til fleiri úrræði og bæta við starfsfólki
með sérþekkingu. Við búum nú þegar að
því að eiga í Mosfellsbæ frábæra kennara
og aðra starfsmenn sem gera sitt allra, allra
besta. En hvernig getum við bætt í með
skynsömum hætti?
Það er spurning hvort samtakamáttur
bæjarbúa geti leitt til þess að hér verði sett á
laggirnar greiningarmiðstöð fyrir ungmenni
og fleiri leiðir verði boðnar börnum í skóla-
kerfinu en aðeins þessi hefðbundna. Í bæn-
um okkar eru fjölmörg fyrirtæki sem starfa
á mörgum sviðum. Þar gætu gefist tækifæri
til verklegrar kennslu og nýlega hafa fram-
haldsskólar fengið heimildir til að sjá um
kennslu iðngreina og nú jafnframt geta þeir
stuðlað að því að koma t.a.m. nemendum
í starfsgreinum á samning. Þetta eigum við
að kynna í skólum enn meira en áður. Við
eigum að dekra meira við börnin okkar
og hjálpa forráðamönnum þeirra að gera
það líka, auka samveru foreldra og barna í
skólunum og sýna virkilega fram á að börn,
hvernig sem þau eru af Guði gerð séu vel-
komin nú sem fyrr. Skólinn er og á að vera
börnum skjól. Kennum börnum því að lesa,
reikna, leika og lifa.
Sara Hafbergsdóttir, varafulltrúi Miðflokksins
í fræðslunefnd Mosfellsbæjar
Lærum að lesa, reikna, leika og lifa
Það var skömmu fyrir sveitar-
stjórnarkosningar vorið 2018 sem
hópur fólks með ýmsar stjórn-
málaskoðanir og ólíkan bakgrunn
kom saman og ákvað að stofna
hreyfingu með það eina markmið
að beita sér fyrir hagsmunum íbúa
Mosfellsbæjar og gera þannig góð-
an bæ betri.
Þetta var fólk en ekki flokkur og þannig
varð L-listi Vina Mosfellsbæjar til.
Þrátt fyrir mjög skamman fyrirvara fékk
framboðið góðar viðtökur eða tæp 11% at-
kvæða og einn bæjarfulltrúa af níu.
Vinir Mosfellsbæjar hafa starfað í
bæjarstjórn og í nefndum bæjarins
af ábyrgð og yfirvegun, tekið þátt
í mörgum góðum ákvörðunum
fyrir bæjarfélagið og bæjarbúa alla,
staðið vörð um góða stjórnsýslu-
hætti og starfað af heiðarleika og
gegnsæi.
Vinir Mosfellsbæjar eru sannfærðir
um að óháður bæjarlisti þar sem aðeins
hagsmunir íbúa bæjarins ráði för, eigi fullt
erindi í Mosfesllsbæ og hafa því ákveðið
að bjóða fram við komandi bæjarstjórnar-
kosningar þann 14. maí nk.
Innan skamms munu Vinir Mosfells-
bæjar kynna undirbúning og tilhögun
framboðsins nánar. Vinir Mosfellsbæjar
telja það mjög mikilvægt að vanda til alls
undirbúnings og að allir þeir sem þátt taka
á framboðslistanum séu meðvitaðir um að
störf sem þeim eru falin sem kosnir eru til
starfa fyrir bæjarfélagið, eru samfélagsstörf
í þágu allra bæjarbúa.
Stefán Ómar Jónsson
Bæjarfulltrúi Vina Mosfellsbæjar
Vinir Mosfellsbæjar bjóða fram
í sveitarstjórnarkosningum í vor