Mosfellingur - 09.12.2021, Page 30
- Aðsendar greinar30
Á ensku talað um „conflict of interest,“ þ.e. þegar
atvik valda því hagsmunir aðila rekast á. Einn aðil-
inn getur verið sá sem hefur umboðið (e. agent) og
hinn umboðsveitandinn (e. principal). Það kann
að vera að hagræðing sé því að veita einhverjum
umboð. Hvað getur gerst þegar umboðsveitandinn
er ekki viðstaddur, farið er út fyrir umboðið og svik
eru í tafli?
Í dómum sem hafa fallið frá hruni íslenska
fjármálakerfisins, sem skall á 2008, hefur verið dæmt
í umboðssvikamálum. Þá hafa fallið dómar sem varða
refsingu ef sá sem umboðið hafði, umboðsþeginn, fór út
fyrir umboðið. Með störfum margra er fólgið umboð, þ.e.
stöðuumboð. Einnig eru menn með umboð í tengslum við
störf sín, sbr. störf lögmanna, starfsmanna í stjórnkerfinu
sem innan fjármálakerfisins og víðar.
Í kosningum veitum við kjörnum fulltrúum umboð. Þá
er um að ræða pólitískt umboð og leggja stjórnmálamenn
og flokkar fram stefnu sína fyrir hverjar kosningar og eru
svo dæmdir af verkum sínum síðar í næstu kosningum.
Þar sæta stjórnmálamenn sinni pólitísku ábyrgð. Margir
ákveða reyndar að þeirra staða sé orðin það veik að þeir
ákveða fyrir fram að yfirgefa pólitíska sviðið og tilkynna í
tíma að þeir bjóði sig ekki aftur fram.
Þegar kjörnir fulltrúar eru ráðnir til starfa stöðu sinnar
vegna, þ.e. þegar þeir ná meirihluta, eru þeir orðnir hluti
stjórnkerfisins, þ.e. framkvæmdastjórnar í sveitarfélögum
eða innan framkvæmdavaldsins, ráðherrar. Framkvæmda-
stjórar sveitarfélaga, oft nefndir bæjarstjórar, eru
þá orðnir bæði stjórnmálamenn og starfsmenn,
þ.e. embættismenn. Vandinn við slíkt fyrirkomu-
lag hefur m.a. leitt til þess að félagar þeirra, sem
síðar vænta þess að ná sömu vegsemd, eru þeir
hinir sömu og samþykkja ráðningarsamning við-
komandi bæjarstjóra. Þar eru laun oft mjög há og
eins og fyrir hrun fjármálakerfisins er það réttlætt
með því að annan eins snilling sé ekki að finna í
bæjarfélaginu, nú eða í landinu.
Einnig er fullyrt að viðkomandi sæti svo mikilli ábyrgð að
háu launin réttlæti það, eftir atvikum kaupréttir og önnur
vildarkjör. Einhverjir sækjast eftir að fá einhvern í starfið
sem hentar, einhvern sem spilar með. Í upphafi þessa
kjörtímabils í Mosfellsbæ samdi meirihlutinn við bæjar-
stjórann um laun sem eru miðuð við laun ráðuneytisstjóra
í forsætisráðuneytinu. Hvað hékk á spýtunni?
Á kjörtímabili sitjandi sveitarstjórna á Íslandi í dag féllu
brott lög um kjararáð. Laun ráðuneytisstjóra í forsætisráðu-
neytinu hækkuðu skömmu síðar, og þar með bæjarstjórans
í Mosfellsbæ, um sem nemur 114.510 krónur eftir áramótin
2019 og 2020 og fóru þá í 1.932.203 á mánuði. Varð forseta
lýðveldisins þá svo um að hann ákvað að afþakka hækk-
un sína en um það má lesa í frétt í Fréttablaðinu 8. apríl
2020.
Talnakönnun gaf út skýrslu fyrir Félag forstöðumanna
ríkisstofnana, sem birt var í mars sl. Þar kom fram að launa-
þróun ráðuneytisstjóra hefur hækkað umtalsvert umfram
forstöðumenn og nokkuð umfram launavísitölu. Sjá má
samkvæmt þessu að skattgreiðendur eru að hanna hér á
landi nýja elítu embættismanna og kjósa yfir sig kostnað
ár frá ári. En sæta þessir aðilar ábyrgð?
Samkvæmt frétt Viðskiptablaðsins 24. ágúst sl. er fullyrt
að laun bæjarstjórans í Mosfellsbæ séu komin í um eða
yfir 2.141.000,- krónur á mánuði. Regluleg mánaðarlaun,
skv. Hagstofu Íslands, námu árið 2020 um kr. 480 til 749
þúsund, regluleg laun í fullu starfi að meðaltali um kr. 670
þúsundum.
