Mosfellingur - 17.03.2022, Blaðsíða 10
Lionsklúbbarnir
selja Rauðu fjöðrina
Lionshreyfingin á Íslandi safnar
fé á nokkurra ára fresti til góðra
málefna undir merkinu „Rauða
fjöðrin“. Nú hafa Lionshreyfingin og
Blindrafélagið tekið höndum saman
um átak til að
tryggja framboð
af leiðsöguhund-
um í landinu til
nýrra notenda og
til endurnýjunar
þeirra hunda sem
nú þegar eru til
staðar. Leið-
söguhundar eru gríðarlega öflugt
hjálpartæki fyrir blint og verulega
sjónskert fólk og veita þeir notend-
um mikið frelsi og aukið öryggi.
Samstarf Lions og Blindrafélagsins
byggist á gömlum merg enda hefur
Lions stutt við blinda og sjónskerta
með myndarlegum hætti víðs vegar
um heiminn í liðlega 100 ára sögu
hreyfingarinnar. Lionsfélagar selja
Rauðu fjöðrina dagana 31. mars til
3. apríl. Landsmenn eru hvattir til
að styðja við þetta þarfa verkefni.
- Fréttir úr bæjarlífinu10
Framkvæmdir hafnar
við nýja púttflöt
Hafnar eru framkvæmdir við nýja
púttflöt á Hlíðavelli. Elli og félagar
í Steingarði eru mættir á svæðið og
byrjaðir að vinna en nýja púttflötin
verður staðsett rétt fyrir fram Klett.
„Púttflötin verður um 650 fermetrar
að stærð og á vonandi eftir að nýtast
okkar félögum vel við æfingar á
komandi árum. Stefnt er að því að
opna flötina í júlí í sumar. Þessi
nýja púttflöt mun gjörbreyta okkar
æfingaaðstöðu þar sem aðstaða til
púttæfinga utandyra er af skornum
skammti. Þegar hún verður tekin í
notkun munu báðar flatirnar sem
eru staðsettar við æfingasvæði verða
notaðar sem vippflatir,“ segir Ágúst
Jensson framkvæmdastjóri.
Framboðslisti Samfylkingarinnar samþykktur einróma • Anna Sigríður leiðir listann áfram
Viljum hafa meiri áhrif á
stefnumörkun bæjarins
Framboðslisti Samfylk-
ingarinnar fyrir sveitar-
stjórnarkosningarnar
14. maí var samþykktur
einróma á fjölsóttum
félagafundi 5. mars.
Anna Sigríður Guðna-
dóttir núverandi oddviti
leiðir listann, annað
sætið skipar Ólafur Ingi
Óskarsson varabæjar-
fulltrúi. Í þriðja sæti
er Ómar Ingþórsson
landslagsarkitekt og
fjórða sæti skipar svo
Elín Árnadóttir lögmaður. Sérstakur gestur
fundarins var Logi Einarsson alþingismaður
og formaður Samfylkingarinnar.
Í sveitarstjórnarkosningum árið 2018 fékk
Samfylkingin í Mosfellsbæ 9,5% greiddra
atkvæða og einn kjörinn bæjarfulltrúa.
1. Anna Sigríður Guðnadóttir
2. Ólafur Ingi Óskarsson
3. Ómar Ingþórsson
4. Elín Árnadóttir
5. Jakob Smári Magnússon
6. Sunna Björt Arnardóttir
7. Daníel Óli Ólafsson
8. Margrét Gróa Björnsdóttir
9. Elín Eiríksdóttir
10. Ragnar Gunnar Þórhallsson
11. Kristrún Halla Gylfadóttir
Framboðslisti samFylkingarinnar
12. Guðbjörn Sigvaldason
13. Sólborg Alda Pétursdóttir
14. Þóra Sigrún Kjartansdóttir
15. Símon Guðni Sveinbjörnsson
16. Gerður Pálsdóttir
17. Greipur Rafnsson
18. Gunnhildur Edda Guðmundsd.
19. Finnbogi Rútur Hálfdánarson
20. Nína Rós Ísberg
21. Ólafur Guðmundsson
22. Kristín Sæunnar Sigurðard.
Við byggjum á
þekkingu og reynslu
Anna Sigríður Guðnadóttir leiðir nú
framboðslista Samfylkingarinnar í
þriðja sinn.
„Ég er full til-
hlökkunar og bjart-
sýni fyrir vorið. Við
bjóðum fram mikla
reynslubolta í
sveitarstjórnarmál-
um ásamt öflugu
fólki með reynslu
víða að úr samfélaginu sem vill nú
taka þátt og vinna að góðum málum í
sínu sveitarfélagi. Sveitarstjórnarmál
snúast um nærumhverfi okkar,
félagsauðinn, skipulag, skólana, um-
hverfið, fólkið í bænum og hvernig
við mótum umgjörðina um daglegt
líf þess. Við byggjum afstöðu okkar
til úrlausnarefna alltaf á alþjóðlegum
grunngildum jafnaðarstefnunnar:
Frelsi, jafnrétti og samábyrgð. Jafn-
aðarstefnan setur almannahagsmuni
alltaf framar sérhagsmunum. Við
viljum hafa meiri áhrif á stefnumörk-
un sveitarfélagsins og stefnum ótrauð
þangað.“
Jakob Smári Magnússon skipar 5. sæti Samfylkingarinnar í
sveitarstjórnarkosningunum 2022. Hann hefur starfað sem
tónlistarmaður og er menntaður áfengis og vímuefnaráðgjafi.
Hann er giftur Rögnu Sveinbjörnsdóttur viðskiptastjóra.
„Ég vil leggja mitt á vogarskálarnar til að gera Mosfellsbæ að
betri bæ. Ég vil gera bæinn skemmtilegri og meira aðlaðandi.
Mig langar að sjá hér fallegan miðbæ og efla menningarstarf í
bænum. Mosfellsbær á mikið af frábæru listafólki og bærinn á
sér sögu sem við verðum að varðveita. Það þarf að vekja bæinn
til lífsins og ég er til í að taka það að mér. Svo vil ég fá Pizzabæ aftur, takk fyrir.”
Gerum bæinn skemmtilegri og meira aðlagandi
Þóra Sigrún, Ólafur Ingi, Ólafur Guðmunds, Elín
Eiríks, Anna Sigríður, Sunna Björt, Guðbjörn, Sólborg
Alda, Jakob Smári, Kristín, Finnbogi og Gerður.
OPIð hús á laugardögum
samfylkingin í mosfellsbæ verður með opið hús í Þverholt 3
alla laugardaga milli klukkan 11 og 13 fram að kosningum.
Frambjóðendur verða á staðnum til skrafs og ráðagerða.
Kaffi og með því á boðstólum.
Hvetjum alla til að nota tækifærið og koma sínum hjartans
málum á framfæri við frambjóðendur Samfylkingarinnar!