Íslenzkur iðnaður - 01.12.1938, Síða 8
6
íslenzkur iðnaður
Á vaxta drykkir,
Appelsín og Grape-Fruit.
innihalda safa og merg nýrra ávaxta.
margar alkunnar tegundir.
Gosdrykkir Sódavatn
Sendið jólapantanir sem fyrst.
H.f. ölgerðin Egill Skall agrímsson,
Sími 1390. — Símnefni: MJÖÐUR.
á erlendum markaði, í harðri samkeppni við
framleiðslu annara þjóða.
En vitanlega er verksmiðjan ekki stofnuð með
það fyrir augum fyrst og fremst, að fullnægja
eftirspurn eftir niðursuðuvörum hér innanlands.
Ætlunin er að vinna nýja markaði fyrir íslenzkar
fiskafurðir víðsvegar um heiminn með því að
matbúa þær samkvæmt kröfum hinna vandlát-
ustu neytenda. Öllum er Ijóst, að það muni taka
langan tíma að vinna markaði fyrir þfessar vör-
ur. En nú er verið að byrja að senda sýnishorn
til útlanda, og er vonandi, að þau gefist vel.
Foorstjóri niðursuðuverksmiðju S. í. F. er hr.
Þorvaldur Guðmundsson, en yfirumsjón og reikn-
ingshald er í höndum framkvæmdastjórnar S.
í. F. Auk þess starfar við verksmiðjuna sérfróður
maður í öllu því, sem lýtur að niðurlagningu
síldar, hr. Tryggvi Jónsson. Alls vinna um 20
manns í verksjniðjunni.
Kostnaður við verksmiðjuna hefir orðið alls
um 220 þúsund krónur.
Verksmiðjan var vígð 1. október síðastliðinn
af formanni stjórnar S. 1. F., Magnúsi Sigurðssyni
bankastjóra.
Miklar vonir eru tengdar við þetta nýja fyrir-
Litla Bílstöðin
er nokkuð sfór
Opið allan sólarhringinn
Upphitaðir bílar
Sími 1380
tæki. Með þessu er gerð merkileg tilraun til þess
að koma vandlátum neytendum í fjarlægum
löndum í samband við framleiðsluna af hinum
auðugu fiskimiðum við strendur íslands. Islenzka
þjóðin á mikið undir því um afkomu sína, að
þessi tilraun gefist vel.
Árni Jónsson frá Múla.