Umboðsvandinn leynist víða og veldur skattgreiðendum
tjóni ár eftir ár þar sem frændhygli, vinavæðing og und-
irlægjuháttur óbætanlegu tjóni. Breytum þessu í næstu
kosningum.
Gleðileg jól og farsælt komandi ár. Kjósum rétt á kom-
andi ári.
Sveinn Óskar Sigurðsson
Bæjarfulltrúi Miðflokksins í Mosfellsbæ
Eilíf hækkun launa íslensku elítunnar
– Æðstu embættismannanna
Dreifing launa fullvinnandi launafólks 2020
Heimild: Hagstofa Íslands
Fjárhagslegt umhverfi sveitarfé-
laganna hefur einkennst af mikilli
óvissu undanfarin 2 ár af orsökum
sem við öll þekkjum.
Á covid-tímum varð reksturinn
vandasamari og tekjur lækkuðu.
En eins og fyrirliggjandi fjárhags-
áætlun 2022 sýnir þá er fjárhagur
sveitarfélagsins að komast á betra
ról fyrr en menn töldu að væri
mögulegt í upphafi faraldurs,
tekjufallið er að skila sér hraðar til
baka og tekjur að nálgast það sem
var fyrir faraldur. Mosfellingum
heldur áfram að fjölga og þar með
skila sér auknar tekjur í kassann.
En fjölgun íbúa fylgir líka aukin
þjónustuþörf. Auðvitað er ýmislegt
gott að finna í fyrirliggjandi fjárhagsáætlun
sem allir flokkar í bæjarstjórn geta skrifað
undir. En fjárhagsáætlunin er ekki unnin í
samstarfi og þ.a.l. hafa flokkar í minnihluta
ekki tækifæri til að koma sínum áherslu-
atriðum að.
Tíu dropa útsvarslækkun
til heimabrúks
Áherslur í fjárhagsáætlun end-
urspegla pólitíska afstöðu þeirra
stjórnmálaflokka sem hana leggja
fram, þ.e. Vinstri grænna og Sjálf-
stæðisflokks. Lækkun útsvarspró-
sentu um 0,04 prósentustig frá
leyfilegu hámarki er pólitísk aðgerð
til að tikka í box skattalækkana hjá
Sjálfstæðisflokknum og VG töltir
með. Eins og við Samfylkingarfólk
höfum margoft bent á skiptir þessi
lækkun í raun engu máli fyrir ein-
staka útsvarsgreiðendur. Þannig
heldur útsvarsgreiðandi sem er
með 500.000 krónur á mánuði
eftir aukalega 200 krónum sem
duga fyrir kaffibolla á bensínstöðinni.
Bæjarbúinn með 2.000.000 á mánuði getur
farið í bakaríið og fengið sér kaffi og með
því. Þetta smellpassar við hugmyndafræði
sjálfstæðismanna.
Meirihlutinn ákveður nú sjötta árið í röð
að innheimta ekki fullt útsvar. Árið 2022
þýðir það 24 milljónum minna í kassann.
Lauslega reiknað eru það ríflega 100 millj-
ónir sem meirihlutinn hefur afþakkað inn
í rekstur bæjarins á þessum árum. Í ljósi
þess að ábati einstakra útsvarsgreiðenda
er lítill sem enginn telur Samfylkingin að
í stækkandi sveitarfélagi hefði verið skyn-
samlegra og til ábata fyrir samfélagið í heild
að nýta þessa fjármuni í brýn verkefni s.s.
aukinn stuðning og sérfræðiþjónustu innan
skólakerfisins, aukinn kraft í umhverfis- og
loftslagsmálin eða til að auka stuðning við
þau sem höllustum fæti standa í okkar
samfélagi, svo einhver dæmi séu nefnd.
Sveitarfélögin í landinu halda því fram
með réttu að ríkið hafi ekki látið fylgja
nægilega fjármuni með flutningi verkefna
frá ríkinu til sveitarfélaganna. Má þar nefna
grunnskólann og málefni fatlaðs fólks.
Reyndar hefur komið fram í umræðunni
að 9 milljarða vanti inn í málflokk fatlaðs
fólks frá ríkisvaldinu. Á það er bent að
tekjumöguleikar sveitarfélaganna séu
mun takmarkaðri en ríkisvaldsins enda
geta sveitarfélög ekki ákveðið nýja skatta
eins og ríkið. Þannig séu sveitarfélögin
að nýta fjármuni sem ættu að fara í annað
til að halda upp lögbundinni þjónustu í
þessum málaflokkum. Á móti þessum rök-
um hafa heyrst, m.a. frá framámönnum í
ríkisstjórn Sjálfstæðismanna, VG og Fram-
sóknar, að það sé holur hljómur í kröfum
sveitarfélaganna um aukin fjárframlög
þegar sveitarfélögin fullnýti ekki útsvars-
heimildina. Við tökum undir þá skoðun
framámanna ríkisstjórnarinnar því þegar
öllu er á botninn hvolft þá koma fjármunir
til þessara mikilvægu samfélagsverkefna
alltaf af sköttum borgaranna.
