Mosfellingur - 17.03.2022, Page 32

Mosfellingur - 17.03.2022, Page 32
 - Unga fólkið32 Kvartanir og leiðindi sendist á steinaeyjan@gmail.com LOKSINS! LOKSINS! LOKSINS! Já, til hamingju kæru Mosfell- ingar, eftir langt og blóðugt stríð hafa Steinabræður unnið. Eins og flestir vita þá elduðum við grátt silfur með Halla bæjó og hafa Steinabræður unnið þennan blóðuga bardaga. En já, orðrómurinn er sann- ur, Halli bæjó er hættur sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar. Við í Steinaeyjunni erum mjög glaðir en einnig mjög leiðir. Okkar helsti keppinautur hefur sett skóna á hilluna eftir ágætlega slakan feril, hann náði næstum því að búa til heilan innanhúsvöll. Við þökkum honum fyrir slök störf og óskum honum velfarnað- ar í næsta starfi. Við Steinamenn höfum ofurtrú á því sem koma skal í Mosfellsbæ og höfum við sett saman lista yfir það sem við viljum sjá gerast á næstu árum. Okkar kröfur til næstu bæjarstjórnar: 1. Búð sem er opin 24/7 2. Bíó 3. Viðurkenna mistök sín og hætta þessari vitleysu með því að breyta nafninu á Gaggó í Kvíslar- skóla, ömurlegur og tilgangslaus leikþáttur! 4. Sundlaugar opnar lengur! Af hverju erum við eini bærinn sem lokar svona snemma??? 5. Byggja vegg á milli Grafarvogs og Mosfellsbæjar. 6. Byggja WipeOut braut nákvæmlega eins og hún er í sjónvarpinu, þar sem KFC er. 7. 4-5 stjörnu hótel. 8. Höfn. 9. The M club/M bar 10. Betri deitmenningu fyrir gamalt fólk og samkyn- hneigða. Síðasta kornið sem fyllt hefur mælinn er mætt. meðan allt lék í lyndi halli bæjó eyþór og birkir

x

Mosfellingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.