Íslenzkur iðnaður - 01.12.1938, Blaðsíða 10

Íslenzkur iðnaður - 01.12.1938, Blaðsíða 10
8 Islenzkur iðnaður Með því að skipta við Eimskip vinnið þér þrennt: 1. Fáið vörurnar fiuttar fyrir lægsta verð með mesta öryggi. 2. Þegar þér ferðist fáið þér þægilega kiefa, ágætan mat og góða aðhlynningu. 3. Styðjið um leið íslenzkt fyrirtæki og ís- lenzkt atvinnulíf. Skiftið eingöngu við Eimskip. ekki að neinu leyti sambærilegur menntun húsa- meistara. Þessvegna er það varhugavert, og er brot á hinni þýðingarmiklu reglu um glögga verkaskiptningu, þegar ýmsir ágætir fagmenn úr hinum margvíslegu greinum byggingaiðnaðarins taka sér fyrir hendur að uppfylla hlutverk húsa- meistarans. Þessir fagmenn eru eflaust vel kunn- andi á sínu sviði, og hafa ef til vill um fjölda ára starfað að húsagerð, og telja sig því skilja til fullnustu verk húsameistarans, og vera til þess hæfir að leysa það af hendi. En eins og ég sagði áður, þá þarf aðra og allmikið meiri menntun á öðrum sviðum, til þess að verk húsameistarans sé vel unnið, og er það ekki á valdi neins fag- manns í einstökum greinum byggingaiðnaðarins. Iðnaðarmenn ganga sjálfir á undan um verka- skiptingu og vaka yfir því, að hún sé í heiðri höfð, og ættu þeir því að skilja það, að þeir geta ekki farið inn á sérsvið húsameistaranna. Erlendis víðast hvar er því svo farið um þessi mál, að uppdrættir eru þá fyrst gildir til sam- þykktar, þegar húsameistari hefir áritað plöggin, sem byggja skal eftir. Væri sízt úr vegi að mál þessi yrðu einnig hér á landi tekin til alvarlegrar yfirvegunar, og þá einkum hér í Reykjavík. Ástæðurnar fyrir slíku eru alveg þær sömu og fyrir annarri verkaskiptingu í byggingaiðnaðin- um, eða þær, að hér eru um svo mikil verðmæti að ræða, að ófært er annað en að hvert verk sé unnið af þar til hæfum mönnum. Ég tel að þessari tillögu minni mætti koma í framkvæmd með samvinnu milli húsameistar- anna og hinna einstöku faggreina. Erlendis bygg- ist þessi tilhögun á byggingarsamþykktum, og gæti það orðið eins hér, ef ekki er önnur leið fær. Ég læt þessi orð nægja um verkaskiptinguna í byggingaiðnaðinum. Hún er sjálfsögð og á að vera sjálfri sér samkvæm í öllum atriðum, þann- ig, að hvergi séu óskýr mörk. Hörður Bjarnason.

x

Íslenzkur iðnaður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslenzkur iðnaður
https://timarit.is/publication/1690

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.