Lækkun útsvars um 0,04 prósentustig er
sýndarmennska í heimabyggð sem flækir
málin í samskiptum ríkis og sveitarfélaga.
Anna Sigríður Guðnadóttir,
bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar
Ólafur Ingi Óskarsson,
varabæjarfulltrúi Samfylkingarinnar
Nokkur orð um fjárhagsáætlun og kaffisopa
Dagur sjálfboðaliðans er 5. desember ár hvert samkvæmt
útnefningu Sameinuðu þjóðanna. Á þeim degi er vel við
hæfi að setja á blað nokkur orð um störf kvenfélaga sem
vinna sín störf af hugsjón.
Almenn skilgreining á sjálfboðaliðastarfi er á þessa leið:
Sjálfboðið vinnuframlag einstaklinga sem taka að sér að
sinna valfrjálsum viðfangsefnum sem unnin eru með hags-
muni almennings að leiðarljósi án þess að viðkomandi fái
greiðslu fyrir.
Kvenfélagskonur hafa alla tíð sinnt málefnum í nær-
samfélagi sínu. Á árinu sem er að líða hefur engin undan-
tekning orðið á því og hefur Kvenfélag Mosfellsbæjar fært
nokkrum aðilum gjafir sem við vonum að komi að góðum
notum. Hamrar hjúkrunarheimili fékk t.d. þrjár JOY FOR
ALL rafkisur að gjöf. Þær eru með innbyggðan skynjara og
bregðast við faðmlögum og klappi á svipaðan hátt og alvöru
kisur gera. Sambýlið Hlein við Reykjalund fékk loftdýnu
með mótor sem hentar vel til að fyrirbyggja þrýstingssár
og eykur almenna vellíðan. Síðast í þessari upptalningu
er Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sem fékk að gjöf 60
handprjónaða bangsa, svokallaða sjúkrabílabangsa sem
eins og nafnið bendir til eru hafðir til taks í sjúkrabílunum
og gefnir yngstu sjúklingunum.
Okkur kvenfélagskonum er umhugað um nærsamfélagið
en við tökum einnig virkan þátt í starfi Kvenfélagasam-
bands Íslands sem við erum stoltir aðilar að. Innan KÍ eru
u.þ.b. 150 kvenfélög starfandi um land allt eða um 5.000
konur sem vinna óeigingjarnt starf í þágu samfélagsins. Oft
fer þetta starf ekki hátt en til að setja það í samhengi við
tölur er gaman að segja frá því að á árunum 2018-2020 hafa
kvenfélagskonur um land allt gefið samtals 179.053.274
krónur til samfélagsins skv. skýrslu sem flutt var á fjöl-
mennu landsþingi KÍ í Borgarnesi nýlega.
Kvenfélagskonur um allt land tóku saman höndum og
tóku þátt í afmælissöfnuninni „Gjöf til allra kvenna á Ís-
landi“ í tilefni 90 ára afmælis Kvenfélagasambands Íslands.
Með sölu á sérmerktum armböndum og súkkulaði frá Om-
nom var safnað fyrir tækjum og hugbúnaði þeim tengdum
sem kemur til með að gagnast öllum konum um landið
allt. Um er að ræða mónitora, ómtæki og rafrænar teng-
ingar milli landsbyggðar og Kvennadeildar Landsspítala.
Þessi búnaður kemur til með að stytta biðtíma, lágmarka
ferðalög og auka öryggi hvort sem um er að ræða aðstoð og
greiningu vegna meðgöngu, fæðinga eða skoðana vegna
kvensjúkdóma. Markmiðið var að safna 36 milljónum,
undir lok söfnunar var upphæðin komin í 34 milljónir og
erum við þakklátar fyrir góðar undirtektir.
Kvenfélag Mosfellsbæjar hefur starfað í 112 ár, þó ekki
alltaf undir sama nafninu. Við fundum fyrsta mánudag
hvers mánaðar yfir vetrarmánuðina og tökum fagnandi á
móti gestum og nýjum félögum.
Kæru Mosfellingar, við kvenfélagskonur óskum ykkur
gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þökkum veittan
stuðning á liðnum árum.
Fyrir hönd stjórnar KM
Vilborg Eiríksdóttir ritari
Fréttir af starfi Kvenfélags Mosfellsbæjar
Fjóla Bjarnadóttir forstöðumaður Hamra og Auður Kjartansdóttir
gjaldkeri Kvenfélagsins með þrjár rafkisur.