Mosfellingur - 17.03.2022, Qupperneq 33
verslum í heimabyggð
Aðsendar greinar - 33
Opnunartími
sundlauga
lágafellslaug
Virkir dagar: 06.30 - 21.30
Helgar: 08:00 - 19:00
Varmárlaug
Virkir dagar: 06.30-08:00 og 15:00-21:00
Laugard. kl. 08:00-17:00 og sunnud. kl. 08:00-16:00
Vespu-, bifhjóla- og bílpróf
Annast akstursmat og sé um hæfnispróf fyrir þá sem hafa gleymt að endurnýja.
Við sinnum öllum alhliða garðyrkjustörfum s.s
jarðvegsvinnu, hellulögnum, steinhleðslum,
timburverki, gróðursetningu, trjáklippingum.
Garðmenn leggja áherslu á fagleg vinnu-
brögð, vandvirkni og skjóta þjónustu.
Sími 893 5788
Tilvera okkar er full af áreiti og álita-
efnum. Til dæmis hvort maður eigi að
bjóða sig fram til setu í sveitastjórn eða
ekki.
Það eru ótrúlega margar ástæður fyrir
því að gera það ekki. Trúið mér, ég er
búin að fara yfir þær allar. En á endan-
um varð niðurstaðan sú að ég vil leggja
mitt af mörkum. Mér finnst skipta máli
hverjir stjórna og hvernig er stjórnað. Það er
pláss við borðið fyrir fjölbreyttar skoðanir og
það er mikilvægt að nýjar raddir fái að heyrast.
Við búum í samfélagi sem hefur alla burði til
að geta þróast með kröfum nútímans og svarað
kalli framtíðarinnar.
Þjónusta sveitarfélaga er gríðarlega mikilvæg
og snertir hvert einasta heimili. Þegar þjónusta
er þróuð, skipulögð og veitt skiptir mestu máli
að hlusta á þá sem þiggja hana og ennfremur þá
sem veita hana. Ég tel að reynsla mín og þekking
á starfsemi sveitarfélagsins geri mig að góðum
hlustanda.
En það er ekki nóg að hlusta og hafa skoðanir.
Það þarf líka að hafa reynslu og þekkingu til að
greina aðalatriði frá aukaatriðum, kunna að
afla sér upplýsinga og síðast en ekki síst að hafa
nægilegan styrk til að geta tekið góðar ákvarð-
anir. Ég trúi því að áralöng reynsla í krefjandi
verkefnum á vinnumarkaði geri mig
hæfa til ákvarðanatöku.
Mosfellsbær hefur allt til að bera til
að vera fyrirmyndarsveitarfélag. Það
er mikilvægt að við leyfum okkur að
hugsa stórt og hugsa lengra. Okkar bíða
áskoranir við að byggja upp Mosfellsbæ
framtíðarinnar.
Eftirköst heimsfaraldursins, mótttaka og
aðlögun innflytjenda, áhrif loftslagsbreytinga,
breytt aldurssamsetning þjóðarinnar, frekari
uppbygging íbúðarhúsnæðis, fjölgun íbúa og
efling innviða. Þetta eru áskoranir sem við sem
samfélag stöndum frammi fyrir bæði til lengri
og skemmri tíma. Það er af nægu að taka.
Ég er tilbúin að leggja mitt af mörkum og
hlakka mikið til að heyra hvað brennur á íbúum
í bænum. En svona verkefni vinnur enginn einn.
Það skiptir máli að vera í góðum hópi fólks og
eiga góða að.
Framsókn í Mosfellsbæ er fjölbreyttur og hæfi-
leikaríkur hópur fólks sem brennur fyrir því að
auka velferð í samfélaginu okkar og treystir sér til
að hlusta á íbúa og taka góðar ákvarðanir.
Þetta verður eitthvað!
Aldís Stefánsdóttir
Af því að það skiptir máli
Orðið velferð þýðir samkvæmt íslenskri
nútímamálsorðabók að „einhverjum
farnist vel“.
Samkvæmt lögum ber stjórnvöld-
um að tryggja velferð sinna þegna og
markmið þeirrar velferðarþjónustu
sem Mosfellsbær veitir ætti því að vera
að auka lífsgæði og stuðla að því að
allir íbúar Mosfellsbæjar eigi kost á að
lifa með reisn. Velferð skarast á svo mörgum
sviðum samfélagsins en hér verður aðeins tæpt
á fjölbreyttum þörfum barna, fjölskyldna og
einstaklinga á öllum aldri.
Innan skólakerfisins er í dag, sem aldrei fyrr,
þörf á hæfu og reyndu starfsfólki sem hefur
metnað fyrir því sem það er að gera. Einnig þarf
að tryggja að stoðþjónusta sé til staðar, á rétt-
um tíma og á réttum stað. Öðruvísi getur ekki
farið fram faglegt og gott starf sem stuðlar að
menntun, þroska og velferð nemenda. Kennarar
og aðrir sem starfa með börnum (s.s. í frístund
eða tómstundastarfi) eru að veita þjónustu sem
oft er langt umfram „hefðbundna“ kennslu.
Kennarar í dag vinna að því alla daga að vinna
traust sinna nemenda, lesa í þarfir hvers og eins
og með lausnamiðuðum hætti finna leið fyrir
hvern einstakling að námi og árangri. Stuðn-
ingur við heimili er einnig umfangsmikill þáttur
í starfi kennarans ekki síst í vaxandi fjölbreyti-
leika samfélagsins. Í einhverjum tilfellum gegna
þeir jafnvel því hlutverki að uppfylla þarfir, sem
nemendur fá ekki uppfylltar á sínu heimili.
Aðstoð og þjónusta við fatlað fólk og eldri
borgara á eigin heimilum og á stofn-
unum eru líka hluti velferðarþjónustu
hvers sveitarfélags.
Ef standa á við alþjóðlegar skuld-
bindingar sem Ísland hefur gengist
við og uppfylla lög um mannréttindi
og réttinn til heilsu þá er mikilvægt
bjóða upp á búsetu við hæfi og að veita
viðeigandi þjónustu á öllum stigum.
Þannig er hægt að tryggja að það fjármagn sem
veitt er til þessarar þjónustu nýtist sem best.
Störf sem þessi krefjast mikils af þeim sem
þeim sinna. Það er staðreynd að þeir sem starfa
í nánum og krefjandi mannlegum samskipt-
um eru í aukinni hættu á kulnun í starfi með
tilheyrandi neikvæðum afleiðingum á heilsu
og lífsgæði en ekki síður afleiðingum fyrir gæði
þeirrar þjónustu sem er veitt. Starfsumhverfi,
samskipti, stuðningur, stjórnun og stjórnsýsla
hefur mikil áhrif á þessa þætti og því mikilvægt
að rýna í og skoða hvort þar sé gert eins vel og
hægt er.
Margoft hefur verið bent á að ekki hafi verið
rétt gefið þegar þessi þjónusta fluttist frá ríki
til sveitarfélaga og vissulega eru sveitarfélögin
bundin af kjarasamningum þessara stétta, en
við þurfum að horfa á allt þetta umhverfi með
gagnrýnum huga og skoða hvort gera megi
betur.
Jana Katrín Knútsdóttir
Höfundur er í 2. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins
fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar
Velferð og þjónusta í Mosfellsbæ
www.bmarkan.is
Þverholt 2 I Mosfellsbær 270 I Sími 525 6700 I mos.is
Öll laus störf hjá Mosfellsbæ og stofnunum
má sjá og sækja um á ráðningarvef bæjarins:
www.mos.is/storf
Laus störf í Mosfellsbæ