Íslenzkur iðnaður - 01.12.1938, Blaðsíða 6

Íslenzkur iðnaður - 01.12.1938, Blaðsíða 6
4 íslenzkur iðnaður Stórmerkileg tilraun til þess að afla sjávar afurðunum nýrra markaða. Niðursuðuverksmiðja S. I. F. Á aðalfundi Sölusambands íslenzkra Fisk- framleiðenda 1937 var samþykkt áskorun til fé- lagsstjórnarinnar um ,,að hefjast handa á yfir- standandi starfsári til að koma á fót niðursuðu- verksmiðju fyrir sjávarafurðir, svo og að byrja starfrækslu með niðursuðu þeirra fisktegunda, sem hún telur líklegastar til að ná sölu á erlend- um markaði“. 1 tillögunni segir ennfremur, að verksmiðjan skuli eigi í byrjun reist fyrir stóriðju, en að hún geti þó framleitt nægilegt magn til þess, að geng- ið verði úr skugga um framtíðarmöguleika ís- lenzkra niðursuðuvara á erlendum markaði. Undanfari þessarar samþykktar var sá, að gerð var sú breyting á lögum S. í. F., að í stað þess að starfssvið félagsins hafði fram til þessa verið takmarkað við sölu á saltfiski, var félags- stjórninni heimilt að annast „sölu hverskonar sjávarafurða félagsmanna, ef þeir óska þess“. En það, sem að baki liggur þessari rýmkun á starfssviði S. í. F., er aftur sú nauðsyn, sem skap- azt hefir vegna margvíslegra erfiðleika saltfisk- framleiðenda hin síðustu ár. Markaðsskerðing sú, sem orðið hefir í aðalmarkaðslöndunum, hefir gert þörfina fyrir fjölbreyttari hagnýtingu fram- leiðslunnar brýnni en áður var. Þegar að afloknum aðalfundi í fyrra var tekið að vinna að verksmiðjumálinu með fullum krafti. Upphaflega hafði verið gert ráð fyrir, að hægt væri að komast af án þess að byggja sérstakt hús fyrir verksmiðjuna. Var þá gert ráð fyrir, að taka mætti á leigu einhverja af hinum ónotuðu fisk- verkunarstöðvum. En að athuguðu máli þótti hyggilegra að reisa þegar í upphafi eigið hús handa verksmiðjunni, þótt útlagður kostnaður yrði meiri í bili. Rekstur nýtízku niðursuðuverk- smiðja krefst ýmislegs þess, ekki sízt hvað hrein- læti snertir, sem ókleift er að fullnægja í húsa- kynnum, sem gerð eru í allt öðru skyni. Hús verksmiðjunnar stendur við Lindargötu í Reykjavík, nr. 22, og er stórt steinsteypt port umhverfis húsið. Byrjað var á verkinu í síðast- liðnum marzmánuði, og var smíði hússins og upp- setningu véla að mestu lokið í byrjun júlímán- aðar. Húsið er úr steinsteypu, 37 metrar á lengd og 11 metrar á breidd, tvær hæðir. Vélar voru keypt- ar hjá A/S Kværner Brug í Oslo, og kom hingað verkfræðingur frá firmanu, til þess að segja fyrir um niðurskipun vélanna. Þá var fenginn hingað þýzkur sérfræðingur, dr. Metzner, til þess að sjá um, að tilbúningur varanna væri samkvæmt fyllstu kröfum nútím- ans. Dr. Metzner er þekktur vísindamaður og for- stöðumaður „Forschungsinstitut fur die Fischin- dustrie“, rannsóknarstofu þýzka fiskiðnaðarins í Fyrírliggjandi: Vanillestangir, Múskat, Kakao, Negull, Gerduft, Engifer, Eggjagult, Karry, Hjartasalt, Hunangskrydd, Kremduft, Borðedik, Kúmmen, Edikssýra, Kanill, st., Matarlitur, Pipar, st., Sósulitur, Allrahanda, Ekta Kirsiberjasaft, Kardimómur, Litað sykurvatn EVU-FÆGILÖGUR. GÓÐAR VÖRUR LÆGST VERÐ. Eínagerð Friöriks Magnússonar Sími: 31UU- Símnefni: „Wholesale“. Pósthólf U05. REYKJAVÍK.

x

Íslenzkur iðnaður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslenzkur iðnaður
https://timarit.is/publication/1690

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.