Sveitarstjórnarmál - 01.01.2018, Blaðsíða 8
8
Reykjavíkurhöfn fagnaði aldarafmæli
sínuí loksíðastaárs.Stofndagurhennar
var 16. nóvember 1917 þegar hafnar-
nefndin kom saman á skrifstofu Knud
Zimsen borgarstjóra ásamt verkfræð-
ingunumKirkogPedersenográðunaut-
um hafnarnefndar. Á fundinum náðist
samkomulagumþauágreiningsmálsem
uppivoruogtókhafnarnefndinviðhafn-
armannvirkjunummeðnokkrumfyrirvör-
umfráþeimdegiaðtelja.
Nær níu áratugum síðar eða í byrjun árs
2005 tók nýtt hafnarfyrirtæki, Faxaflóahafnir
sf., til starfa. Fyrirtækið á og rekur fjórar
hafnir, Reykjavíkurhöfn, Grundartangahöfn,
Akraneshöfn og Borgarneshöfn. Faxaflóa-
hafnir sf. er sameignarfélag í eigu fimm
sveitarfélaga, Reykjavíkurborgar, Akranes-
kaupstaðar, Hvalfjarðarsveitar, Skorradals-
hrepps og Borgarbyggðar.
Í dag er Reykjavík eina höfuðborg Vest-
urlanda sem hefur höfn þar sem útvegur og
fiskvinnsla eigi sér samastað.
Velviljaður Danakonungur
Bygging hafnarinnar átti sér talsverðan að-
draganda. Hafnarsjóður var ekki stofnaður
fyrr en árið 1856 en erfiðlega gekk að finna
fjármuni til hafnargerðarinnar. Ýmsir kostir
voru kannaðir en þóttu ekki aðgengilegir við
nánari skoðun eða voru alls ekki í boði þegar
á reyndi. Bæði var leitað til enskra, franskra
og norskra banka en þó einkum til banka í
Danmörku enda Ísland enn hluti Danaveldis á
þeim tíma. Íslensku bankarnir, Landsbanki
Íslands og Íslandsbanki, komu þar einnig við
sögu en tilboð þeirra þóttu ekki nægilega
hagstæð.
Það var ekki fyrr en erindi Páls Einarssonar,
þáverandi borgarstjóra, um lánafyrirgreiðslu
til hafnargerðar í Reykjavík barst Friðriki VIII
Danakonungi til eyrna, að eitthvað fór að
ganga. Lítið er vitað hvað fór erindrekum
Íslands og konungi í milli en Friðrik VIII var
alla tíð fremur velviljaður Íslendingum og því
hefur verið haldið fram að hann hafi lagt því
orð að lána bæri Íslendingum.
Fyrstu handtökin voru við
lagningu járnbrautar
Hafist var handa við hafnargerðina þann
8. mars 1913 þegar gufuskipið Edvard Grieg
kom til Reykjavíkur. Skipið lagðist við legu-
Hafnamál
Reykjavíkurhöfn 100 ára
- Saga hafnarinnar er hluti af sögu borgar, lands og þjóðar
Séð yfir austurhluta gömlu hafnarinnar og svæðið í kringum tónlistarhúsið Hörpu. Myndirnar eru teknar úr skrifstofu Gísla Gíslasonar, hafnarstjóra Faxaflóahafna, í
Hafnarhúsinu í Reykjavík.