Íslenzkur iðnaður

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Íslenzkur iðnaður - 01.12.1938, Qupperneq 9

Íslenzkur iðnaður - 01.12.1938, Qupperneq 9
íslenzkur iðnaður 7 Verkaskipting í byggi Ég hefi verið beðinn að rita nokkur orð um byggingaiðnaðinn í rit þetta og geri það mjög fúslega. Þó vildi ég taka það fram, að ég tel á engan hátt, að ég hafi skilyrði á við ýmsa aðra, sem meiri reynslu hafa, til að skrifa um þennan iðnað, og mun ég því takmarka grein þá, sem hér fer á eftir við verkaskiptingu innan bygg- ingaiðnaðarins. Byggingaiðnaðurinn er svo veigamikill þáttur í fjárhags- og atvinnulífi Reykjavíkur, að hon- um ber að veita sérstaka athygli. Þessi iðnaður á sér mýmargar hliðargreinar, sem gleypa mikið fé og verulegan vinnukraft, og eru þannig einnig þýðingarmiklar fyrir bæjarbúa. Tala þeirra, sem vinna við höfuðgreinar bygg- Utvegum Vélar og efni til idnaðar. G. Helgason k Melsted h.f. Simar 1644. Símnefni Melsted. ngaiðnaöinum. ingaiðnaðarins sýnir Ijóslega hve hér er um mikið atvinnuatriði að ræða, en skiptingin er sem næst þessi: Húsameistarar (arkitektar) með æðri mennt- un 10, og aðrir, sem að meira eða minna leyti starfa að húsateikningum 11. Síðan koma meistarar og handverksmenn, og skiptast þeir þannig: Múrarameistarar..... 28 — sveinar 100 málarameistarar.....84 — sveinar 75—80 pípulagningameistarar .. 18 — sveinar 28 veggfóðrameistarar .... 12 — sveinar 8 Trésmíðameistarar og sveinar 4—500, og auk þess allmargir rafvirkjar. Hinir síðarnefndu fá langflestir eða nær allir undirbúningsmenntun sína innanlands og fer kennslan að verulegu leyti fram á verkbólunum. En Iðnskólinn er einnig mjög verðmæt stofnun fyrir uppeldi þessarra manna, og tel ég ekki vafa á, að sá skóli veiti góða menntun miðað við sam- bærilegar stofnanir erlendis, og árangurinn er sá, að við eigum mjög góða stétt fagmanna í byggingaiðnaðinum, sem er vel hæf til þess að leysa af hendi verkefni sín, hver á sínu sviði. Allar þessar mörgu faggreinar eru mjög vak- andi um hagsmuni sína, og vernda þá með harð- snúnum stéttasamtökum, enda er það nauðsyn- legt atriði fyrir velfarnað í byggingamálum, að verkaskiptingin sé einmitt glögg, og ekki starfi nema sérlærðir menn að hverju verkefni. Húsameistararnir hafa það hlutverk innan byggingaiðnaðarins, að leggja verkefnin fyrir hina einstöku hópa fagmanna, sem síðan vinna hver sitt hlutverk. í Iðnskólanum eru kennd undirstöðuatriði í húsateikningu, en menn verða að athuga það vel, að sú kennsla miðar eingöngu að því, að fag- mönnunum gangi betur að skilja og útfæra þær teikningar, sem húsameistarinn leggur að mörk- um. En þessi undirbúningur í Iðnskólanum er

x

Íslenzkur iðnaður

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenzkur iðnaður
https://timarit.is/publication/1690

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.