Mosfellingur - 24.02.2022, Síða 32

Mosfellingur - 24.02.2022, Síða 32
Sendið okkur myndir af nýjum Mos- fellingum ásamt helstu upplýsingum á netfangið mosfellingur@mosfellingur.is Í eldhúsinu nÝSKÖPUnAR- KLASI mOSFELLSBÆJAR Er ekki tilvalið að breyta gömlu heilsu- gæslunni í nýsköpunar- og frum- kvöðlaklasa? Hugsa svolítið stórt? Hugmynd sem er vert að skoða að mínu mati. Það krefst vissulega fjárfest- ingar af hálfu bæjarins en sú fjárfesting gæti skilað sér margfalt til baka. Hún opnar líka á styrki fyrir einstaklinga og til bæjaryfirvalda við að þróa þennan kost. Með aukinni kröfu um að geta starfað í heimabyggð er að minnsta kosti vert að meta þennan kost og greina. Klasinn gæti verið blanda af aðstöðu fyrir smærri fyrirtæki, útibú stærri fyrirtækja og svo að hluta til aðstaða fyrir frumkvöðla sem eru að fóta sig í vöruþróun og rekstri. En hvað þarf svona starfsemi umfram bara aðstöðu? Samkvæmt kollegum mínum sem sátu með mér í starfshópi um þróun sam- bærilegs klasa í Vestamannaeyjum þarf líka mannauð. Fagaðila sem þjónustar og aðstoðar frumkvöðla og fyrirtæki við að taka næstu skref. Aðstoð við að sækja um styrki, efla tengsl, finna upplýsingar o.s.frv. Sjávarklasinn er gott dæmi um þekkingarklasa sem hefur vaxið og dafnað á methraða. Þar hafa margar af bestu nýsköpunarhugmyndum síðustu ára orðið til við kaffivélina. Þar sem frumkvöðlar og fólk frá mismunandi fyrirtækjum hittast og ræða saman. Það er a.m.k. ljóst að frumkvöðlasetur verður ólíklega til af sjálfu sér. Það þarf jú, frumkvæði. Hér í upphafi nefndi ég möguleika á að sækja styrki fyrir rekstur sem þenn- an. Í kringum nýstofnaðan Matvælasjóð einan væri hægt að byggja upp starfsemi af þessu tagi. Matvælasetur Mosfells- bæjar? Aðgengi að fullbúnu þróunar- eldhúsi. Segi svona, bara hugmyndir krakkar mínar. Svo mikilvægt að hugsa um alls konar. Núna er ég til dæmis farinn að hugsa um Aftureldingu. Það má mæta á leiki aftur. Maður er manns gaman. Fyllum kofann. Fyllum líka nýsköpunarklasa. Áfram Mosó. Þóra og Ebbi skora á Svandísi og Guðjón að deila næstu uppskrift Þóra Kristín Kristjánsdóttir og Eyþór Theodórsson deila að þessu sinni með okkur ljúffengu Mexíkó kjúklingalasagne. Hráefni: • 800 gr kjúklingabringur • 1 rauð paprika • 1 laukur • ½ dós gular baunir (má sleppa) • 1 Mexíkóostur • 2 krukkur salsa sósa • ½ l matreiðslurjómi • 1 pakki af tacokryddi • 1 pakki tortilla pönnukökur Aðferð: Skerið kjúklingabringurnar í litla bita, kryddið þær með tacokryddi (ekki öllu samt) og steikið á pönnu ásamt lauk og papriku. Setjið þetta til hliðar þegar kjúklingurinn er steiktur. Hitið rjóma, ost og salsasósu í potti. Þegar osturinn í sósunni er bráðnaður má blanda öllu saman og setja gulu baunirnar út í, smakka til og bæta við tacokryddi og salti ef þörf er á. Síðan er þessu raðað í eldfast form eins og vaninn er við lasagnegerð, nema í stað lasagneplatna eru tortillakökurnar notaðar. Þegar allt er komið í eldfast form er osti stráð yfir og lasagne hitað í ofni við 200°C þangað til osturinn er bráðinn og orðinn smá gylltur. Meðlæti • Kotasæla • Hvítlauksbrauð • Gott salat   Verðiykkuraðgóðu Ásgeir Jónsson Mexíkó kjúklingalasagne hjá Þóru og ebba Tristan Freyr Brynjarsson fæddist 11. maí 2021 á Akranesi. Hann var 3.522 gr (14 merkur) og 49,5 cm. Foreldrar hans eru Kristín Freyja Óskarsdóttir og Brynjar Daði Steingrímsson. - Heyrst hefur...32 heyrst hefur... ...að mosfellska söngkonan Stefanía Svavars taki þátt í forkeppni Euro- vision á laugardaginn og syngi lagið Hjartað mitt. ...að bókin um Alla Rúts, sem kom út fyrir nokkrum árum, verði bráðum aðgengileg sem hljóðbók á Storytel. ...að Kolla Þorsteins og Kristín Ýr ætli ekki að kjósa Sjálfstæðisflokkinn eftir að þær náðu ekki takmarki sínu í prófkjöri flokksins. ...að snjóflóð hafi fallið í Reykjafjallinu á dögunum. ...að pósthúsinu í Háholtinu í Mosó verði lokað 1. maí. ...að knattspyrnudeild Aftureldingar sé að skipuleggja hópferð á Kaleo- tónleika í Dublin í sumar. ...að búið sé að ráða Birgi Gunnarsson fyrrum forstjóra Reykjalundar sem framkvæmdastjóra rekstrarstofu þjóðkirkjunnar. ...að Halla Karen sé að fara leiða lista Framsóknar fyrir kosningarnar í vor og Aldís Stefáns verði í 2. sæti. ...að búið sé að troða gönguskíða- brautir á golfvellinum, á Tungubökk- um og á Reykjalundi. ...að stofnfundur Lista- og menningar- félags Mosfellinga hafi farið fram á þriðjudaginn, 22/02/22. ...að leikfélagið sé að undirbúa sýn- ingu til heiðurs Maríu Guðmunds. ...að fjölskyldutímarnir á sunnu- dagsmorgnum séu byrjaðir aftur í íþróttahúsinu að Varmá. ...að blásið verði í Bingó á Barion í kvöld þar sem hægt verður að vinna flugferð til Tenerife. ...að Ásgeir Sveinsson hafi verið kosinn oddviti Sjálfstæðisflokksins með miklum yfirburðum í prófkjöri flokksins eða um 70%. ...að Habbý hafi fagnað fertugsafmæli sínu um síðustu helgi. ...að Mosfellingurinn Sváfnir Gíslason ætli að bjóða sig fram í stjórn KSÍ á ársþinginu um helgina. ...að UMFUS hafi styrkt Ragnheiði Thoroddsen um ágóðann af Kótelettukvöldinu hjá þeim um síðustu helgi. ...að vart hafi orðið við rafmagnsleysi og vatnsleysi í Mosó í óveðrinu á dögunum. ...að Kjalnesingar séu að fá sig fullsadda af þjónustuleysi í boði Reykjavíkur og vilja æði margir slíta samstarfinu við borgina. ...að Fagverk, Malbik og völtun og Malbikstöðin séu nú eitt sameinað fyrirtæki, Malbikstöðin. ...að Kótilettukvöld Hestamanna- félagsins Harðar fari fram í Harðar- bóli á laugardaginn. ...að búið sé að loka Hundahótelinu á Leirum á Kjalarnesi. ...að Sigrún Harðar sé farin að stýra spunkunýjum útvarpsþætti á Rás 1 um barnamenningu. mosfellingur@mosfellingur.is

x

Mosfellingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.