Sveitarstjórnarmál - 01.01.2018, Page 20
20
Hækkun lágmarks íbúafjölda sveitarfé-
lagaíþrepum.HlutiaftekjumJöfnunar-
sjóðs sveitarfélaga verði nýttur til að
auðvelda sameiningar þeirra. Fjármögn-
un sveitarfélaga stuðli að hagkvæmu
skipulagi sveitarstjórnarstigsins. Stjórn-
völdtakimarkvissariþáttíverkefnunum
um styrkingu sveitarstjórnarstigsins og
fjárfesti í því. Verkefni verði flutt til
sveitarfélaga.Ábyrgðsveitarfélagaáop-
inberumfjarmálumogsamspiliþeirravið
hagstjórn verði styrkt og sérstök höfuð-
borgarastefna verði mótuð í samvinnu
við Reykjavíkurborg og önnur sveitarfé-
lög. Þetta eru meginniðurstöður starfs-
hóps semÓlöfNordal,þáverandi innan-
ríkisráðaherra, setti á laggirnar í árslok
2015.
Verkefnið nefndist Staða og framtíð
íslenskra sveitarfélaga og var ætlað að greina
tækifæri og leiðir til þess að styrkja sveitar-
stjórnarstigið enn frekar. Skýrsla hópsins
kom út í júlí í fyrra. Formaður var Eyrún Ingi-
björg Sigþórsdóttir, viðskiptafræðingur og
fyrrum sveitastjóri á Tálknafirði og ein af
eigendum ráðgjafastofunnar Ráðrík. Eyrún spjallaði við Sveitarstjórn-
armál af þessu tilefni á dögunum.
Markmiðin náist í nokkrum þrepum
Hún segir róttækustu tillögur starfshópsins snúa að því að fjölga
íbúum í sveitarfélögum með því að takmaka lágmarksfjölda þeirra í
þrepum.
„Við komumst að þeirri niðurstöðu að til þess að ná því markmiði
að efla sveitarstjórnarstigið þurfi sveitarfélög-
in að vera sjálfbærar þjónustu- og rekstrar-
einingar. Af þeim sökum þurfi að fækka
sveitarfélögum og skilgreina þau verkefni
sem þau geti sinnt ein og óstudd. Miða
verði við að þau verði fær um að sinna allt
að tveim þriðju af verkefnum er heyra undir
A-hluta miðað við kostnað þeirra. Þannig
urðu þær tillögur sem við settum fram til en
þær miðast við að ná þessum markmiðum í
áföngum eða í þrepum.”
Lágmarksfjöldi íbúa hækkaður
í áföngum til 2026
Hugmyndir starfshópsins gera ráð fyrir að í
byrjun árs 2019 taki gildi lagasetning þess
efnis að árið 2020 skuli lágmarksfjöldi íbúa í
sveitarfélagi vera 250, vera kominn upp í
500 tveimur árum síðar, það er árið 2022 og
verða kominn í 1.000 árið 2026.
„Við töldum nauðsynlegt að gefa þessu
nokkra aðlögun. Annað sem vert er að vekja
athygli á í þessu sambandi er að hópurinn
gerir ráð fyrir að þær sameiningar sveitar-
félaga sem þarf til að ná þessum íbúamörk-
um verði ekki bornar undir íbúa í atkvæða-
greiðslum.“
Eyrún segir ljóst að þessi mál verði ekki leyst til hlítar ef íbúar
þurfi að kjósa um hverja einustu sameiningu, það segi sagan okkur
þegar horft er til sameiningarátaka undanfarna áratuga. Einnig var
horft til Danmerkur, Grænlands og Álandseyja sem öll hafa farið
þessa leið.
Fækkun sveitarfélaga og
langtímastefnumótun fyrir
sveitarstjórnarstigið
- eru meginniðurstöður starfshóps um stöðu og framtíð sveitarfélaga
Sameining sveitarfélaga
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir hjá Ráðrík og formað-
ur starfshóps um stöðu og framtíð íslenskra sveitar-
félaga.