Mosfellingur - 09.12.2021, Síða 6

Mosfellingur - 09.12.2021, Síða 6
Laugavegi 26 • 101 Reykjavík • sími 512 4200 • kanon@kanon.is • www.kanon.is - Fréttir úr bæjarlífinu6 Þóra Björg býður sig fram í 5. sæti Þóra Björg Ingimundardóttir hefur ákveðið að gefa kost á sér í 5. sæti á lista í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins sem verður haldið 5. febrúar. Þóra Björg er við- skiptafræðingur og hefur sinnt ýmsum félags- störfum innan stúdentafélaga bæði í mennta- skóla og háskóla. „Ég hef búið í Mosfellsbæ allt mitt líf og vil því leggja mitt af mörkum til að rækta þetta fallega og fjölbreytta bæjar- félag sem við búum í. Mosfellsbær fer ört stækkandi sem skapar nýjar áskoranir sem þarf að leysa ásamt nýjum tækifærum til að skara fram úr, hvort sem um er að ræða menntamál, menningarmál eða aðra málaflokka,“ segir Þóra. Kolbrún býður sig fram í 1. sæti Kolbrún G. Þorsteinsdóttir bæjar- fulltrúi, varaformaður bæjarráðs og formaður fræðslunefndar býður sig fram í 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins. Hún hefur setið í bæjarstjórn frá árinu 2014 og var áður fyrsti varabæjarfulltrúi 2010–2014. Auk þess hefur Kolbrún setið í stjórn skíðasvæðanna og situr nú fyrir hönd Mosfellsbæjar í stjórn Sorpu byggðasamlags. Kolbrún var formaður fjölskyldunefndar frá 2010–2016. Kolbrún er kennari og lýðheilsufræðingur að mennt og stundar nú nám í stjórnun mennta- stofnana við Háskóla Íslands. „Ég hef búið í Mosfellsbæ með hléum í 45 ár og á þrjá syni. Mitt hjarta slær í Mosó og brenn ég fyrir þeim verkefnum sem ég tek að mér. Ég hef mikla löngun til að vinna með góðu og jákvæðu fólki að mál- efnum Mosfellinga,“ segir Kolbrún. Kári Sigurðsson gefur kost á sér í 4.-6. sæti Kári Sigurðsson býður sig fram í 4.-6. sæti í prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins í Mosfellsbæ sem fram fer í janúar. Kári 30 ára gamall og uppalinn Mosfell- ingur frá blautu barnsbeini. Kári hefur starfað í félagsmiðstöðinni Bólinu og sem flokksstjóri og launafulltrúi í vinnuskóla Mosfells- bæjar á sínum yngri árum. Unnusta Kára heitir Ásta Ólafsdóttir þjónustu og sölustjóri hjá Nova og eiga þau einn son. Kári starfar sem viðskiptastjóri. „Ég hef áhuga á því að nýta krafta mína til að styrkja innviði bæjarins hvort sem það eru skipulagsmál eða einföldun ferla.“ Júlíana sækist eftir 5. sæti í prófkjöri Júlíana Guðmundsdóttir hefur ákveðið að bjóða sig fram í 5. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í prófkjöri flokksins sem fram fer 5. febrúar 2022. „Ég hef mikinn áhuga og metnað til þess að starfa fyrir sveitarfélagið og kynnast því góða starfi sem hefur átt sér stað í Mosfellsbæ og enn fremur að menntun mín og reynsla af atvinnulífinu muni nýtast vel í þeirri uppbyggingu sem fram undan er. Við hjónin erum nýflutt í Mosfellsbæ og þegar við vorum að ákveða að kaupa fasteign þá var þetta eina sveitarfélagið sem kom til greina og var það m.a. vegna ná- lægðarinnar við náttúruna og dóttur okkar sem einnig er nýflutt í bæinn. Ég er menntaður lögfræðingur með héraðsdómslögmannsréttindi og starfa í dag sem lögfræðingur fyrir fimm stéttarfélög. Ég er gift Sigurði Árna Reynissyni og saman eigum við tvö börn og eitt barnabarn.“ Arna Hagalíns gefur kost á sér í 2. sæti Arna Hagalíns býður sig fram í 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. Arna er með B.Ed frá Kennarahá- skóla Íslands og MBA-gráðu með áherslu á mann- auðsstjórnun frá háskólanum í Aberdeen í Skot- landi. Arna starfar sem rekstrar- og fjármálastjóri hjá E. Gunnarsson ehf. auk þess að þjálfa fólk í að auka eigið sjálfstraust hjá Dale Carnegie. „Ég brenn fyrir mannlegu málunum, skóla-, íþrótta- og tómstundamálum. Er metnaðargjörn, jákvæð og lausna- miðuð og er þeirrar skoðunar að góður árangur sé afrakstur góðrar samvinnu. Á kjörtímabilinu hef ég starfað sem varabæjarfulltrúi, aðal- maður í fræðslunefnd, varamaður í menningar- og nýsköpunarnefnd og fulltrúi í Heilbrigðiseftirliti Kjós- arsvæðis. „Ég veit að reynsla mín, þekking og menntun getur komið að gagni og óska ég eftir stuðningi til að halda áfram að efla og styrkja okkar framsækna samfélag.