Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.01.2018, Blaðsíða 21

Sveitarstjórnarmál - 01.01.2018, Blaðsíða 21
21 Alþingi sýni skýrari vilja „Þá má af þessu tilefni draga það fram að árið 1986 var lágmarks- íbúatala 50 íbúar og ef íbúatala var undir því marki í þrjú ár, voru sveitarfélög sameinuð án atkvæðagreiðslu íbúa.“ Hún segir að Alþingi þurfi einnig að sýna skýrari vilja til sam- einingar sveitarfélaganna. „Alþingi hefur lagst gegn breytingum sem mikil vinna hefur verið lögð í. Tillögur hafa verið lagðar fram um lág- marksfjölda íbúa allt frá árinu 1952 en engin þeirra hefur náð fram að ganga og í dag eru engin ákvæði í lögum um lágmarksfjölda íbúa. Það er mikilvægt að stíga fyrsta skrefið að fækkun sveitarfélaga áður en farið verður að ræða um breytta verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga og til- flutning verkefna og að verkefni verði flutt þegar skipulag sveitarstjórnarstigsins leyfir,” segir hún. Taka þarf starfsemi jöfnunar- sjóðs til endurskoðunar Starfshópurinn telur að gera þurfi breytingar á starfsemi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. „Það er rétt. Starfsemi jöfnunarsjóðs er einn hluti í þessu stóra máli sem framtíð sveitarstjórnarstigsins er. Við teljum að stjórn- völd verði að marka skýra stefnu til lengri tíma, allt að 20 ára, fyrir sveitarstjórnarstigið í heild þar sem allir málaflokkar eru undir. Þar ber hæst fjármál sveitarfélaga en einnig byggðamál og samgöngumál. Þar er starf- semi jöfnunarsjóðsins einnig undir.” Í október kom út áfangaskýrsla nefndar um endurskoðun á jöfnunarframlögum Jöfn- Frá Skagaströnd. Skagaströnd er lítið sveitarfélag í Austur-Húnavatnssýslu. Nú er hafin könnun á möguleikum þess að sameina sveitarfélögin í sýslunni. Þau eru; Blönduósbær, Húnavatnshreppur, Sveitarfélagið Skagaströnd og Skagabyggð. Frá Akureyrarkaupstað. Hugmyndir um sameiningu sveitarfélaga á Eyjafjarðarsvæðinu voru ræddar í sveitar- stjórnum þar í fyrra en náðu ekki fram að ganga.

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.