Mosfellingur - 09.12.2021, Blaðsíða 8
Ingólfur Hrólfsson formaður
s. 855 2085 ihhj@simnet.is
Úlfhildur Geirsdóttir varaformaður
s. 896 5700 bruarholl@simnet.is
Margrét Ólafsdóttir gjaldkeri
s. 863 3359 margretjako@gmail.com
Snjólaug Sigurðardóttir ritari
s. 897 4734 snjolaugsig@simnet.is
Kristbjörg Steingrímsdóttir meðstjórnandi
s. 898 3947 krist2910@gmail.is
Jóhanna B. Magnúsdóttir 1. varamaður
s. 899 0378 hanna@smart.is
Þorsteinn Birgisson 2. varamaður
s. 898 8578 thorsteinn.birgis@gmail.com
StJÓrn FaMoS
Eldri borgarar • þjónustumiðstöðin eirhömrum • fram undan í starfinu
Skrifstofa félagsstarfsins er opin
alla virka daga kl. 13–16. Sími félags-
starfsins er 586-8014. Forstöðumaður
félagsstarfs eldri borgara í Mosfellsbæ
er Elva Björg Pálsdóttir tómstunda-
og félagsmálafræðingur, s: 698-0090.
Skrifstofa FaMos á Eirhömrum
er opin alla fimmtudaga frá kl. 15–16.
FélaG aldraðra
í Mosfellsbæ og nágrenni
famos@famos.is
www.famos.is
- Fréttir úr bæjarlífinu8
Félagsvist
Félagsvist 10. desember kl. 13:00
í borðsal Eirhamra. Aðgangur er
ókeypis en auðvitað er alltaf frír
kaffisopi og vinningur ef heppnin
er með þér. Grímuskylda er í félags-
miðstöðvunum ef nálægð fólks er
minni en 1 m. Sprittum hendur líka
milli spila.
JÓlaBInGÓ Á BarIon
Þriðjudaginn 14. desember kl. 15:00.
Þverholti 1. Bingónefnd FaMos ásamt
Hilmari Gunnarssyni gestabingó-
stjóra ætla að halda skemmtilegt
JÓLABINGÓ. Aðgangseyri er 1.000
krónur og innifalið er eitt bingóspald,
kaffi og meðlæti. Aukaspjald á 300 kr.
Glæsilegir vinningar í boði. Hlökkum
til að sjá þig. Bingónefnd FaMos og
félagsstarfið Mosfellsbæ.
Jólaskreytingadagar
14. og 15. desember
Miðvikudaginn 14. des. og fimmtu-
dag 15. des. kl. 13:00 ætlar Brynja að
vera með tilsögn í skreytingagerð og
hjálpa þeim sem vilja búa til nýjar
skreytingar eða dusta rykið af þeim
gömlu.
Endilega komið með það efni sem
þið eigið sjálf. Hýasintur, greni og
eitthvað skreytingaefni verður til á
staðnum.
Nauðsynlegt er að skrá þátttöku í síma
586-8014 eða 698-0090 eða á blað.
Heilsa og hugur
Námskeiðið sem hefur slegið í
gegn. Byrjar 10. janúar kl 9:30 fyrir
BÁÐA HÓPANA. Skráning er hafin á
frábæra námskeiðið okkar Heilsa
og hugur fyrir 60+ og ætlum við að
byrja mánudaginn 10. janúar en þá
mæta báðir hóparnir saman í FEllIð
við Varmá kl 9:30. Á mánudögum
verða tímarnir okkar sameiginlegir
en tímsetningarnar halda sér á
miðvikudögum og föstudögum eins
og þið skráið ykkur í. Hóparnir eru
tveir, kl. 9:30 og 10:30. Posi verður á
staðnum og það kostar 12 þús krónur
tímabilið. Þeir sem eru búinar að skrá
sig hjá kennurum þurfa EKKI að gera
það aftur. Hlökkum mikið til að sjá
ykkur. Bestu kveðjur, Halla Karen og
Berta. Skráning í síma 6980090 eða á
elvab@mos.is
BaSar/BÚð 2021
Minnum á basarbúðinna okkar í fé-
lagsstarfinu Hlaðhömrum 2. Fallegar
handunnar vörur á afar góðu verði
og úrvalið fjölbreytt. Hlökkum til að
sjá sem flesta í basarbúðinni. Keypt
eru gjafabréf fyrir allan ágóðann
sem síðan eru gefin til þeirra sem á
þurfa að halda í samráði við kirkjuna
og félagsþjónustuna. Opnunartími
basarbúðarinnar mán.-fim. 11:00-16:00
og fös. 13:00-16:00. Posi verður á
staðnum. STYRKJUM GOTT MÁLEFNI.
Minnum á grímuskyldu.
Heilbrigðisstofnunin Reykjalundur fagnar
76 ára afmæli á þessu ári en Reykjalundur
hefur á þessum tíma verið einn fjölmenn-
asti vinnustaður bæjarins. Reykjalundur er
eins og kunnugt er í eigu SÍBS og er stærsta
endurhæfingarstofnun landsins.
