Mosfellingur - 09.12.2021, Side 33

Mosfellingur - 09.12.2021, Side 33
verslum í heimabyggð Aðsendar greinar - 33 Þverholti 3 - Sími: 566-6612 FÓTAAÐGERÐASTOFA MOSFELLSBÆJAR www.motandi.is Bíldshöfða 14 | Reykjavík | s. 520 3200 www.artpro.is Opnunartími sundlauga lágafellslaug Virkir dagar: 06.30 - 21.30 Helgar: 08:00 - 19:00 Varmárlaug Virkir dagar: 06.30-08:00 og 15:00-21:00 Laugard. kl. 08:00-17:00 og sunnud. kl. 08:00-16:00 GÓÐIR MENN EHF Rafverktakar GSM: 820-5900 • nýlagnir • viðgerðir • • hönnun og uppsetning á öryggiskerfum • síma og tölvulagnir Löggiltur rafverktaki Í litlu þorpi úti á landi þar sem ég er alin upp þá vorum við krakkarnir reglulega minntir á að kurteisi kostar ekkert. Einnig að taka tillit til annarra, þótt ólík séum. Mér þótti þetta ægileg klisja þegar mamma mín sagði þetta við mig, en eftir að ég varð eldri þá skildi ég mein- inguna og hef alltaf lagt mig fram um að fara eftir þessu því eitt af höfuðgildum í mínu lífi er að koma vel fram við aðra og sýna þeim kurteisi, hlýju og kærleika. Allir eiga rétt á að vera nákvæmlega eins og þeir eru og eiga að fá að blómstra á sínum forsendum. Sýnum öðru fólki virðingu, því fjölbreytileikinn geri okkur betri. Við verðum sterkara samfélag og betri bær fyrir vikið. Hvers vegna eru sumir þannig að þeir þurfa alltaf að gera lítið úr öðrum og bera ekki virð- ingu fyrir fólki sem er ekki eins og þeir sjálfir? Við getum ekki breytt öðrum en við getum breytt viðhorfi okkar til annarra. Við eigum ekki að vera neikvæð heldur taka fólki eins og það er og sýna öllum virðingu og hlýju. Erum við ekki á rangri braut ef okkur finnst við vera yfir aðra hafin og vera klárari en aðrir? Sýnum öðrum kærleika og tillitsemi því allt er þetta ákvörðun okkar sjálfra, hvernig við ætlum að koma fram, hvernig ætlum við að hafa daginn okkar, góðan, jákvæðan og skemmtileg- an eða leiðinlegan, neikvæðan og fúlan. Ef við reynum að horfa jákvæðum augum á það sem dagurinn ber í skauti sér og ákveðum að við ætlum að vera hamingjusöm þá mun dagurinn sannarlega verða betri. Mig langar að vekja athygli á þessu þar sem mér finnst fólk of oft sýna öðrum óvirðingu, jafnvel niðurlægingu og skrifa ljóta hluti án þess að hugsa um hvaða afleiðingar það getur haft. Sýnum frekar öðrum tillitsemi og kurteisi. Reynum að sýna kærleika og brosa til ókunn- ugra því „bros getur dimmu í dagsljós breytt“. Kristín Ýr Pálmarsdóttir Eigum við ekki öll rétt á að vera eins og við erum, eins ólík og okkur var ætlað að vera! Kæru Mosfellingar. Nú hefur Fram- sóknarflokkurinn legið í dvala hér í bænum okkar svo árum skiptir sem er afar miður fyrir okkar bæjarfélag. Það fer nefnilega ekkert á milli mála að grunngildi flokksins, sem skilað hafa þjóðinni þessum mikla árangri á landsvísu, hafa átt undir högg að sækja hér í Mosfellsbæ. Þetta sést bersýnilega á morgnana þegar umferðarteppan er hvað mest, þar sem flest allir flykkjast í Reykjavík eða nærumhverfi til að sækja atvinnu. Erfitt hefur reynst fyrir ungt fólk að setjast hér að vegna skorts á húsnæði fyrir fyrstu kaupendur. Lítil fjölbreytni er í atvinnustarfsemi. Stórar ákvarð- anir hafa verið teknar í tráss við vilja lykilaðila. Framtíðarsýn skortir í skipulagsmálum. Hér er einfaldlega tækifæri til að gera betur. Við í unga armi Framsóknar fáum ekki betur séð en að rótgróin stefnumál elsta og virtasta flokksins eigi töluvert erindi hér, þ.e.a.s. skynsöm byggðastefna og bættar sam- göngur, metnaðarfull atvinnusköpun og loks virkt samráð. Til þess að stuðla að atvinnusköpun verða svo auðvitað að vera til staðar skilyrði svo einkaframtakið geti fært út kvíarnar, í þeim efnum eru uppi mörg tækifæri til að gera betur með ýmsum ívilnunum til að laða að fyrirtæki. Framsóknarflokkurinn vann stórsig- ur í nýafstöðnum kosningum á lands- vísu og við ætlum okkur að sjálfsögðu að fylgja fast á eftir í komandi sveitar- stjórnarkosningum. Nú er undir okk- ur bæjarbúum komið að tryggja veru sáttasemjarans í miðjunni hér í Mosfellsbæ. Kjartan Helgi Ólafsson og Leifur Ingi Eysteinsson, höfundar eru ungir Framsóknarmenn og stjórnar- menn í Framsóknarfélagi Mosfellsbæjar Sá elsti og virtasti Vogatunga 51, 270 Mosfellsbæ, sími: 864 6600 Gólfefna lausnir fyrir heimili og fyrirtæki

x

Mosfellingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.