“ Á hverju ári eru margháttaðar framkvæmdir á vegum Mosfellsbæjar auk þess sem unnið er að framkvæmdum í samvinnu við ríkið. Nú stendur yfir undirbúningur vegna viðbyggingar við Leirvogstunguskóla sem mun hýsa eldhús skólans og er gert ráð fyrir því að framkvæmdirnar hefjist um næstu áramót. Þá var 2. og 3. áfangi Helgafellsskóla tek- inn í notkun í ágúst 2021 og hýsir skólinn nú starfsemi fyrir börn frá eins árs upp í 10. bekk. Í þessum áfanga voru sérgreina- stofur og glæsilegur samkomusalur tekin í notkun. Þá er undirbúningur hafinn við hönnun og síðar byggingu íþróttahúss við Helgafellsskóla. Loks er hönnun og bygging nýs leikskóla í Helgafellslandi nú í vinnslu en hönnun skólans var boðin út í ár og stendur hönn- unin nú yfir. Leikskólinn mun standa á lóð við Vefarastræti 2-6 og gert er ráð fyrir að framkvæmdin verði boðin út vorið 2022. Að auki hafa verið í gangi umfangsmiklar endurbætur á húsnæði Mosfellsbæjar s.s. í íþróttamiðstöðinni að Varmá þar sem fjórir búningsklefar hafa verið teknir í gegn og í Krikaskóla þar sem gluggar hafa verið endurnýjaðir og lagnir og dren kringum skólann ásamt endurnýjun gólfplötu og gólfefna. Framkvæmdir í samvinnu við ríkið Vesturlandsvegur milli Skarhólabrautar og Langatanga var tvöfaldaður á síðasta ári og nú er í útboði tvöföldun næsta kafla milli Langatanga og Þverholts. Á þeim kafla er gert ráð fyrir breikkun vegarins með miðdeili sem og að koma fyrir nýrri afrein að Sunnukrika. Gert er ráð fyrir að þeim framkvæmdum ljúki á næsta ári. Samgöngustígur í gegnum Ævintýragarð frá Brúarlandi að Leirvogstunguhverfi er nú á lokametrunum en gert ráð fyrir að verk- inu ljúki næsta vor með yfirborðsfrágangi meðfram stígnum. Stígurinn er tvöfaldur þar sem hjólareinar í sitthvora áttina eru annars vegar en göngustígur hins vegar. Þá er unnið að undirbúningi byggingar 44 nýrra hjúkrunarrýma við hjúkrunar- heimilið Hamra og stefnt er að því að fram- kvæmdir hefjist á árinu 2022. Nýframkvæmdir Mosfellsbæjar og undirbúningur næsta árs Fréttir aF helstu Framkvæmdum hringvegurinn í gegnum bæinn heldur áfram að breikka Halldóra Bragadóttir framkvæmdastjóri Kanon arkitekta sem fer með hönnun nýs leikskóla og Haraldur Sverrisson bæjarstjóri skrifa undir. Leikskólinn verður um 1.700 fermetrar að stærð, byggður á tveimur hæðum og þar er gert ráð fyrir stóru útileiksvæði ofan á þaki neðri hæðarinnar eins og sést á meðfylgjandi vinnuskjali. Nýting á heitu vatni á Íslandi á sér sterka sögulega skírskotun til Reykjahverfis og þar er ennfremur upphaf nýtingar á heitu vatni á Íslandi en Stefán B. Jónsson bóndi á Reykjum leiddi fyrstur manna heitt vatn inn í íbúðarhús á Íslandi árið 1908. Í því ljósi hafa vaknað hugmynd- ir um að reistur verði Orkugarður í Reykjahverfi á lóð í eigu Veitna ohf. Í viðræðum við Veitur hefur komið fram að mikill áhugi sé á hugmynd- inni og hefur fyrirtækið lýst því yfir að það sé reiðubúið til þess að undirrita viljayfirlýsingu um verkefnið og setja fjármuni til uppbyggingar og frágangs árin 2023-2024. Bæjarráð Mosfellsbæjar hefur nú heimilað gerð viljayfirlýsingar milli Mosfellsbæjar og Veitna ohf. um Orkugarð í Reykjahverfi og falið skipulagsnefnd það verkefni að útfæra hugmyndina nánar og undirbúa deiliskipulag fyrir Orkugarð. undirbúningur Orkugarðs í Reykjahverfi hafinn Mikill áhugi á hugmynd Mosfellsbæjar og Veitna veitur eiga lóð við reyki, efst í reykjahverfi Hjörtur býður sig fram í 4. sæti Hjörtur Örn Arnarson gefur kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðismanna sem fer fram 5. febrúar 2022. Hjört- ur er landfræð- ingur frá Háskóla Íslands og með framhaldsmennt- un í kortagerð og landmælingum frá Danmörku. Hann er giftur Klöru Gísladóttur kennara í Helgafellsskóla og eiga þau saman 3 börn. Hjörtur hefur starfað í verkfræðigeiranum í hátt í 20 ár og komið að skipulagsmálum, landmælingum og kortagerð. Hjört- ur hefur tekið þátt í starfi Aftureld- ingar í gegnum tíðina, bæði sem þjálfari og sjálfboðaliði. „Ég býð fram krafta mína í bæjarpólitíkinni í Mosfellsbæ og óska eftir stuðningi í 4. sætið. Ég hlakka til að takast á við spennandi verkefni í þágu bæjarbúa í þeirri miklu uppbyggingu sem fram undan er í sveitarfélaginu.“ MOSFELLINGUR Jólablað mOsFellings kemur út 23. desember mosfellingur@mosfellingur.is

x

Mosfellingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.