Á Reykjalundi fer fram alhliða endurhæf-
ing sem miðar að því að bæta lífsgæði, færni
og sjálfsbjargargetu þeirra sem þangað
leita. Endurhæfing Reykjalundar einkenn-
ist af samvinnu fagfólks sem myndar átta
sérhæfð meðferðarteymi ásamt deildinni
Miðgarði sem veitir sólahringsþjónustu.
Um 110-130 sjúklingar sækja þjónustu á
degi hverjum. Á hverju ári fara um það bil
1.300 manns í gegnum endurhæfingarmeð-
ferð á Reykjalundi, flestir í 4-6 vikur.
Samhliða enduhæfingarstarfseminni
rekur Reykjalundur sambýlið Hlein sem er
fyrir mikið fatlað fólk sem hefur fatlast af
völdum sjúkdóma eða slysa.
Heimsfaraldur hefur áhrif
Síðan fyrsta COVID-smitið greindist hér
á landi þann 28. febrúar 2020 hefur sann-
arlega orðið atburðarás í íslensku samfélagi
sem enginn hefði trúað fyrir fram að eiga
eftir að upplifa.
Nú hafa um 18.000 Íslendingar smitast
af COVID en sem betur fer hafa flestir náð
sér að fullu.
Bráð einkenni COVID eru vel þekkt
og líkjast í flestu öðrum veirusýkingum
í öndunarvegi s.s. með kvefeinkennum,
hita, vöðva- og beinverkjum og stundum
skerðingu á bragð- og lyktarskyni. Það sem
hefur hins vegar komið á óvart er hversu
lengi einkenni geta varað og hve fjölbreyti-
leg þau eru. Flestir sem smitast og veikjast
af COVID-19 ná bata á nokkrum vikum. Um
fjórðungur upplifir þó einkenni í meira en
fjórar vikur en margt bendir til að hátt í
tíundi hver hafi ekki náð sér eftir 12 vikur.
Þetta ástand er algengara meðal þeirra sem
hafa veikst alvarlega af COVID-19 en hins
vegar eru fjölmörg dæmi um langvinn ein-
kenni eftir tiltölulega væga sýkingu.
Smittölur að undanförnu þær hæstu
Reykjalundur kom mjög fljótt að um-
ræðu um endurhæfingu einstaklinga
með langvinn einkenni COVID. Langvinn
einkenni sem einstaklingar hafa í kjölfar
veikindanna eru um margt keimlík þeim
einkennum sem hrjá þá einstaklinga sem
Reykjalundur er vanur að sinna, þó svo að
orsökin sé önnur. Þannig eru verkjavanda-
mál, stoðkerfiskvillar, kvíði, depurð, svefn-
truflanir, þrekleysi og kulnun.
Ánægjulegt er frá því að segja að frá
maí 2020 hafa um 100 manns lokið með-
ferð vegna langvinnra einkenna COVID
á Reykjalundi. Þar sem endurhæfingar-
starf Reykjalundar fer að öllu leyti fram
samkvæmt samningi við Sjúkratryggingar
Íslands hafa verið gerðir tímabundnir
viðbótarsamningar milli Reykjalundar og
Sjúkratrygginga um stóran hluta þessarar
endurhæfingar.
Ljóst er að bólusettir einstaklingar fá síð-
ur langvinn einkenni heldur en óbólusettir.
Út frá því mætti ætla að færri Íslendingar
þjáðust af langvinnum einkennum af völd-
um COVID og þar með biðlisti þessa hóps
inn á Reykjalund að minnka. Það virðist
vera raunin en þó þarf að hafa í huga að
smittölur í nóvember og desember á þessu
ári eru þær hæstu hér á landi síðan farald-
urinn hófst. Sá hópur sem gæti átt á hættu
að fá langvinn einkenni í kjölfar þeirra
smita er ekki kominn fram.
Hólfaskipting og röskun á starfsemi
Heimsfaraldurinn hefur einnig sett dag-
lega starfsemi í uppnám. Snemma á árinu
voru skilgreind fjögur ólík viðbragðsstig í
starfseminni þar sem litir eru notaðir til að
einkenna viðbragðsstigið. Því miður hefur
Reykjalundur verið að mestu í hólfaskipt-
ingu á háu viðbragðsstigi alveg frá því í
ágúst og í raun stóran hluta þessa árs.
„Í sjúklingahópi okkar á Reykjalundi er
að finna fjölda einstaklinga í viðkvæmum
áhættuhópum og þeim verðum við að sýna
virðingu ásamt því að leggja okkur fram við
að skapa traust og öryggi hjá þeim í sótt-
varnarmálum sem og öðru,“ segir Pétur
Magnússon forstjóri Reykjalundar.
aðventukveðjur
Starfsfólk Reykjalundar sendir sjúkling-
um og skjólstæðingum, Mosfellingum og
öllum öðrum velunnurum starfseminnar
hugheilar aðventukveðjur með von um að
sem flestir nái að njóta þess skemmtilega
árstíma sem nú fer í hönd. Jafnframt fylgja
bestu þakkir fyrir samstarf og hlýhug á
liðnum árum.
Heimsfaraldur hefur sett daglega starfsemi í uppnám • Hólfaskipting á háu viðbragðsstigi • Fjöldi í áhættuhópum
um 100 manns lokið meðferð á reykja-
lundi vegna langvinnra einkenna CoVid
árlegur jólabasar reykjalundar