Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.01.2018, Blaðsíða 19

Sveitarstjórnarmál - 01.01.2018, Blaðsíða 19
19 Víðar en hér á landi er unnið er að samein- ingu sveitarfélaga eða stjórnvaldssvæða. Um liðin áramót sameinuðust tvö fylki í Noregi – Suður- og Norður-Þrændalög í eitt. Með því fækkaði fylkjum í Noregi úr 19 í 18. Sameiningin er söguleg en rúmlega 200 ár eru liðin frá aðskilnaði fylkjanna þegar amtinu Þrándheimi var skipt í ömtin Norður- og Suður-Þrændalög þar sem orðið Þrænda- lög stóð fyrir lögsöguumdæmi svæðisins en þar réð hið forna Frostaþing lögum og lofum. Í Íslendingasögunum má lesa um margvísleg samskipti Íslendinga og íbúa þessara byggðarlaga fyrr á tímum. Stærri og þýðingarmeiri hluti Noregs Haft er eftir Ritu Ottervik, borgarstjóra í Þrándheimi, að Þrændalög eigi saman en tekið hafi mörg ár að ná meirihluta til að taka þessa ákvörðun. Hún kveðst gleðjast mjög yfir sameiningunni sem loks er orðin að veruleika. Kostina telur hún þá að sameinuð verði Þrændalög stærri og þýðingarmeiri hluti Noregs og geti þar með tekið meiri ábyrgð á fleiri verkefnum. Hún telur einnig mikilvægt að stofna til nánara samstarfs á sviðum á borð við samgöngumál og viðskiptalíf í landinu. Það voru einkum íbúar Norður-Þrænda- laga – byggðarinnar norðan Þrándheims – sem stóðu gegn sameiningunni en sunnan- menn voru mun jákvæðari. Norsku fylkjunum fækkaði um eitt um áramótin Áin Nið, sem Niðarós heitir eftir, fellur um miðborg Þrándheims en Niðarós er hið forna heiti borgarinnar. AFLANN Í ÖRUGGA HÖFN! Fiskmarkaðir FMIS í Reykjavík og á Akranesi eru afar álitlegir kostir fyrir alla sem stunda sjósókn, hvort sem um ræðir smærri báta eða togara. Aðstaðan er nýupp- gerð og öll hin glæsilegasta. Stutt í alla þjónustu Varahlutir í skip Slippur Veiðarfærasala Höfuðstöðvar helstu viðskiptafyrirtækja Heilsugæsla / Landsspítali Afþreying Góð viðlega, löndunarkranar, rafmagn og vatn Aflinn og áhöfnin eru í öruggum höndum hjá FMIS í Reykjavík og á Akranesi, kynntu þér kostina á www.fmis.is FMIS FMIS

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.