Mosfellingur - 09.12.2021, Side 4

Mosfellingur - 09.12.2021, Side 4
www.lagafellskirkja.is kirkjustarfið HelgiHald næstu vikna - Bæjarblaðið í Mosfellsbæ4 Helgihaldið í Lágafellssókn tekur mið af stöðunni í samfélaginu. Á aðventunni (12., 15. og 19. desember) þarf fólk að skrá sig á viðburði í kirkjunni inni á heimasíðu. sunnudagur 12. desember SKRÁNING Á HEIMASÍÐU Litlu jól barnastarfsins kl. 13 í Lágafells- kirkju. Syngjum jólasöngva og fáum góðan gest í heimsókn. sunnudagur 19. desember SKRÁNING Á HEIMASÍÐU Guðsþjónusta kl. 11 í Lágafellskirkju. Sr. Ragnheiður Jónsdóttir þjónar. Hátíðarguðsþjónustur 24., 25. og 31. desember, framvísa þarf neikvæðu Covid-prófi við kirkjudyrnar. kyrrðardagur á aðventu Í Mosfellskirkju laugardaginn 12. des. kl. 9–11, umsjón: sr. Arndís Linn aðventusamsögur í lágafellskirkju SKRÁNING Á HEIMASÍÐU Syngjum saman jólasálma- og söngva miðvikudaginn 15. desember kl. 20. Listapúkinn hlýtur Múrbrjótinn 2021 Múrbrjótur Landssamtakanna Þroskahjálpar var afhentur á alþjóðlegum degi fatlaðs fólks 3. desember. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, nýr félagsmála- og vinnumarkaðs- ráðherra, afhenti Múrbrjótinn við hátíðlega athöfn en í ár voru þrír einstaklingar sem hlutu viðurkenninguna og þar á meðal einn Mosfellingur, Listapúkinn, Þórir Gunnarsson. Þórir hlaut viðurkenn- ingu fyrir baráttu fyrir aðgengi að listnámi án aðgreiningar og framlag á sviði lista. Þroskahjálp hefur frá árinu 1993 haldið upp á þennan dag með því að veita Múrbrjóta. Hann hljóta þau sem þykja hafa sýnt frumkvæði og ýtt undir nýsköpun varðandi þátttöku fatlaðs fólks í samfélaginu og þannig sýnt mikilvægt frumkvæði og framtak við að brjóta niður múra í samfélaginu, sem og viðhorf fólks sem hindra að fatlað fólk fái þau tækifæri sem það á að njóta til jafns við aðra. Uppákomur í jóla­ garðinum á næstunni Jólagarðurinn við Hlégarð hefur slegið í gegn á aðventunni. Verkefnið var kosið í Okkar Mosó 2021. Næstu sunnudaga verða ýmsar uppákomur í garðinum milli klukkan 13 og 17. Hátíðarvagninn mætir með heitt kakó og piparkökur og jólatónlist mun óma um garðinn. Kl. 14 sunnudaginn 12. desember mæta Eysteinn álfur og Hulda búálf- ur og heilsa upp á börnin auk þess sem jólasveinar verða á vappi og Kammerkór Mosfellsbæjar syngur kl. 15:30. Sunnudaginn 19. desem- ber verður það Karlakór Kjalnesinga sem syngur nokkur lög kl. 14:00 og 15:30 auk þess sem jólasveinar verða á ferðinni. Tilvalið er fyrir fjölskyld- ur að upplifa ljósadýrðina og skapa minningar á aðventunni. Nægt pláss er á svæðinu og fólk hvatt til að virða sóttvarnir og fjarlægðarmörk. Nánari upplýsingar á www.lagafellskirkja.is og endilega fylgdu okkur á samfélagsmiðlunum facebook & instagram Mosfellsbær hefur ákveðið að efna til hugmyndasamkeppni um miðbæjargarð við Bjarkarholt. Gerður verður samningur við Mið- stöð hönnunar og arkitektúrs um að halda utan um undirbúning og framkvæmd hugmyndasamkeppninnar. Í deiliskipulagi fyrir miðbæ Mosfellsbæjar er gert ráð fyrir mið- bæjargarði við Bjarkarholt. Svæðið er um hálfur hektari að stærð og tillaga um garðinn byggist meðal annars á áliti rýnihópa íbúa sem lögðu áherslu á græna ásýnd miðbæjarins. Skipuð verður fimm manna dómnefnd þar sem verða tveir full- trúar bæjarstjórnar, skipulagsfulltrúi Mosfellsbæjar auk tveggja fagaðila sem Miðstöð hönnunar og arkitektúrs tilnefnir. Helstu tímasetningar eru þannig að verkefnalýsing og kynningarefni verði tilbúið til auglýsingar 6. janúar 2022, samkeppnin verði auglýst op- inberlega og kynningarfundur haldinn 10. janúar 2022, skilafrestur tillagna verði til miðnættis 21. mars 2022. Að þessu loknu taki við vinna dómnefndar og niðurstaða samkeppninnar verði kynnt sumardaginn fyrsta sem verður 21. apríl 2022 lunga nýja miðbæjarins „Ég bind miklar vonir við þessa hugmyndasamkeppni og sé fyrir mér að miðbæjargarðurinn geti orðið eins konar lunga nýja miðbæjarins þar sem íbúar geti notið fallegs umhverfis, gróðurs, veitinga og stundað einfaldari íþróttir með börnum, vinum og fjöl- skyldu,“ segir Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar. „Miðbæjargarðurinn hefur alltaf verið hugsaður sem miðja svæðisins og mikilvægt er að nýta tækifærið til að þróa miðbæinn okkar saman sem stað þar sem við komum saman, njótum lífsins og sinnum heilsueflingu,“ segir Haraldur. Miðstöð hönnunar og arkitektúrs heldur utan um samkeppni • Fimm manna dómnefnd efnt til hugmyndasamkeppni um miðbæjargarð við Bjarkarholt tölvugerð skissa af miðbæjarsvæðinu Kvenfélag Mosfellsbæjar færði Slökkviliðinu á Skarhólabraut glaðning þann 1. desem- ber. Þá fékk stöðin sjúkrabílabangsa að gjöf sem hafa komið sér vel fyrir yngstu farþeg- ana því erfitt getur verið fyrir börn að ferðast með sjúkrabíl. Áður hafa kvenfélagskonur gefið bangsa til sjúkraflutningamanna sem reynsta hafa vel. Bangsagjöf frá kvenfélaginu Ábendingar óskast um íþróttafólk Það styttist í kjör íþróttakonu og íþróttakarls Mosfellsbæjar 2021. Óskað er eftir útnefningum og ábendingu til 18. desember sem skulu sendast á dana@mos.is. Þeir sem eru gjaldgengir sem íþróttakarl og íþróttakona Mos- fellsbæjar skulu koma úr röðum starfandi íþróttafélaga/deilda í bæj- arfélaginu eða vera með lögheimili í Mosfellsbæ en stunda íþrótt sína utan sveitarfélagsins.

x

Mosfellingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.